Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Qupperneq 33
FÓLK - VIÐTAL 3310. ágúst 2018 er vissulega fullkominn en þegar mistökin eiga sér stað verður maður bara að læra af þeim.“ Sækir innblástur í söngleiki og kvikmyndatónlist Ævar lagði á dögunum lokahönd á bókina Þitt eigið tímaferðalag, sem stendur til að gefa út í vet- ur. Sögurnar í þessum bókaflokki hjá höfundinum hafa selst eins og heitar lummur á síðustu árum og stefnir allt í að sú fimmta og nýjasta verði sú umfangsmesta til þessa. Lesandinn ræður hvað gerist í bók- inni, en allar bækurnar bjóða upp á fleiri tugi mögulegra málalykta og þannig er hægt að lesa bókina aftur og aftur. Þá bætir Ævar við að Tímaferðalagið muni bjóða upp á enn fleiri málalok en venjulega og á einum stað gengur bókin í hring og verður þannig endalaus. Ævar rifjar upp viðtökurnar sem fyrsta bókin í þessum flokki fékk á sínum tíma, en hún hreppti með- al annars Bókaverðlaun barnanna árið 2015. Segir höfundurinn að þarna hafi orðið til stemning sem hann gerði sér ekki grein fyrir fyr- irfram. „Ég fór að heyra af því að systkini væru að lesa þetta saman, fjölskyldur og jafnvel vinir í frí- mínútum. Þarna er komin einhver hópstemning þar sem fólk ákveð- ur framhaldið í sameiningu,“ segir hann. „Ég segi oft við krakka að þetta séu fullkomnar bækur til að lesa með öðrum, því þá getur þú kennt hinum um ef illa fer. Ég hef líka oft hugsað að þetta séu fínar bækur fyrir fólk sem á erfitt með að velja, erfitt með að kjósa og slíkt. Þá er gaman að geta þess að léttlestr- arbókaútgáfa af Þín eigin-bókun- um kemur út um miðjan ágúst, þar sem áherslan er lögð á yngri lesendur, stærra letur og fleiri myndir.“ Aðspurður um skapandi ferlið sjálft segist Ævar oft fá innblástur eða aðstoð frá kvikmyndatónlist og söngleikjum, sem hann spilar títt í miðjum skrifum. Hann nefn- ir að tónlist úr kvikmyndum á borð við Logan, Mission: Impossible – Fallout, Moon og Swiss Army Man hafi reglulega farið í spilun undan- farið. „En síðan gerist það, þegar ég les yfir skrifin, þá hlusta ég á söngleiki,“ segir hann og nefnir þrjá lykilsöngleiki sem hann notast mik- ið við, en þeir eru Hamilton, Dear Evan Hansen og Groundhog Day- -söngleikurinn. „Ég hef meira að segja spáð í að búa til og deila lagalistum fyrir hverja bók, en á hverjum lista yrði þá tónlistin ég var að hlusta á þegar bókin var skrifuð. Þannig er hægt að fullkomna upplifunina og koma lesandanum lengra inn í heim bók- arinnar,“ segir hann sæll. Þitt eigið svið og sjónvarp Í janúar á næsta ári má sjá loka- afrakstur Ævars í að flytja sögustíl bókanna frá lesendum til áhorf- enda. Þá hefjast sýningar á Þínu eigin leikriti – Goðsögu, þar sem salurinn ræður því hvað gerist næst. Sýningar fara fram í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu og segir Ævar mark- miðið vera að búa til einstaka leik- húsupplifun. „Það var haldinn sam- lestur í vor og eftir það var handritið sett ofan í skúffu til að marínerast yfir sumarið. Ég hlakka til að kíkja á það aftur nú þegar skrifum á Tíma- ferðalaginu er lokið,“ segir hann hress. „Þú getur farið á leikritið aft- ur og aftur og færð aldrei nákvæm- lega sömu sýningu.“ Ævar segir Kúluna vera fullkom- inn stað fyrir sýningu af þessu tagi. „Það er svo mikil nánd í Kúlunni. Það er ekki langt á milli leikara og áhorfenda, sem er fullkomið þar sem áhorfendur eru hluti af sýn- ingunni því þeir ráða hvað gerist. Að því sögðu verður enginn dreg- inn upp á svið,“ segir hann en bætir þó við, ,,allavega ekki margir.“ Hitt verkefnið sem Ævar hefur glímt við er sjónvarpsþáttaröð sem byggð verður á bókinni Þín eigin þjóðsaga, sem að hans sögn verð- ur „í anda Lemony Snicket og Tim Burton.“ Þættirnir eru unnir í sam- starfi við RÚV, kvikmyndagerðar- manninn Guðna Líndal Benedikts- son, bróður Ævars, og Fenrir Films. „Góðir hlutir gerast hægt, en þetta er í vinnslu,“ segir Ævar. „Það er líka gott að það gerist hægt, því þá höfum við tíma til að virkilega vanda okkur. Þættirnir verða sex talsins og þegar áhorfendur sjá þá eru þeir rúmar 20 mínútur að lengd. Hins vegar verður búið að taka upp 50 mínútur af efni vegna þess að líkt og í bókunum og leiksýningunni munu áhorfendur ráða hvað ger- ist í hverjum þætti. Ég skrifa tvo og Guðni bróðir fjóra. Eins og við sjá- um þetta fyrir okkur er þetta barna- efni á skala sem hefur ekki verið í boði hér á landi áður. Þetta verður stórt og öðruvísi.