Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 4
4 10. ágúst 2018FRÉTTIR geirsgötu 8 / s. 553 1500 Sumartilboð Sægreifans Humarsúpa, brauð & ískaldur gull á 2.000 kr Þ að er óhætt að segja að dagurinn 17. júní í fyrra- sumar hafi reynst Guðbjarti Hólm Ólafssyni örlagaríkur, en þá var sveitabær í hans eigu á Kjalarnesinu lagður í rúst sem og flest allt sem á lóðinni stóð. Húsið var á sölu og verðlagt á 120 milljónir króna þegar atvikið átti sér stað og nam tjónið um tólf til fimmtán milljónum með öllu innbúi að sögn Guðbjarts. Í kostn- aðarútreikningum er aftur á móti ekki gert ráð fyrir með viðgerðum á raflögnum og tjóninu á bifreiðum á svæðinu. „Ég fékk þetta hús í arf þegar pabbi minn dó árið 2014,“ segir hann. „Það var hann sem keypti þetta og byggði þetta upp, nán- ast frá grunni. Mér finnst rosalega sárt að einhver skuli níðast á eigum látins manns.“ Að sögn Guðbjarts átti þurfti hann að fara til útlanda vegna veik- inda sem hann gat ekki frestað þegar skemmdirnar voru unnar, en hann fullyrðir að verknaðurinn hafi trúlega tekið margar klukkustundir miðað við umfang innbrotsins. „Þetta voru eins og náttúruhamfar- ir. Hreint ógeðslegt,“ segir hann og útilokar ekki að skemmdarvargur- inn, hvort sem hann hafi verið einn eða með fleirum, hafi verið haldinn öfundsýki, því allt hafi verið lagt í rúst, en engu stolið. Lítil viðbrögð frá lögreglu „Ljósið í loftinu, ljósaperurnar, eld- húsinnréttingin, allir skápar, hurð- irnar, blöndunartæki, eldhúskran- inn, allar myndir, öll herbergi, öll glös, allt brotið, allt í rúst,“ segir Guðbjartur. „Þetta er búið að eyði- leggja allt mitt líf,“ bætir hann við. „Þetta eyðilagði sambandið milli mín og barnsmóður minnar auk þess að fara illa með vinskapinn á milli mín og félaga minna. Ástæðan er sú að þetta fór svo með mig og ég veit ekki hverjir standa á bak við þetta. Fólk getur verið vinir manns en síðan orðið hið andstyggilegasta þegar maður snýr við því bakinu.“ Guðbjartur segist hafa ekki feng- ið mikil viðbrögð frá lögreglu þegar hann tilkynnti þetta á sínum tíma. „Lögreglan vildi ekkert gera, mér var bent á að fá mér lögfræðing en það náði aldrei lengra,“ segir hann. „Svo var mér sagt að fólk færi ekki í fangelsi fyrir svona tjón, heldur aðallega líkamsárásir, fíkniefna- mál, fjárhagssvik eða þess háttar. Ég er í rauninni ennþá reiðari yfir Ford Econoline sem var eyðilagður þarna fyrir utan og kveikt í.“n „Þetta voru eins og náttúruhamfarir. Hreint ógeðslegt. Sveitabær lagður í rúst á Kjalarnesi: „ÞETTA ER BÚIÐ AÐ EYÐILEGGJA ALLT MITT LÍF“ Tómas Valgeirsson tomas@dv.is Það er staðreynd að … Ef þú þjáist af Onomatofóbíu ertu gífurlega hrædd/ur við að heyra ákveðin nöfn eða orð. Fegurðardísin Marilyn Monroe var með sex tær á vinstri fæti. Fjarlægðin á milli yfirborðs og miðju jarðar er rúmlega 6 þúsund kílómetrar. Tvær milljónir smá- maura eru í rúminu þínu. Hver er hún n Hún er fædd árið 1956 og ólst upp í Arnarholti á Kjalarnesi. n Hún var í tónlistar- skóla þar sem hún lærði á píanó. n Hún sótti um í tónmennta- kennaradeild Tónlistarskólans í Rekjavík og þar hóf hún nám aðeins 17 ára gömul. n Hún bjó í London í átta ár. n Hún gaf út sólóplöturnar Rombigy og Baby. SVAR: RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR Það eru engir fiskar í Dauðahafinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.