Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Page 18
18 LÍFSSTÍLL 10. ágúst 2018 Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum Mikið úrval af stillanlegum rúmum Gerið gæða- og verðsamanbuð í heilan mánuð. En þegar honum var tjáð að hann hann kæmist ekki inn fyrr en í haust var það slík­ ur skellur að hann byrjaði aftur í harðri neyslu „Það varð honum mikið áfall þegar hann frétti að hann myndi ekki byrja í meðferð fyrr en í ágúst. Fyrir fíkil get ég ímyndað mér að honum hafi fundist það heil ei­ lífð. Þetta kvöld féll hann og að­ eins fjórum dögum seinna kom­ um við Viktor, litli bróðir hans, að honum látnum í herberginu hans. Ég veit ekki hvað varð til þess að hann lést en læknirinn sem kom á staðinn taldi að það væri hjarta­ áfall þar sem engin merki væri um mikla neyslu á staðnum og hann virðist hafa látist mjög snögg­ lega. Hann sat á rúminu sínu með matarbakka á hnjánum og gaffal sér við hlið. Að sögn læknisins sem krufði hann beindist grunur helst að einhvers konar ofneyslu. Í mín­ um huga finnst mér það í rauninni ekki skipta máli hver ástæðan er. Hann er farinn frá mér og ég veit að hann þjáist ekki lengur,“ segir móðir hans. „Við vorum alveg vissar um að hann vildi hætta í neyslu því hann var nýbúinn að segja við móður sína að hann væri svo spenntur og hlakkaði svo til að sýna okk­ ur að hann gæti orðið edrú,“ segir Andrea. Aðstandendur ungmennanna sem fallið hafa frá langt fyrir ald­ ur fram hafa valið að koma fram með myndir og sögur ástvina sinna, til að sýna að þau eru ekki bara tölur á blaði, heldur ungt og fallegt fólk sem var elskað af fjöl­ skyldu og vinum. Mörg þeirra leit­ uðu sér hjálpar sem ekki var í boði, sum eiga neyslusögu að baki með­ an önnur fiktuðu bara einu sinni. Margir eiga um sárt að binda eft­ ir andlát þeirra, en vilja eigi að síður koma fram opinberlega til að standa saman með öðrum að­ standendum, opna umræðuna og halda henni vakandi og knýja á um breytingar í fræðslu, forvörn­ um og meðferðarúrræðum. n Einar Darri Óskarsson 10.02.2000–25.05.2018 „Ég veit líka að alltaf þegar verður gleðidagur hjá mér, þá mun hann verða smá sorgardagur um leið. Eins og þegar ég gifti mig, eignast börn, ég hef alltaf séð Einar sem hluta af því. Ég mun gráta af því að hann er ekki með, en ég verð bara að leyfa því að gerast því ég mun alltaf sakna Einars. Ef ég loka alveg á sorgina þá er ég hrædd um að góðu minningarnar fari líka og ég vil frekar eiga slæma daga af og til, en að loka á minningarnar. Maður býst ekki við að einhver svona ungur muni deyja,“ segir Aníta Rún, systir Einars Darra sem lést á heimili sínu eftir neyslu róandi lyfja. G uðmundur Fylkisson lög­ reglumaður hefur í fjögur ár leitað að „Týndu börn­ unum“. Verkefnið hófst sem eins árs tilraunaverkefni í nóvember 2014, en er nú orðið fast verkefni, þar sem Guðmund­ ur sinnir einn leitinni, en hefur sér til aðstoðar lögregluna í heild sinni. „Þegar barn týnist er ferlið þannig að foreldri snýr sér til barnaverndarnefndar sem sendir lögreglunni formlega beiðni um leit. Þá fer í gang ákveðið ferli, barnið er skráð eftirlýst í okkar kerfi, þannig að ef einhvers stað­ ar eru höfð afskipti af barninu þá sést að verið er að leita að því,“ segir Guðmundur, sem seg­ ir leitina oftast byrja á að hann reyni að ná sambandi við barnið með því að hringja eða senda því sms. „Ég hringi í vini og kunn­ ingja, fer af stað að leita eða sit kyrr og bíð eftir að barnið geri vart við sig.“ Í sumum tilvikum skilar barnið sér heim þegar það sér að leit að því er hafin, „það er kannski ein­ hver pirringur búinn að vera í gangi heima fyrir, svo þegar þau sjá alvöruna, að ég sé að hringja eða senda þeim sms, þá fara þau heim.“ Í sumum tilvikum er lýst opin­ berlega eftir því barni sem leitað er að og segir Guðmundur þau mörg halda að hér sé reglan sú að ekki mega lýsa eftir þeim fyrr en sólarhringur sé liðinn, engin slík vinnu­ eða lagaregla er þó í gildi hér á landi, heldur er það metið í hverju og einu tilviki. „Foreldrar og barnaverndarnefnd taka þessa ákvörðun, þótt ég hafi oft skoðun á hvað eigi að gera og í mörgum tilvikum hef ég beðið foreldra um að treysta mér aðeins lengur, þar sem að ég tel mig vita hvar barnið sé. Þegar við höfum ekki heyrt frá barni eða af ferðum þess í sólar­ hring eða lengur þá tökum við stöðuna á hvort rétt sé að auglýsa eftir því, en í sumum tilvikum þarf barnið til dæmis á lyfjagjöf að halda og þá þarf að taka tillit til þess. Vandi barnanna er nægur og bætist bara á hann með því að birta nafn og mynd af þeim opin­ berlega.