Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 10
10 17. ágúst 2018FRÉTTIR Viltu kaupa fasteign á spáni ? masainternational.is / S. 555 0366 - Jón Bjarni & Jónas Masa international býður þér í skoðunarferð til Costa blanCa í ágúst á 39.900 kr. þar seM drauMaeignina þína gæti Verið að finna félagsins við ríkissjóð segir hann að fyrirtækið skuldi aðeins ör- fáar milljónir. Vekur það furðu hjá blaðamönnum hvernig svör eiganda félagsins og stjórnarfor- manns félagsins um skuldastöðu fyrirtækisins séu svo hróplega í mótsögn við hvort annað. Virð- ist sem Sigurður í starfi sínu sem stjórnarformaður viti ekki hver heildarskuldarstaða fyrirtækisins sé. Einnig segir Hilmar Ágúst við blaðamenn að fyrirtækið væri í samningaviðræðum við „stóra að- ila í Evrópu“ sem væru að koma með fjármagn inn í félagið. Hafi vinna staðið í nokkra mánuði við að ræða við það félag og ef samn- ingar tækjust mundi ACE Hand- ling hefja aftur starfsemi á fullu á Keflavíkurflugvelli, en ACE Hand- ling hætti starfsemi þar eftir að flugfélög hættu að eiga viðskipti við félagið og var því ekki rekstr- argrundvöllur til staðar lengur. Sigurður hafði hins vegar sagt við blaðamenn að vinna væri hafin við að leggja niður ACE Handling og hætta starfsemi félagsins. Virð- ist sem einhver samskiptavanda- mál séu á milli stjórnarformanns fyrirtækisins og eiganda félagsins, þar sem þeir virðast fara með fé- lagið í tvær mismunandi áttir. Öryggisstjóri ACE FBO vinnur í skiptivinnu Dan Sommer er ekki bara prestur hjá Postulakirkjunni í flugskýli eitt, heldur er hann einnig öryggis- stjóri ACE FBO. Það félag sérhæf- ir sig í flugþjónustu fyrir einka- flugvélar á Reykjavíkurflugvelli. Í samtali við DV viðurkennir hann að öryggismálum hjá fyrirtækinu væri ábótavant og mikið vantaði upp á að lagalegar kröfur sem sett- ar eru á fyrirtækið stæðust. Þegar Dan var spurður um hvort hann fengi greitt fyrir störf sín sem öryggisstjóri fyrirtækisins sagði hann að hann væri ekki á launaskrá. Í stað þess að fyrirtækið greiði honum laun styrki ACE FBO Postulakirkjuna og leyfði honum að hafa afnot að hús- næðinu til að hafa kapellu í flugskýli 1. Samkvæmt skattalögum er óleyfi- legt að greiða ekki starfsmanni beint laun fyrir vinnu sína og er ekki leyfi- legt að greiða trúfélagi fyrir vinnu starfsmanns. Með aðgang að haftasvæði og myndavélum Það að Sigurður Ingi hafi aðstöðu í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli er ekki það alvarlegasta að mati þeirra starfsmanna sem DV ræddi við í tengslum við þetta mál. Held- ur það að Sigurður komist inn á haftasvæðið á Keflavíkurflugvelli og geti athafnað sig þar fyrir ACE Handling. ACE Handling þjón- ustar aðeins eitt flugfélag, hið svissneska Edelweiss, yfirleitt síð- degis á föstudögum. Til að geta starfað á haftasvæði verður fólk að standast bakgrunnsskoðun hjá Ríkislögreglustjóra og þá skoðun stenst Sigurður vitaskuld ekki miðað við hans brotasögu. Sigurður hefur hins vegar feng- ið að fara inn á svæðið á svoköll- uðum gestapassa sem flug- verndarstjóri fyrirtækisins sér um að útvega. Þeir sem sjá um að út- vega slíka passa eru ábyrgir fyrir gestinum og verða að fylgjast með honum í þann afmarkaða tíma sem passinn gildir. Ekkert fast haftasvæði er á Reykjavíkurflug- velli nema þann tíma sem milli- landaflug er þar í gangi, en félög Hilmars sjá til dæmis um þjónustu við einkaflugvélar á vellinum. Starfsmaður á Reykjavíkurflug- velli hefur töluverðar áhyggjur af umsvifum Sigurðar þar. „Hann hefur aðgang að mynda- vélakerfi sem hann hefur verið að setja upp hérna á vellinum og fólk setur spurningarmerki við allt sem er hér í gangi í kringum hann, vegna brotasögu hans. Hérna í skýlunum eru tæki metin á mörg hundruð milljónir króna og fólki finnst þetta ekki viðeigandi. Hann kemur og fer eins og hann lystir, oft seint á kvöldin.“ Börn skírð í skýli 1 Dan Sommer og Sigurður Ingi eiga sér langa sögu að baki eins og greint verður betur frá hér síðar. En Sommer er prestur sem hefur starfað sem lífvörður Sigurðar. Þrjú ný félög, sem öll tengjast Sommer hafa bæst við í fyrirtækjaflóruna í skýli 1 og eitt þeirra er áður nefnd Postulakirkja – Beth-Shekhinah. Skýlið er ekki aðeins skrifstofa eða póstkassi fyrir kirkjuna því þar eru haldnar trúarsamkomur, innan um tól og tæki til flugs. Annar starfsmaður á flugvellin- um sem einnig hefur áhyggjur af ástandinu segir: „Það er fólk að mæta í skýlið, prúðbúið, til að láta skíra börnin sín.