Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 6
6 17. ágúst 2018FRÉTTIR
V
ísindakirkjan hefur verið
eitt af umdeildustu trú-
félögum heims undan-
farna áratugi og í mörgum
löndum hefur hún ekki heimild
til að starfa sem slíkt. Telja margir
að um hreinan heilaþvott og fjár-
plógsstarfsemi sé að ræða, þaul-
skipulagt af æðstu mönnum
kirkjunnar. Lítið hefur farið fyrir
Vísindakirkjunni á Íslandi undan-
farin ár. Nú kann það að vera að
breytast því íbúar á Borgarfirði
eystra urðu varir við dularfullan
mann sem reyndi að selja þeim
kennisetningar kirkjunnar.
Gekk milli húsa í þorpinu
„Ég var að vinna og mátti lítið vera
að því að tala við hann þannig að
ég beit hann af mér með þumb-
araskap og almennri ókurteisi,“
segir Björgvin Ólafsson frá Borgar-
firði eystra og hlær.
„Maðurinn kynnti sig ekki
en spurði mig eitthvað á þessa
leið: Má ég tala við þig af heil-
um hug? En ég afþakkaði það.
Þá reyndi hann að kynna mér
þessa bók, Dianetics, en hann
kynnti sig ekki sem sendiboða
Vísindakirkjunnar.“
Maðurinn var Íslendingur, milli
fimmtugs og sextugs, og einn á
ferð. Gekk hann um þorpið, bank-
aði upp á hjá fólki og ræddi við
íbúa um þessa bók, Dianetics.
Suma stoppaði hann úti á götu til
að ræða um þetta. Eftir því sem
DV kemst næst gekk trúboðið ekki
sérlega vel í þorpinu sem telur að-
eins um eitt hundrað manns.
Bás á Austurstræti
Dianetics: The Modern Science of
Mental Health er öndvegisrit Vís-
indakirkjunnar, skrifað af stofn-
andanum L. Ron Hubbard árið
1950. Hubbard var vel þekktur fyrir
vísindaskáldskap sem hann skrif-
aði fyrir svokölluð pulp-tímarit á
fjórða og fimmta áratugnum líkt
og Isaac Asimov, H.P. Lovecraft
og fleiri. Dianetics var uppruna-
lega hugsuð sem sjálfshjálparbók
en seinna stofnaði hann trúfélag í
kringum hana.
Grundvöllur trúarinnar er sá að
menn séu ódauðlegar verur sem
nefnast þetur og ferðast frá líkama
til líkama. Flestir hafi gleymt til-
gangi sínum og iðkun trúarinnar
hjálpi fólki að hreinsa hugann og
gleyma slæmum minningum. Í
kirkjunni geta safnaðarmeðlimir
unnið sig upp andlegan metorða-
stiga með endurskoðun sem fram-
kvæmd er með raf-
tæki með tveimur
pinnum. Vísinda-
samfélagið hefur
gagnrýnt þessar
aðferðir kirkjunn-
ar og segja hana
eiga enga stoð í
raunveruleikan-
um. Þær minni
fremur á þann
vísindaskáldskap
sem Hubbard
skrifaði í pulp-
blöðin.
Miklar kvaðir
eru lagðar á safn-
aðarmeðlimi og
þeir sem segja sig úr söfnuðinum
eru útskúfaðir af þeim sem sitja
eftir. Heilu fjölskyldurnar hafa
splundrast vegna þessa. Forsvars-
menn kirkjunnar ráðast einnig
mjög harkalega gegn þeim sem
gagnrýna hana, sérstaklega fyrr-
verandi meðlimum. Víða er
kirkjan ekki viðurkennd sem trú-
félag, til dæmis í Þýskalandi þar
sem hún hefur verið beinlínis talin
hættuleg fjárplógsstarfsemi. For-
kólfar Vísindakirkjunnar, David
Miscavige og fleiri, hafa einmitt
efnast mjög í gegnum tíðina, sér-
staklega vegna skatta undanþága.
Frægar Hollywood-stjörnur á borð
við Tom Cruise,
John Travolta og
Juliette Lewis eru
iðkandi meðlim-
ir.
„Ef ég hefði vit-
að að hann væri
frá Vísindakirkj-
unni þá hefði ég
spurt hann hvern-
ig Tom Cruise
hefði það,“ segir
Björgvin kíminn.
„En ég kveikti ekk-
ert á því. Þegar ég
var ungur mað-
ur var þetta mjög
vinsælt hérna á Ís-
landi. Fólk úr kirkjunni var með
bás á Austurstræti þar sem það
var með spurningalista fyrir fólk
og svo var verið að láta fólk taka
þessi próf.“
Átján ára brandari
Vísindakirkjan er ekki skráð trú-
félag á Íslandi en til er áhuga-
mannafélag sem ber nafn hennar,
stofnað árið 2000. Samkvæmt
stofngögnum þess er tilgangur
félagsins að „koma á opinberum
samskiptum við alheimshreyfingu
vísindakirkjunnar og breiða út
boðskap hennar.“ Þegar DV hafði
samband fengust hins vegar þau
svör að félagið hefði aldrei haft
neina starfsemi og aldrei skilað
neinum ársreikningum.
Gunnar Már Karlsson, lyfja-
fræðingur og einn af fimm stofn-
endum félagsins, segist ekkert vita
um manninn dularfulla á Borg-
arfirði eystra þegar DV leitaði til
hans. Hann segir:
„Þetta félag okkar hefur verið
stofnað sem eitthvert grín í gamla
daga. Ég man ekki einu sinni eft-
ir þessu.“
Annar þeirra, Arnór Geir Jóns-
son, sagði í viðtali við DV árið 2008
að hann væri ekki trúaður á boð-
skap Vísindakirkjunnar en myndi
fagna komu hennar ef svo bæri
undir. „Þegar það var rætt að færa
flugvöllinn úr Vatnsmýrinni fannst
mér og nokkrum félögum kjörið
að stofna Vísindakirkjuna í þeim
tilgangi að sækja um að reisa stórt
félagsheimili fyrir kirkjuna. Þetta
er nú lengsti brandari sem við höf-
um haldið gangandi,“ sagði Arnór.
Samkvæmt bæklingum sem
Vísindakirkjan hefur gefið út hef-
ur hún starfsemi á Íslandi. Næsta
musteri hennar er hins vegar langt
í burtu, í borginni Birmingham í
Bretlandi. Hvort við fáum að sjá
meira af útsendurum Vísinda-
kirkjunnar á Íslandi á komandi
árum verður að koma í ljós. n
Vísindakirkjan herjar á Borgfirðinga:
„Beit hann af mér með þumb-
araskap og almennri ókurteisi“
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
M
Y
N
D
B
O
R
G
A
R
FJ
O
R
D
U
R
EY
S
TR
I.I
S
Jóhann keyrði aftan á bíl og
tognaði á hálsi.
Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur.
Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar.