Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 24
24 17. ágúst 2018FRÉTTIR
Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Mikið úrval af
stillanlegum
rúmum
Gerið gæða- og verðsamanbuð
GRIPU
OG HURFU
n Fimmtán mínútna frægðin n Brot af því besta
Listamaðurinn Andy Warhol spáði því á sjöunda áratugnum að allir í
framtíðinni yrðu frægir í fimmtán mínútur. Þaðan á orðatiltækið Fimmtán
mínútna frægð uppruna sinn, en eins og dæmin hér sýna er mismikil frægð sem
fylgt getur hverjum og einum – ekki síst á tímum samfélagsmiðla og „meme-
blætis“. Sum afrek má líta á með stoltum augun, á meðan annað kennir okkur
betur á listina að hlæja með frekar en að viðkomandi. Hér er brot af því besta.
tomas@dv.is
„Mérbalalíðurágætlegavelbala“ Stundum er þunn lína á milli
mismælis og stressviðbragða, en á rétta augnablikinu og sérstaklega á meðan upp-
tökuvélar rúlla getur gull orðið til. Vilhjálmur Örn Hallgrímsson, þekktur sem Villi Hall,
er án efa eftirminnilegasti þátttakandinn úr Bandinu hans Bubba. Ástæðuna má rekja
til óborganlegs svars í beinu framhaldi af því að eigna sér sviðið í þættinum, þegar kom
að því að svara hinni einföldu spurningu: „Jæja Villi, hvernig líður þér?“ Honum leið þá
bara ágætlega vel bara, en svarið hans Villa hefur tileinkað sér sterkan sess í íslenskum
„meme-kúltúr“. Enn þann dag í dag bíðum við spennt eftir sambærilegu atviki, frá
honum eða öðrum.
Ryan Gosling eða Júlíus? Þegar Ryan Gosling mætti til Íslands árið
2013 voru aðdáendur hans trylltir yfir tilhugsuninni. Ýmsir hófu ítarlega leit, með von
um að koma auga á hann eða eiginkonu hans, Evu Mendes, og lá við að Íslendingar
væru farnir að keppast um athygli stórleikarans. Einn Íslendingur taldi sér trú um að
hafa óvart keyrt á bifreið þar sem leikarinn sat við stýrið á mörkum Sæbrautar og
Kringlumýrarbrautar. Viðkomandi sem átti að hafa klesst á bíl Gosling birti stöðu-
færslu á Facebook og var sagður orðlaus við það eitt að sjá leikarann í eigin persónu.
Frásögnin var ekki lengi að rata í íslenska fjölmiðla, en síðar kom í ljós að maður að
nafni Júlíus Pétur hafði verið tekinn í misgripum fyrir leikarann þegar hann lenti sjálfur
í aftanákeyrslu. Meira kom ekki úr sögunni, en Júlíus var heitasta umræðan þann dag
fyrir að líkjast einum heitasta leikara sem fyrirfinnst.
Tell Me Telma Íslenski dúettinn
Einar Ágúst & Telma hóf göngu sína árið
2000 og keppti fyrir hönd Íslands með
laginu Tell Me! Tvíeykið lenti í 12. sæti af
24 með 45 stig að talsins. Einar Ágúst er
alkunnugur ýmsum og hafði á þeim tíma
verið áberandi með hljómsveitinni Skíta-
móral. Telma Ágústsdóttir hefur hins vegar
sagt skilið við sviðsljósið í kjölfar lagsins og
keppninnar og hvarf söngkonan sama og
sporlaust eftir aldamótin. Seinna meir vann
hún með Rokkkór Íslands en vekur þetta þá
að sjálfsögðu upp spurninguna um hvenær
stendur til að eiga „kombakkið“. Þangað til
að sá dagur rennur mun hún alltaf eiga sínar
fimmtán mínútur með lagi sem heyrðist
títt á sínum tíma en lítið sem ekkert síðan
þá. Sjálfsagt eru einhverjir Eurovision-sér-
fræðingar ánægðir með það.
Réttur maður á röngum Laugavegi Bandaríkjamaðurinn Noel
Santillan átti örlagaríka ferð til Íslands árið 2016 sem kom honum í heimspressuna. Hann
ákvað að skella sér á klakann og hafði bókað herbergi á Hótel Fróni á Laugavegi 22A. Eitthvað
þótti honum það sérstakt þá þegar hann keyrði í fimm klukkustundir, langt út fyrir bæjarmörk-
in. Að lokum bankaði hann upp á hjá Sigurlínu nokkurri Karlsdóttur, en hún býr á Laugarvegi
(með R-i) á Siglufirði og spurði hvar Hótel Frón væri. Hún taldi þetta fyrst vera eitthvert grín
en Noel lét engu að síður vel um sig fara á Hótel Siglufirði. Í viðtali við BBC sagðist hann hafa
slegið inn rangt heimilisfang í GPS-tækið, en tók hann bara vel í aukarúntinn um landsbyggð-
ina. Noel átti hins vegar eftir að lenda í fleiri ævintýrum og villtist aftur áður en ferðalaginu
lauk. Þá var hann á leiðinni í Bláa lónið og studdist við sama GPS-tæki og leitt hafði hann á
rangan stað. Þetta reyndist vera ákveðin fýluferð en þegar hann kom á staðinn var Bláa lónið
hvergi sýnilegt, aðeins skrifstofuhúsnæði og fundarsalur. Kemur fyrir besta fólk.
augnablikið
App búið Fyrirtækið Plain Vanilla tjaldaði miklu til með gífurlegri þátttöku sem
fylgdi spurningarappinu QuizUp, þar sem landinn og fleiri kepptust um að skora hver
á annan árið 2013. Í kjölfar velgengninnar voru komin stór plön á teikniborðið, fullstór
í raun, og þar á meðal áætlanir um bandarískan sjónvarpsþátt byggðum á appinu.
Plönin fóru suður og var fljótlega sagan öll hjá fyrirtækinu, en eflaust eru enn einhverjir
Íslendingar í dag sem hreyknir eru af tölunum sem þeir náðu á sérsviðum sínum í spurn-
ingarappinu. Góðar minningar.