“ Ævar bætir því við að það sé æðislegt að takast á við svona verk- efni með bróður sínum og fá um leið að kynnast betur kvikmynda- gerðarmanninum í bróður sínum og vinna með honum. Ágengara afþreyingarefni Af þaulreyndum raddleikara að vera þykir Ævari það ekki fara á milli mála að barnaefni sé orðið miklu ágengara og hraðara í dag en áður fyrr, en segir það fylgja þróun þegar streymisveitur og sjónvarps- stöðvar eru við hvert horn. „Þegar allir eru með þúsund stöðvar, þá þarftu að ná fólki í þessar sekúndur sem það er að flakka á milli. Þetta er agressífara en til dæmis teikni- myndirnar voru sem ég horfði á í æsku, en í dag þarf að alltaf að vera eitthvað til þess að ná þér strax og halda þér,“ segir hann. „Eftir að ég byrjaði að vinna við að talsetja komst ég að því að helm- ingurinn af starfinu er að öskra. Flestar teiknimyndapersónur eru ýmist að hrapa, detta eða meiða sig. Það er reyndar magnað, því maður kemur stundum sveittur út úr stúdíóinu. Ég var kannski búinn að vera öskrandi íkorni í einhverja klukkutíma og fannst eins og ég þyrfti að fara heim og leggja mig.“ Á móti segist Ævar fullkomlega skilja hvernig börnum þyki símar og spjaldtölvur ofboðslega spennandi. „Það er náttúrlega bara allt þarna,“ segir hann. „Ef þú hef- ur til dæmis áhuga á fótbolta, þá kveikirðu bara á YouTube og það er endalaust af myndböndum þar. Þegar ég var yngri og fékk lánað tölvuspil hjá vini mínum, þá þurfti strax að setja hálftímareglu og ekk- ert meira, annars hefði ég bara ver- ið í þessu stanslaust. Ég skil því vel að síminn sé spennandi.“ Ævar vill meina að höfundum beri ákveðin skylda til að „búa til bækur sem eru vonandi nógu skemmtilegar, spennandi og áhugaverðar til að, ef ekki trompa símann, allavega sýna að bækurnar séu spennandi á allt annan hátt. „Þar býrðu til þinn eigin heim, þær ýta undir ímyndunaraflið og setja allt af stað. Það er nefnilega ekkert sem jafnast á við góða bók. Nema ef vera skyldi tvær góðar bækur.“ Mikil vakning í barnamenningu Ævar hefur látið sig minnkandi lestraráhuga barna á tímum snjall- síma, samfélagsmiðla og offram- boðs á YouTube miklu varða en í fjórum lestrarátökum Ævars vís- indamanns hafa verið lesnar rúm- lega 230 þúsund bækur samtals. „Þessar tölur sýna að krakkar nenna að lesa, en það þarf að hvetja þá á réttan hátt. Vonandi hefur þetta átak leitt til þess að nýir lesendur hafa orðið til, eða jafnvel nýir höf- undar seinna meir,“ segir Ævar og tekur fram að í þjóðfélaginu hafi undanfarið verið mikil vakning hvað barnamenningu varðar. „Barnamenningarsjóðurinn var til dæmis settur aftur á laggirnar, en það að honum hafi verið slaufað er náttúrlega fáránlegt til að byrja með. Sögur – hátíðin sem haldin var í Hörpu í vor er vonandi komin til að vera og svo sér maður á metsölu- listunum í lok hvers árs að helming- ur mest seldu bókanna er barna- bækur, en þannig var það ekki fyrir nokkrum árum. Þess vegna kallar maður auðvitað á frekari umfjöllun í fjölmiðlum um barnabækur, en sú umfjöllun er varla til staðar í dag.“ Aðspurður hvort standi til að vera öflugur að lesa fyrir frum- burðinn svarar Ævar kátur. „Ég var reyndar nýlega spurður: „Hvað ætl- ar þú að gera ef strákurinn þinn hef- ur svo engan áhuga á bókum?“ og ég svaraði að það væri bara í góðu lagi,“ segir Ævar. „Það verður þá bara verkefni að vekja áhuga hans á bókum, alveg eins og ég veit að hann á eftir að fá áhuga á einhverju sem ég hef aldrei spáð í og þarf þá að kynna mér. Hann á örugglega eftir að kenna okkur báðum foreldr- unum heilan helling og hafa áhrif á okkur á ótrúlegasta máta. Ætli það endi ekki þannig að það verði lít- ill strákur í aðalhlutverki í bók eftir mig eftir eftir tvö ár?“ n „Helmingur- inn af því að „döbba“ er að öskra Myndir /Hanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.