Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 30
Miðbærinn 17. águst 2018KYNNINGARBLAÐ
Reykjavik Raincoats var stofn-að árið 2014, en kveikjan var votviðrasamt sumar í
höfuðborginni og árangurslaus leit
tveggja vinahjóna að tímalaus-
um regnkápum fyrir bæði kynin.
Klassísk vörulína fyrirtækisins
hefur fengið góðar viðtökur en
regnflíkurnar eru hannaðar með
það fyrir augum að endast og nýtast í
hvaða veðri sem er.
„Hugmyndin var að framleiða hina
fullkomnu „unisex“ regnkápu fyrir bæði
kynin sem væri smart, þægileg, tíma-
laus og hefði umfram allt mikið nota-
gildi. Eigandinn tæki þannig rigningar-
dögum fagnandi, enda
gæfist þá gott tækifæri
til að klæðast nýju
regnkápunni. Reyndar eru
flíkurnar okkar þannig að
þær eru flottar hvernig
sem viðrar og við sjálf og
okkar viðskiptavinir notum þær
sem skjólflíkur, jafnvel þótt hann
hangi þurr. Í rauninni er það þannig
að þegar maður hefur eignast góða
regnkápu frá Reykjavik Raincoats verð-
ur rigningin algjört aukaatriði,“ segir
Grímkell Sigurþórsson, einn eigenda
Reykjavik Raincoats.
Hönnuðir lögðust í rannsóknar- og
undirbúningsvinnu og stúderuðu
hvernig regnkápur voru fram-
leiddar hér í gamla daga og
hvernig sniðin voru. Markmiðið
var að hanna hina fullkomnu
regnkápu, sem myndi henta
fyrir bæði dömur og herra og
yrði framleidd í stærðum sam-
kvæmt því.
„Kápan átti að vera einföld í snið-
um, en umfram allt þurfti hún að vera
endingargóð og 100% vatnsheld. Við
vildum búa til regnflík sem myndi henta
sem yfirhöfn, bæði hversdags og yfir
betri klæðnað, jakkaföt eða kjól. Það tók
okkur sex mánuði að finna rétta fram-
leiðandann, við vildum að hann yrði í
Evrópu í ekki of mikilli fjarlægð, og
gæti handsaumað regnkápur
í hæsta gæðaflokki eftir
okkar hugmyndum.“
Fyrstu regnkápurnar
komu sumarið 2014 og
fengu frábærar við-
tökur, þar sem var farið
varlega af stað í framleiðslu
voru þær iðulega uppseldar fyrstu
mánuðina. „Við höfum svo smátt og
smátt aukið framleiðsluna, enda hefur
salan vaxið jafnt og þétt allt frá byrjun.
Það er ekki hægt að búa á Íslandi án
þess að eiga góða regnkápu, það er
bara staðreynd.“
„Íslendingar hafa verið mjög dug-
legir að kaupa regnkápurnar frá
okkur en líka erlendir ferða-
menn. Oft panta þeir sér flík
í gegnum vefsíðuna okkar
eftir að þeir eru komnir
aftur heim til sín, en við
sendum vöruna um allan
heim.
Við erum að sjálfsögðu alltaf
að spá og spekúlera í nýjum
hlutum og höfum verið að kynna
bæði ný snið og ný efni undanfarið.“
Kápurnar fást í verslun Reykjavik
Raincoats að Hverfisgötu 82 í hjarta
borgarinnar þar sem rigningardagar
skapa rétta andrúmsloftið fyrir klass-
íska hönnun. Þar getur þú mátað
kápurnar og spjallað við hönnuði. Þegar
rétta regnkápan er fundin þá muntu
óska þess að rigni alla daga. Síminn
er 571-1177 og netfang info@reykja-
vikraincoats.com. Kápurnar fást einnig í
verslunum Epal Laugavegi og Hörpu og
í flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Heimasíða: www.reykjavikra-
incoats.com.
Kápurnar fást í góðu litaúrvali
og eru framleiddar úr hágæða-
blöndu af bómull og PVC-vín-
ilgúmmíi, sem er sýruþolið og
einkar slitsterkt efni sem harðn-
ar ekki eða springur með árun-
um. Kápurnar eru með tvöföldum
saumi og sérstakri þéttivörn að innan-
verðu til að auka vatnsvörnina.
Rigningin er aukaatriði þegar
þú klæðist regnkápu frá
Reykjavik Raincoats„Ef þér líkar ekki
veðrið, bíddu í
eina mínútu,“ er vin-
sæll frasi sem lýsir
vel íslenska veður-
farinu, í regnkápu frá
Reykjavik Raincoats
ertu vel klædd/ur
fyrir hvaða veður
sem er.