“ Postulakirkjan fer heldur ekki leynt með sínar samkomur. Mánu- daginn 13. ágúst var „kyrrðarbæn og íhugunarsamkoma í skýli 1“ auglýst á Facebook-síðu hennar. Einnig er þangað komið ferða- þjónustufyrirtækið Northern Tours og hjálparsamtökin 4Crisis Relief. Samkvæmt heimasíðu sér- hæfa þau sig í aðstoð við fórnar- lömb mannrána sem kljást við áfallastreituröskun. Blaðamenn DV fengu að sjá „kapelluna“ sem er í fremur litlu en ílöngu herbergi við hlið skrif- stofu Sommer. Það fyrsta sem vakti athygli blaðamanna var beddi í miðju herberginu, sem Sommer gekk frá og setti í skáp. Líkt og fyrr segir þá virðist söfnuð- urinn byggður á samkrulli kristni og austrænar dulspeki. Það sást glögglega á því að á hillu einni var stytta af Búdda við hlið kross. Af veggspjöldum að dæma þá stund- ar söfnuðurinn nálarstungur og árunudd, svokallað reiki. Það kann að skýra beddann. Þó mátti sjá merki um kristinn sið; innst í herberginu var altari þar sem opin bók lá. Það var þó ekki Biblían og könnuðust blaða- menn ekki við uppruna hennar. Við hliðina á bókinni var skál með oblátum. Blaðamaður sá bunka af blöð- um í kapellunni og tók eitt eintak. Blaðið reyndist lýsing á „hraðheil- un fyrir streitu og kvíða“ í sjö skref- um. Þau hljóða svo: 1. GV-24 Third eye/Spiritual Point. 2. GB-20Gates of Consciousness. 3. LU-1Centralpalace/YinYangHouse. 4. K-27 Elegant Mansion/DeepBreath. 5. CV-17CenteringPoint/Sea of Tranquility. 6. LI-4HeGu/JoingValley. 7. PC-6InnerGate.“ Blaðamenn töldu í það minnsta tólf gráður á veggjum skrifstof- unnar, en þær flestar virtust eiga uppruna sinn úr bréfaskólum. En hvernig kom það til að 51 árs prestur varð svo náinn unga af- brotamanninum? Sommer segir að þeir hafi fyrst kynnst á lífsleikni- námskeiði þar sem Sommer kenndi meðan Sigurður tók ljós- myndir. Raunverulegur vinskap- ur hafi þó ekki byrjað fyrr en síð- ar þegar þeir hittust á pítsastað fyrir tilviljun. Það var á svipuðum tíma og Sigurður lak gögnum frá Milestone til DV og svo virðist sem Sommer hafi þótt það áhugavert. Stórfelld kynferðisbrot og fjársvik Sigurður á að baki skuggalega for- tíð og hefur hlotið dóma fyrir fjár- svik og misnotkun á drengjum, sem fyrr segir. Það er í raun merki- legt hvað sagan er mikil miðað við að hann er aðeins 25 ára gamall. Árið 2006 var hann að ganga til altaris í Hjallakirkju í Kópavogi til að fermast með skólasystkinum sínum. Sigurður starfaði sem sjálf- boðaliði fyrir samtökin Wikileaks og kom við sögu í mörgum lek- um sem tengdust félögum á borð við Glitni, Vafningi, Milestone og fleirum á árunum eftir hrun. Haustið 2011 var hann yfirheyrður af bandarísku alríkislögreglunni (FBI) í bandaríska sendiráðinu eftir að upp komst að hann hefði upplýsingar sem tengdust glæpa- rannsókn þar í landi. Íslensk stjórnvöld kröfðust þess að alríkislögregluþjónarnir yfir- gæfu landið en þá tóku þeir Sigurð með til Danmerkur og yfirheyrðu hann þar. Sigurður hitti lögreglu- mennina í nokkur skipti til viðbót- ar í Danmörku og Bandaríkjunum. Mætti með lífverði Allsherjarnefnd Alþingis kvaddi Sigurð til fundar árið 2013 og mætti hann fyrir nefndina í fylgd tveggja lífvarða og sagðist hafa starfað með alríkislögreglunni til að njósna um Wikileaks. Fund- urinn var lokaður og ekki greint frá honum í smáatriðum. Þetta sama ár var Sigurður kærður fyrir fjársvik gegn ýmsum fyrirtækj- um og beið fyrsta dómsins fyrir kynferðis brot. Sigurður rataði inn í undar- leg mál á þessum tíma og eitt það undarlegasta tengdist kúgunartil- raun hjá sælgætisverksmiðjunni Nóa Siríus. Í september árið 2013 greindi Fréttablaðið frá því að tveir menn á þrítugsaldri hefðu stung- ið umslagi inn um lúguna hjá Finni Geirssyni, forstjóra Nóa Sirí- us, með bremsuvökvamenguðu Pipp- súkkulaði og kúgunar- Sigurður starfaði fyrir Wikileaks.Kapellan í flugskýli 1.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.