Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Qupperneq 30
30 FÓLK - VIÐTAL 10. ágúst 2018 LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM Greiðslulausnir tengdar helstu afgreiðslukerfum Sjálfstandandi greiðslulausnir og handfrjálsir posar Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060 Það eru mynd­ bandsupptökuvélar úti um allt þannig að það á greinilega að vera hægt að sjá að hún átti upptök­ in. Af einhverjum ástæðum var ég engu að síður sett í einangrun í fimm sólarhringa.“ Karlotta nefnir einnig annað skipti, þar sem samfangi hennar, stúlka frá Mexíkó, áreitti hana kyn­ ferðislega. Sú stúlka var að hennar sögn alvarlega veik á geði. „Þegar komið var með hana í fangelsið var hún gargandi og öskrandi og lamdi höfðinu stöðugt í glugga og rimla.“ Karlotta lýsir atvikinu þannig að umrædd stúlka hafi nálgast hana og klefafélaga hennar, með­ an á matartíma stóð, og verið með ögrandi tilburði uns hún settist klofvega ofan á Karlottu, renndi höndinni á milli fótanna og greip í rass henn­ ar. „Það eru skilti og spjöld úti um allt þar sem stendur að áreitni og ofbeldi sé ekki liðið á meðal fanga. Ég tilkynnti þetta atvik og bað þá að skoða upptökur úr öryggis­ myndavélum. Síðar var mér tjáð að á upptökunni væri bara hægt að sjá hana setjast ofan á mig en ekkert meira. Ég sagðist vera með fleiri en eitt vitni að þessu atviki en var sagt að það væri ekkert hægt að gera í þessu, og ef ég vildi kæra stelpuna þá gæti ég gert það þegar búið væri að sleppa mér. Síðar meir komst ég að því að ef það koma upp of margar tilkynn­ ingar af þessu tagi þá mun ICE rifta samningum sínum við fang­ elsið.“ Enginn látinn vita Hún segir eiginmann sinn, John, hafa verið í stöðugum samskipt­ um við ICE og hinar ýmsu stofn­ anir og reynt hvað eftir annað að fá einhver svör. „Mér skilst að þegar einstaklingur er handtek­ inn af ICE þá beri þeim hjá ICE skylda til að hafa samband við viðkomandi sendiráð og láta vita af því að sá einstaklingur hafi ver­ ið handtekinn,“ heldur Karlotta áfram og bætir við að eiginmaður hennar hafi haft samband við ís­ lenska sendiráðið eftir handtök­ una og verið sagt að engin tilkynn­ ing hefði borist.“ Þann 3. maí síðastliðinn fór Karlotta loksins fyrir rétt í Mary­ land. „Aftur var ég handjárnuð, sett keðja um mittið og hlekkjuð á fótum. Þannig þurfti ég að ganga í gegnum dómhúsið, í fangabún­ ingi og í fylgd tveggja varða sem létu alla færa sig frá þegar við gegnum fram hjá, eins og ég væri stórhættulegur hryðjuverkamað­ ur.“ Hún segir lögfræðing sinni hafa tekist að afla fullnægjandi gagna og að lokum úrskurðaði dómari að enginn ástæða væri til að halda Karlottu í fangelsi. Henni var jafn­ framt gert að mæta á skrifstofu al­ ríkislögreglunnar til að láta taka fingraför og taka af sér ljósmynd. Þá var henni sagt að ef hún kæm­ ist í kast við lögin þá yrði henni umsvifalaust vísað úr landi. „Sem ætti svo sem ekki að vera mikið vandamál enda hef ég ekki stund­ að það að brjóta lög!“ Karlotta segir fjölskyldu sína ekki síður hafa upplifað helvíti á þessu rúmlega hálfa ári og óvissan hafi verið nagandi. „Yngri sonur minn brást við með því að fara inn í sig og loka sig af. Elsta dóttir mín neitaði að fara í skólann og sú yngri grét stans­ laust. Fyrsta mánuðinn í fangels­ inu vildi ég ekki að börnin mín kæmu að heimsækja mig. Ég gat ekki hugsað mér að láta þau horfa upp á mömmu sína í fangabún­ ingi á bak við rimla. Ég er kannski heppin að því leyti að börnin mín eru orðin þetta gömul, en ég get ekki ímynd­ að mér hversu hrikalegt það er að vera í þessari stöðu og eiga lítil börn sem þarfnast þín.“ Hún bíður enn eftir því að ákveðnir pappírar og gögn skili sér frá ICE áður en hún getur tek­ ið næstu skref. Einnig svo hún geti flogið til Íslands og hitt föður sinn á ný, en hún hefur miklar áhyggjur af heilsu hans. „Ég missti leiguíbúðina mína á Akureyri. Pabbi minn þurfti að fara á hjúkrunarheimili. Þetta er búið að kosta mikla peninga, lög­ fræðikostnað og annað. Mér finnst svo ósanngjarnt hvernig þetta fór allt saman. Mér finnst ég vera að gjalda fyrir mistök annarra. En það kemur ekki annað til greina en að byrja upp á nýtt.“ n „Ég var látin fara úr öllum fötun- um og standa nakin fyrir fram- an tvo kvenkyns fangaverði“ „Það var ekki annað í boði en að gera þarfir sínar og sturta sig fyrir framan alla“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.