“ Á fjórum árum hefur Guð­ mundur leitað að 85–90 börnum á ári, oftar en einu sinni að meira en helmingi þeirra, en að 20–25 prósent barnanna þarf að leita oftar, 4–20 sinnum á ári. „Sum­ um er ég að leita að ár eftir ár, að sumum þeirra hef ég leitað öll fjögur árin.“ Þó að hópurinn sé stór á hverju ári þá bendir Guðmundur á ekki sé um að ræða háa pró­ sentu þegar litið sé til þess að það eru 3.000–4.000 börn í hverjum árgangi. Því er ekki rétt að tala um að það séu „allir í einhverju“. Guðmundur nefnir einnig að hann hafi oftast leitað að ung­ mennum fæddum 2002, ár­ gangarnir 2000 og 2001 hafi kom­ ið betur út og væri það áhugavert fyrir félagsfræðing að skoða hvað valdi því. „Ég vinn í þröngum hópi, en sá hópur er að verða hugsunar­ lausari gagnvart neyslunni en áður. Þau láta segja sér hvað sem er og eru óhrædd við að prófa. Neyslumynstrið er að breytast, árið 2016 var sprautufaraldur, núna er það læknadópið, hættu­ legri efni og þau virðast einhvern veginn óhrædd við að prófa.“ Yngsta barnið sem Guðmundur hefur leitað að var 11 ára, og það yngsta sem hann hefur leitað að í neyslu var 12 ára. Hann segir að hjá yngstu börnun­ um sé vandinn hins vegar meira hegðunar­ eða andlegur, ekki neysluvandi. Börnin eru þverskurður af samfélaginu, mörg koma frá heimilum þar sem þau búa ekki hjá báðum foreldrum, en flest til­ heyra hinu venjulega heimilis­ mynstri, venjulegum heimilum þar sem báðir foreldrar búa. „Meðal annars eru afrekskrakkar í íþróttum sem fara út af sporinu, sem sýnir að þú veist ekki fyrr en of seint hvað það er sem þú ert að prófa. Ein tafla getur verið einni töflu of mikið. Sum má segja að hafi aldrei átt séns, börn sem voru í neyslu í móðurkviði, líf sumra einkenn­ ist af því hvað bakland þeirra er dapurt og önnur eru með þenn­ an veikleika að það er ekki aftur snúið þegar þau hafa prófað eitt­ hvað. Svo er hópurinn sem er á undan í þroska og þar er vandinn sá að skólakerfið og fleira er ekki að mæta þeim á þeirra stað, þau passa ekki í jafnaldrahópinn, en það er verið að berjast við að halda þeim þar. Stelpurnar sem tilheyra þessum hópi eru mjög erfiðar, ekki neyslulega, heldur í hegðun. Fólk er með þá staðalímynd að börnin séu öll í einhverju greni. Raunin er ekki sú, flest þeirra eru bara úti á götu á ferðinni, þó að vissulega sé eitt og eitt sem fer í partí og eitt og eitt sem finnst í greni.“ Guðmundur bendir á að skoða þurfi hvort meðferðarúrræðin sem eru í boði í dag séu nægjan­ leg. „Þeir einstaklingar sem hafa verið erfið á þessu ári eru krakkar sem þurfa önnur eða betri með­ ferðarúrræði en eru í dag.“ Síðan Guðmundur hóf að leita að „Týndu börnunum“ hefur eitt þeirra látist, fyrir eigin hendi eldri en 18 ára. Árið 2012 létust þrír einstaklingar, sumir orðnir 18 ára. „Ef ekki væri fyrir þetta verkefni þá væru þau sennilega 2–3 sem hefðu látist á ári,“ segir Guðmundur og nefnir sem dæmi stúlku sem hann bjargaði eftir að hann fann hana meðvitundar­ lausa af morfínlyfjum í partíi. „Við fundum hana og aðra stúlku og ég leyfi mér að fullyrða að þær hefðu látist síðar um daginn, hefðum við ekki fundið þær. Þær sátu þannig að þær önduðu ekki, það var engin endurnýjun á súr­ efni.“ Þessi reynsla dugði þó ekki til að bjarga henni úr neyslunni, en Guðmundur segir hana þakka sér lífgjöfina í hvert sinn sem þau hittast. n Ef tölurnar eru skoðaðar í ár (1. ágúst) miðað við árið 2017, má sjá að leitarbeiðnum er að fjölga. Segir Guðmundur jafnframt að fleiri börn fari inn á Stuðla miðað við árið í fyrra. Árið 2018 þann 1. ágúst Árið 2017 Leitarbeiðnir 177 (113 stúlkur/64 drengir) 173 Einstaklingar 68 (33 stúlkur/35 drengir) 66 Heim 88 110 Stuðlar 75 60 39 einstaklingar eru með eina leit 3 stúlkur eru með 10 eða fleiri leitarbeiðnir það sem af er ári Týndu börnin eru þverskurður af íslenska samfélaginu Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.