Ægir - 01.10.2018, Side 114
114
Hönnunarfyrirtækið Navis hefur alla tíð
lagt áherslu á umhverfisþætti og orku-
sparnað við skipahönnun og hafa sér-
fræðingar fyrirtækisins þróað aðferðir
sem minnka kolefnisspor skipanna til að
sporna gegn sóun auðlinda og mengun
umhverfisins. Meðal annars hefur Navis
í samstarfi við fleiri íslensk fyrirtæki
lokið hönnun á fyrsta hybrid línubátnum
í heiminum en hann mun alfarið nota
endurnýjanlega orku við veiðar. Við tók-
um hús á Hirti Emilssyni framkvæmda-
stjóra Navis og syni hans Bjarna Hjart-
arsyni hönnuði en starfsemi fyrirtækis-
ins er í Húsi sjávarklasans á Granda.
Rafmagnið í öll skip
„Það er alveg ljóst í okkar huga að raf-
væðing fiskiskipaflotans er nær okkur í
tíma en flesta grunar og þar viljum við
vera í fararbroddi, ekki aðeins hér heima
heldur á alþjóðavísu. Við höfum unnið að
hönnun línubátsins um skeið og nú
kemst skriður á það verkefni eftir að við
fengum 2ja ára styrk frá Tækniþróunar-
sjóði til að halda verkinu áfram. Þá erum
við einnig með umsókn hjá ESB um
smíðastyrk og ef af smíði verður mun
Vísir í Gindavík gera bátinn út. Hug-
myndin er að í bátnum verði lítil olíu-
drifin aflvél til að nota á stíminu en síð-
an sjái rafhlöður um að knýja bátinn og
tæki hans við veiðar. Miðað við þann
hraða sem er í þróun á rafhlöðutækni
fyrir t.d. bíla þá spái ég því að það stytt-
ist mjög í að við sjáum fiskiskip sem ein-
göngu verða knúin rafmagni,“ segir
Bjarni í samtali.
Gríðarlegur orkusparnaður
Aukning gróðurhúsalofttegunda er vax-
andi vandamál og Íslendingar hafa
skuldbundið sig til að minnka verulega
kolefnisfótspor sitt á næstu 15 árum. Ef
það tekst ekki mun ríkissjóður þurfa að
greiða sektir sem geta numið hundruð-
um milljarða króna. Það er því mikið í
húfi.
„Þjóðir heims munu ekki ná að sporna
gegn gróðurhúsalofttegundum nema
með því að ráðast í orkuskiptin nú þegar
í iðnaði, samgöngum og sjávarútvegi.
Hybrid tæknin hefur aðeins verið að
stinga niður fæti í skipum, t.d. ferjum og
hafa norsk yfirvöld sýnt mikinn áhuga á
þeirri tækni. Þeir láta ekki orðin duga
heldur hafa þeir eflt rannsóknir á þessu
sviði og styðja vel við bakið á þeim. Þá
hefur norska vegagerðin ákveðið að
framvegis verði öll ný skip hennar knúin
rafmagni að hluta eða öllu leyti. Við Ís-
lendingar erum líka framarlega í þessu
og nægir að horfa til smíði á Herjólfi en
ákveðið hefur verið að hann verði alfar-
ið knúinn rafmagni í ferðum milli Eyja og
Landeyjarhafnar. Öllum þessum skrefum
ber að fagna en betur má ef duga skal.
Útgerðirnar þurfa að fá hvata til að sjá
ljósið í þessu en þegar hefur verið sýnt
fram á að með hybrid vélbúnaði megi
spara allt að 30% í eldsneytiskostnaði.
Hvað fiskveiðarnar varðar bætist fleira
við því með rafknúnum skipum eykst
aflaverðmætið til muna og öll vinnuað-
staða um borð verður mun betri,“ segir
Hjörtur.
Rafhlöðurnar í ballestinni
„Ég hef trú á því að við sjáum fljótlega
stærri skip búin tvinntækninni og síðan
verði þau alfarið knúin rafmagni. Þetta
hefur í för með sér ýmsar breytingar um
borð; vélarrúmin verða talsvert frá-
brugðin því sem er í dag, rafhlöðurnar
verða í ballest skipsins og allur vélbún-
aður mun taka mun minna pláss. Skipin
verða léttari, þau verða því sem næst
hljóðlaus og án útblásturs og titringur-
inn hverfur. Í dag tala úrtölumenn um
að rafhlöðurnar séu ekki nægjanlega öfl-
ugar en það er að breytast hratt þessa
dagana og nægir að benda á bílaiðnað-
inn í því sambandi. Raftæknin þar hefur
tekið algjörum stakkaskiptum á örfáum
árum. Sú þróun mun örugglega leiða til
þess að ekki aðeins ferjur verði rafknún-
ar heldur einnig flutningaskip og fiski-
skip. Þetta er spennandi þróun og við
hjá Navis göngum hressir inn í framtíð-
ina,“ segir Bjarni.
navis.is
Rafvæðing fiskiskipa
er á næsta leiti
Bjarni Hjartarson, hönnuður hjá Navis ehf. til vinstri og Hjörtur Emilsson fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. „Þjóðir heims munu ekki ná að sporna gegn gróður-
húsalofttegundunum nema með því að ráðast í orkuskiptin nú þegar í iðnaði, sam-
göngum og sjávarútvegi.“
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands