Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Qupperneq 24
Brauð og bakkelsi 10. águst 2018KYNNINGARBLAÐ S igurjón Héðinsson hefur verið viðriðin bakarí frá árinu 1976 og hann hefur rekið Sigur- jónsbakarí frá árinu 1988. Það er til húsa í Hólmgarði 2c, fyrir ofan miðbæinn í Keflavík. Þann 17. júní í sumaið 2017 opnaði Sigurjón síðan kaffihús í Hólmgarði og hefur það gert stormandi lukku. „Ég var bara með 20 fermetra búð hérna en fór svo upp í 120 fermetra og þá var hægt að opna kaffihús. Þessu hefur verið tekið afskaplega vel enda fannst fólki vanta kaffihús í hverfið og nú er það komið,“ segir Sigurjón. Staðurinn er opinn frá 7 á morgnana til 17.30 á virkum dög- um og um helgar frá 8 til 17. „Það er súpa, brauð og pestó í hádeg- inu,“ segir Sigurjón þegar hann er beðinn um að nefna það sem vinsælast er á kaffihúsinu. Einnig hafa sérhannaðir kleinuhringir hans, svokallaðar Héðinsbollur, notið mikilla vinsælda, en sérstaða þeirra felst í miðjunni í kleinu- hringnum. „Þetta er framleitt hér frá grunni eftir minni uppskrift. Það er allt of mikið um að bakarar selji innfluttar vörur en ég legg áherslu á að baka hér eftir mínum upp- skriftum.“ Að sögn Sigurjóns er gestahóp- ur kaffihússins í Sigurjónsbakaríi mjög fjölbreyttur og á öllum aldri. Vinnandi fólk fær sér gjarnan súpu og brauð í hádeginu og svo staldra oft við hópar eldri borgara á gönguferðum og fá sér kaffi. Þá eru krakkar úr fjölbrautaskólanum þegar farnir að venja komur sínar á kaffihúsið en skólinn er nýbyrjaður á haustönninni. Vinnudagur bakara hefst snemma og Sigurjón þekkir ekkert annað en að vakna fyrir allar aldir og halda í vinnuna. „Við byrjum korter fyrir fimm og bakararnir vinna til kl. 14. Kaffihúsið er síðan opið áfram,“ segir Sigurjón. Hann segist ekki þurfa mikinn svefn, 4–5 tímar dugi honum ágætlega. Sigurjón viðurkennir að bakstur sé mikil nákvæmnisvinna í dag. „Hér áður fyrr, þegar ég var að byrja í þessu, þá var slumpað meira. Til dæmis ein lúka af salti á móti einni skóflu af deigi. En svo hafa menn misstórar hendur. Í dag er allt vigtað nákvæmlega og ýtr- ustu gæðakröfur uppfylltar.“ Sigurjón rekur líka öfluga veislu- þjónustu og sinnir jöfnum höndum brúðkaupsveislum, skírnarveislum, afmælum, erfidrykkjum og hvers konar öðrum samsætum. Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér veisluþjónustuna betur er bent á að hringja í síma 821-525 eða 421 -5255. Kærkomið kaffihús í Hólmgarði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.