Ný Dögun - 01.11.1991, Qupperneq 45
/sJý TJögun-
því að gefa þáði hann líka. Lítíð dæmi: Ef
hringt var og vinur spurði hvernig ég hefði
það, þá svaraði ég heiðarlega hvemig mér
leið, og gat þess jafnframt að það hefði verið
gott að heyra símann hringja. Ef ég fann að
ég gat deilt tilfinningum mínum og losað
um sársauka, þá þakkaði ég viðkomandi
fyrir.
Við getum ekki ætlast tíl þess að aðrir
skilji okkur. Auðvitað er það huggun þegar
aðrir skilja, en staðreyndin er sú að við
stöndum ein, því að samband okkar við
hinn látna ástvin og umfang missis er
breytilegt eftír hverjum og einum. Þetta er
barátta okkar, sem við ein getum háð. Þó
svo að vinir geti ljáð okkur vopn og barist
með okkur.
Tilfinningar eru ekki réttar eða rangar.
Þær eru. Hegðun þín getur verið góð eða
slæm, rétt eða röng, við hæfi eða ekki.
Hugsun þín getur verið skýr eða ekki,
skynsöm eða ekki. En tílfinningarnar sem
þú berð í brjóstí em þínar. Það er heimsku-
legt af fólki að leggja tíl að þú hættir að finna
tíl á þennan hátt. Það er útilokað. Margir
vinirgetaekkimóttekið sárustu tilfinningar
þínar. Þaðermiður. Hvernig þeir bregðast
við getur líka gert þig, t.d. enn reiðari. Það
væri gott ef vinirnir áttuðu sig á, að þegar þú
tjáir reiðina, ert þú að taka ábyrgð á tilfinn-
ingum þínum og ert ekki líklegur til að láta
það bitna á þeim.
Það er útilokað að fara að ráðum annarra.
Ég minnist þess forðum daga þegar ég hafði
hug á að fara í leikhús og leitaði ráða hjá
tveim vinum mínum, vegna þess að ég var
svo óörugg með sjálfa mig. Annar sagði:
„Það er nú of skammt liðið, það er ekki við
hæfi að þú farir út að skemmta þér." Og
hinn sagði: „Þú ert nú svo ung, þú verður
að lifa áfram, drífðu þig í leikhúsið og svo á
ballið á eftir". Sættu þig því við það að vinir
þínir gagnrýni ákvarðanir þínar. Þú einn,
syrgjandi góður, veist manna best hvers þú
ert megnugur.
Minnstu þess að margir syrgjendur hafa
endurnýjast án hjálpar ef þeir höfðu
fjölskyldu og vini, sem viðurkenndu þarfir
þeirra, studdu þáogsyrgðueinnig. Þúþarft
að fá tækifæri til þess að tala um kringum-
stæður dauðans og minnast ástvinar þíns
aftur og aftur. Ef fjölskylda og vinir þínir
geta skapað þér öryggi til að komast í
gegnum sárustu sorgina, þá ert þú heppinn.
Því að þeir munu gegna mikilvægu hlutverki
á komandi árum í lífi þínu. En ef fjölskyldan
og vinirnir eru ekki í stakk búnir, eða vilja
ekki styðja þig, ráðlegg ég þér að leita til
sorgarsamtaka eða fagaðila.
Astvinamissir er erfið reynsla, sem á okkur
er lögð. Ég hafði það ætíð að leiðarljósi, að
reyna að þroska minn innri mann við hvert
nýtt skref sem ég tók. Ég reyndi eftír fremsta
megni að gefa mér tíma tíl að syrgja, en ekki
tíl að gleyma.
Ég hef hér stiklað á stóru, augljóst er að
mikið vantar í þessa upptalningu, en ég
vona að hún vekji ykkur til umhugsunar um
margbreytileika og mikilvægi vináttunnar í
lífi hverrar manneskju.
Oplð Kus
Fyrir utan 1. þriðjudag mánaðarins frá október til maí stendur Ný Dögun fyrir opnu
húsi fyrír syrgjendur í safnaðarheimili Laugameskirkju. Allir syrgjendur er velkomnir.
Opnahússnefnd skipa: Olga Snorradóttir, jóna Dóra Karlsdóttir, Elínborg Jónsdóttir,
Elín Sverrisdóttir, Halla Eiríksdóttir.