Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 33
Miðbærinn 17. águst 2018 KYNNINGARBLAÐ
Á Geirsgötu 8 við Höfnina í Reykjavík hvílir eitt af leyndar-málum miðborgarinnar:
Sægreifinn, heimilislegur veitinga-
staður sem byggir á persónu-
legri þjónustu og gömlum
hefðum.
„Staðurinn var opn-
aður árið 2003 af
Kjartani Halldórssyni og
Herði Guðmannssyni
og byrjuðu þeir þar með
flotta fiskbúð og ætluðu
aldrei í veitingarekstur,“
segir Elísabet Jean Skúla-
dóttir framkvæmdastjóri sem á
staðinn ásamt manni sínum Daða
Steini Sigurðssyni.
Kjartan og Hörður vildu halda í
gamlar hefðir, síðan fóru að koma til
þeirra ferðamenn sem höfðu farið
í sjóstöng og báðu um að fiskurinn
yrði flakaður og eldaður. „Þannig að
Kjartan fór og keypti grill, setti út á
pall og grillaði fyrir fólkið gegn vægu
gjaldi. Síðan fékk Kjartan þau tilmæli
að hann mætti þetta ekki, þá færði
hann grillið inn og fór að kaupa fisk
sjálfur og grilla.
Í framhaldinu var hann spurður
hvort hann væri með súpu og hann
fór þá að bjóða upp á hana. Síðan
vatt þetta upp á sig smátt og smátt.
Þegar ég byrjaði hér árið 2005, þá
vorum við tvær á vakt, en í dag erum
við átta. Þeir félagar, Kjartan og
Hörður, voru alveg einstakir og vildu
gera allt sjálfir. Sem dæmi má nefna
að þeir keyrðu alltaf sjálfir í Vífilfell
að sækja gosið, þar til ég byrj-
aði hér og benti þeim á að
hægt væri að panta og fá
sent.“
Elísabet og Daði
keyptu staðinn árið 2011
af Kjartani, en Hörður
hafði þá nokkru áður
selt sinn hlut til Kjartans.
„Kjartan lést fyrir þremur
árum og Hörður í fyrra. Ég
lofaði Kjartani á dánarbeðinum að
ég myndi ekki breyta neinu, ég hef
bætt við, en engu breytt og ég
mun standa við það.“
Humarsúpan
aðalsmerki
Sægreifans
Á Sægreifan-
um er eins og
nafnið gefur
til kynna boðið
upp á fiskrétti.
„Humarsúpan
er okkar að-
aleinkenni, hún
hefur breyst í
gegnum tíðina og er
í dag bæði glúten- og
laktósafrí. Hrefnan er líka
vinsæl, en alltaf umdeild. Við
erum með grilluð fiskspjót og þau
eru líka mjög vinsæl, við erum með
sjö tegundir og á hverju spjóti eru um
300 grömm. Einnig er hægt að fá
hliðardiska: kartöflur, grænmetisbuff
og grillað grænmeti á spjóti. Dess-
ertinn búum við líka til sjálf, þetta
er skyrdessert með súkkulaðikexi,
hafrakexi og sultu ofan á.
Hvað gamlar hefðir varðar þá
bjóðum við upp á hákarl og frá lok
september út maí erum við með
siginn fisk annan hvern þriðjudag í
mánuði með öllu tilheyrandi; selspik,
hamsatólg, kartöflur og svo grjóna-
graut í eftirrétt eða Steingrím eins og
gamli kallaði hann. Fyrsta
laugardag hvers mánað-
ar bjóðum við svo upp
á skötu og í desember
bjóðum við hana í tíu
daga fyrir jól.
Mörgum hefðum
fer fækkandi þar sem
eldri kynslóðir hverfa
og þær yngri halda ekki
í hefðirnar. Ég hafði til
dæmis aldrei smakkað skötu
né siginn fisk fyrr en ég byrjaði hér.
Ég sé ekki eftir því að hafa smakkað
því þetta er lostæti og ættu allir að
prófa.
Ég er búin að læra margt síðan
ég byrjaði hér vegna þess að
hér hefur svo margt eldra
fólk setið og spjallað
við Kjartan og Hörð.
Þau eru uppfull af
visku og ótrúlega
gaman að hlusta
á samræður
þeirra,“ segir
Elísabet Jean.
Sægreifinn
leitast við að
halda verðinu
niðri og við allra
hæfi og meðal
annars má fá þriggja
rétta matseðil á 4.330
krónur.
Heimilislegt andrúmsloft þar
sem ekkert er í stíl
Staðurinn er á tveimur hæðum,
efri hæðinni var bætt við árið
2005, upphaflega var lokað á
milli salanna tveggja á neðri
hæðinni og gengið upp á
efri hæðina hinum megin við
húsið. Nú er allt opið á milli,
efri hæðin tekur 25 manns
í sæti og neðri hæðin álíka
marga. Þegar stærri hópur
kemur þá getur hann setið sér
á efri hæðinni og einstaklingar á
þeirri neðri (eða öfugt). Einnig eru
sæti úti beggja vegna hússins.
Staðurinn sjálfur er einstak-
ur, eins og eigendur hans.
Þar ríkir góð stemning og
hlýlegt og heimilislegt
andrúmsloft þar sem úir
og grúir af af alls konar
innanstokksmunum,
sem minna á fiskinn,
sjóinn og nálægðina við
hann. „Kjartan fór oft í
Hjálpræðisherinn og kom til
baka með alls konar dót, einnig
höfum við fengið gjafir frá viðskipta-
vinum og vinum, ég hef líka komið hing-
að með dót sem amma mín og afi áttu.
Hér er ekkert í stíl, en heimilislegt.“
Á staðnum er barnaherbergi, þar
sem hvorki er sjónvarp né önnur raf-
tæki og ekki er hægt að komast í wifi
á Sægreifanum. Elísabet segir nokkra
reka upp stór augu, en almennt séu
gestir mjög ánægðir með þetta fyrir-
komulag og tala bara saman um leið
og þeir njóta veitinganna.
„Við erum með dásamlegt starfsfólk,
hér er sterkur og stór kjarni sem hefur
starfað hér í mörg ár.“
Sægreifinn er opinn alla daga frá kl.
11.30–22.
Hann er að Geirsgötu 8, 101 Reykja-
vík, síminn er 553-1500 og netfangið
er saebaron8@gmail.com.
Heimasíða Sægreifans.
SÆGREIFINN GEIRSGÖTU:
Humarsúpa og fiskréttir – hlýlegt
og heimilislegt andrúmsloft