Ný Dögun - 01.11.1991, Page 49
Ný Dogurv
I
Sp.: Hvernig bar fundum ykkar
saman?
Olga: Ég hafði heyrt um reynslu
Jónu Dóru. Það var áður en ég missti
manninn minn. En eftir að hann dó, þá
fór ég að hugsa um þann stuðning,
sem hægt væri að fá. Þá var það, að ég
las viðtal við Guðmund Árna, mann
Jónu Dóru, þar sem hann talaði um
þörfina fyrir stuðningshóp. Langaði
mig þá að haf a samband við Jónu Dóru,
en þorði fyrst ekki að hringja. Ég fékk
vinkonu mína til að vera milligöngu-
mann og við hittumst síðan heima í
nóvember 1986. Þá töluðum við lengi
saman.
\/iði£*l VÍð
^Jóuu Dóm Kadsdót+ui'* og
O\giA 5uok,radó++u^
Jóna Dóra Karlsdóttir og Olga Snorra-
dóttir hafa starfað í samtökum syrgjenda frá
stofnun þeirra. En þær tóku líka þátt í undir-
búningsvinnunni og þekkja af eigin raun
hvernig ástand mála var fyrir stofnun
samtakanna og fram á þennan dag. Þær eru
frumherjar í hópi syrgjenda í þessum mála-
flokki.
49