Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Síða 6
6 17. ágúst 2018FRÉTTIR V ísindakirkjan hefur verið eitt af umdeildustu trú- félögum heims undan- farna áratugi og í mörgum löndum hefur hún ekki heimild til að starfa sem slíkt. Telja margir að um hreinan heilaþvott og fjár- plógsstarfsemi sé að ræða, þaul- skipulagt af æðstu mönnum kirkjunnar. Lítið hefur farið fyrir Vísindakirkjunni á Íslandi undan- farin ár. Nú kann það að vera að breytast því íbúar á Borgarfirði eystra urðu varir við dularfullan mann sem reyndi að selja þeim kennisetningar kirkjunnar. Gekk milli húsa í þorpinu „Ég var að vinna og mátti lítið vera að því að tala við hann þannig að ég beit hann af mér með þumb- araskap og almennri ókurteisi,“ segir Björgvin Ólafsson frá Borgar- firði eystra og hlær. „Maðurinn kynnti sig ekki en spurði mig eitthvað á þessa leið: Má ég tala við þig af heil- um hug? En ég afþakkaði það. Þá reyndi hann að kynna mér þessa bók, Dianetics, en hann kynnti sig ekki sem sendiboða Vísindakirkjunnar.“ Maðurinn var Íslendingur, milli fimmtugs og sextugs, og einn á ferð. Gekk hann um þorpið, bank- aði upp á hjá fólki og ræddi við íbúa um þessa bók, Dianetics. Suma stoppaði hann úti á götu til að ræða um þetta. Eftir því sem DV kemst næst gekk trúboðið ekki sérlega vel í þorpinu sem telur að- eins um eitt hundrað manns. Bás á Austurstræti Dianetics: The Modern Science of Mental Health er öndvegisrit Vís- indakirkjunnar, skrifað af stofn- andanum L. Ron Hubbard árið 1950. Hubbard var vel þekktur fyrir vísindaskáldskap sem hann skrif- aði fyrir svokölluð pulp-tímarit á fjórða og fimmta áratugnum líkt og Isaac Asimov, H.P. Lovecraft og fleiri. Dianetics var uppruna- lega hugsuð sem sjálfshjálparbók en seinna stofnaði hann trúfélag í kringum hana. Grundvöllur trúarinnar er sá að menn séu ódauðlegar verur sem nefnast þetur og ferðast frá líkama til líkama. Flestir hafi gleymt til- gangi sínum og iðkun trúarinnar hjálpi fólki að hreinsa hugann og gleyma slæmum minningum. Í kirkjunni geta safnaðarmeðlimir unnið sig upp andlegan metorða- stiga með endurskoðun sem fram- kvæmd er með raf- tæki með tveimur pinnum. Vísinda- samfélagið hefur gagnrýnt þessar aðferðir kirkjunn- ar og segja hana eiga enga stoð í raunveruleikan- um. Þær minni fremur á þann vísindaskáldskap sem Hubbard skrifaði í pulp- blöðin. Miklar kvaðir eru lagðar á safn- aðarmeðlimi og þeir sem segja sig úr söfnuðinum eru útskúfaðir af þeim sem sitja eftir. Heilu fjölskyldurnar hafa splundrast vegna þessa. Forsvars- menn kirkjunnar ráðast einnig mjög harkalega gegn þeim sem gagnrýna hana, sérstaklega fyrr- verandi meðlimum. Víða er kirkjan ekki viðurkennd sem trú- félag, til dæmis í Þýskalandi þar sem hún hefur verið beinlínis talin hættuleg fjárplógsstarfsemi. For- kólfar Vísindakirkjunnar, David Miscavige og fleiri, hafa einmitt efnast mjög í gegnum tíðina, sér- staklega vegna skatta undanþága. Frægar Hollywood-stjörnur á borð við Tom Cruise, John Travolta og Juliette Lewis eru iðkandi meðlim- ir. „Ef ég hefði vit- að að hann væri frá Vísindakirkj- unni þá hefði ég spurt hann hvern- ig Tom Cruise hefði það,“ segir Björgvin kíminn. „En ég kveikti ekk- ert á því. Þegar ég var ungur mað- ur var þetta mjög vinsælt hérna á Ís- landi. Fólk úr kirkjunni var með bás á Austurstræti þar sem það var með spurningalista fyrir fólk og svo var verið að láta fólk taka þessi próf.“ Átján ára brandari Vísindakirkjan er ekki skráð trú- félag á Íslandi en til er áhuga- mannafélag sem ber nafn hennar, stofnað árið 2000. Samkvæmt stofngögnum þess er tilgangur félagsins að „koma á opinberum samskiptum við alheimshreyfingu vísindakirkjunnar og breiða út boðskap hennar.“ Þegar DV hafði samband fengust hins vegar þau svör að félagið hefði aldrei haft neina starfsemi og aldrei skilað neinum ársreikningum. Gunnar Már Karlsson, lyfja- fræðingur og einn af fimm stofn- endum félagsins, segist ekkert vita um manninn dularfulla á Borg- arfirði eystra þegar DV leitaði til hans. Hann segir: „Þetta félag okkar hefur verið stofnað sem eitthvert grín í gamla daga. Ég man ekki einu sinni eft- ir þessu.“ Annar þeirra, Arnór Geir Jóns- son, sagði í viðtali við DV árið 2008 að hann væri ekki trúaður á boð- skap Vísindakirkjunnar en myndi fagna komu hennar ef svo bæri undir. „Þegar það var rætt að færa flugvöllinn úr Vatnsmýrinni fannst mér og nokkrum félögum kjörið að stofna Vísindakirkjuna í þeim tilgangi að sækja um að reisa stórt félagsheimili fyrir kirkjuna. Þetta er nú lengsti brandari sem við höf- um haldið gangandi,“ sagði Arnór. Samkvæmt bæklingum sem Vísindakirkjan hefur gefið út hef- ur hún starfsemi á Íslandi. Næsta musteri hennar er hins vegar langt í burtu, í borginni Birmingham í Bretlandi. Hvort við fáum að sjá meira af útsendurum Vísinda- kirkjunnar á Íslandi á komandi árum verður að koma í ljós. n Vísindakirkjan herjar á Borgfirðinga: „Beit hann af mér með þumb- araskap og almennri ókurteisi“ Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is M Y N D B O R G A R FJ O R D U R EY S TR I.I S Jóhann keyrði aftan á bíl og tognaði á hálsi. Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur. Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.