Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 40
40 10. ágúst 2018 J ack Henry Abbott, 58 ára Bandaríkjamaður, hengdi sig í fangaklefa sínum, sunnu- daginn 10. febrúar 2002. Við sjálfsvígið notaði hann skóreimar og sængurfatnað. Abbott þessi var glæpamað- ur og rithöfundur, sonur banda- rísks hermanns og kínverskrar konu. Hann fæddist á herstöð í Michigan í Bandaríkjunum og lenti strax barn að aldri upp á kant við kennara sína. Síðar meir gerð- ist slíkt hið sama í samskiptum hans við lögin og 16 ára var hann sendur til vistar á betrunarskóla. Ávísanafals Sagan segir að Abbott hafi fyrir 18 ára aldur varið níu árum á ýmsum betrunarstofnunum í Utah-fylki. Eftir að honum var sleppt af þeirri síðustu gat hann um frjálst höfuð strokið í um hálft ár. Þá var hann gripinn glóðvolgur við að falsa ávísanir og dómurinn sem hann fékk fyrir vikið þyngdist þremur árum síðar, 1965. Þá stakk hann samfanga til bana og fékk viðbótardóm upp á þrjú til 21 árs fyrir vikið. Árið 1971 bætti Abbott um betur þega hon- um tókst að flýja úr fangelsinu og fremja bankarán í Colorado. Af- leiðingin var 19 ára dómur til við- bótar því sem fyrir var. Bréf Abbotts birt Á meðan Abbott afplánaði refs- ingu sína stóð hann í bréfaskrift- um við rithöfundinn Norman Mailer. Bréfaskriftir þeirra hófust árið 1978 en um það leyti var Mailer að skrifa The Executioner’s Song, skáldævisögu morðingja að nafni Gary Gilmore, sem þá hafði verið sendur yfir móðuna miklu fyrir glæpi sína. Mailer virðist hafa hrifist af því sem Abbott skrifaði í sínum bréf- um því hann fékk einhver þeirra birt í hinu virta bókmenntariti New York Review of Books. Það markaði síðan upphafið að rithöf- undarferli Abbotts, en fyrsta bók hans, In the Belly of the Beast, var gefin út árið 1982. Mailer skrifar bréf Árið 1980 fékk Abbott sitt reglu- lega tækifæri til að sækja um skil- orð og þegar þar var komið sögu reyndist Mailer honum haukur í horni. Mailer skrifaði skilorðs- nefndinni bréf til stuðnings Abbotts og fór um hann fögr- um orðum. Ekki aðeins, að sögn Mailers, var Abbott reiðubúinn til að hljóta frelsi heldur sagði Mailer að hann gæti tryggt fanganum trygga og vellaunaða stöðu í New York. Það varð úr að Abbott var veitt heimild til að dvelja, til reynslu, á áfangaheimili í New York og snemma í júní árið 1980 flutti hann þar inn. Blekkjandi bók Bruce nokkur Jackson, hjá Buffalo Report, fylgdist þónokkuð með þróun mála þaðan í frá – hann var ekki upprifinn. Jackson hafði sjálf- ur staðið í bréfaskriftum við fanga á dauðadeild. Einn fanganna hafði lesið In the Belly of the Beast og sagði í bréfi til Jackson: „Þetta eru dæmigerð bréf sem einhver innan fangelsismúra mundi skrifa ein- hverjum utan þeirra sem veit ekki, og mun aldrei vita, baun í bala um fangelsi.“ Umræddur fangi og einhverjir félagar hans undruðust, að sögn Jackson, velgengni bókarinnar og sögðu hana sönnun þess hve auð- velt væri að blekkja fólk sem lifði í hinum frjálsa heimi. Ástmögur í bókmenntakreðsunum Nú, þann tíma sem Abbott dvaldi á áfangaheimilinu var hann ástmög- ur fólks sem lifði og hrærðist í bók- menntakreðsum New York. Hann kom fram í Good Morning America og var aufúsugestur í fínustu veisl- unum. Fyrrnefndum Jackson fannst sem Mailer hefði í Abbott fundið sinn eigin Gilmore, sitt eigið gælu- dýr sem hann sýndi í tíma og ótíma. Abbott þurfti á þessum tíma, um mitt ár 1980, að halda sig á beinu brautinni í tvo mánuði. Það reyndist honum um megn og þegar sex vikur voru liðnar stakk hann til bana þjón að nafni Richard Adan. Adan var þó ekki bara þjónn því hann hafði einnig verið leikari og leikskáld og átti framtíðina fyrir sér. Rétt áður en hann var myrtur hafði La Mama- -leikhúsið ákveðið að taka fyrsta verk hans til sýningar. Sjálfsvorkunn og ásakanir Án málalenginga var Abbott 18 líkamsárásir er Ísraelinn Elias Abuelazam grunaður um. Árásirnar gerði hann vopnaður hnífi á tímabilinu mars 2009 til ágúst 2010 og flestar í borginni Flint í Michigan í Bandaríkjunum, eða nágrenni hennar. Fimm manns létust af sárum sínum en fórnarlömbin áttu það sam- merkt að vera bandarískir karlmenn af afrískum uppruna og frekar væskilslegir og litlir fyrir menn að sjá. Abuelazam fékk lífstíðardóm, án möguleika á reynslulausn, í júní árið 2012. MORÐINGJA HAMPAÐ n Abbott virtist fyrirmunað að skynja eigin sök n Mærður af Norman Mailer n Elskaður af bókmenntaeítu New York SAKAMÁL Norman Mailer Rithöf- undurinn tók Abbott upp á arma sína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.