Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 25
17. ágúst 2018 FRÉTTIR 25 Allsnakinn og allslaus í beinni Hvernig er tilfinningin að búa í glerkassa, án alls nema þess sem utan- aðkomandi gefa þér? Myndlistarneminn Almar Atlason svaraði þeirri spurningu í desembermánuði árið 2015, í lokaverkefni sínu í námskeiðinu Leiðir og úrvinnsla fyrir Listaháskóla Íslands, þar sem hann dvaldi allsnakinn í kassa í heila viku – í beinni útsendingu. Viðbrögð almennings við gjörningnum voru vægast sagt blendin. Var listrænt gildi í þessu eða fann maður- inn sér einfaldlega ekkert betra að gera í heila viku? Hins vegar verður að dást að hugrekki mannsins fyrir að leika sér á Adamsklæðum á opnum vettvangi í þágu síns áhugasviðs. Það sem leið eins og heil vika fyrir hann voru í rauninni fimmtán mínútur hjá almenningi, eða svo gott sem. Ekki má heldur gleyma því þegar hann lá endilangur, horn í horn í kassanum, og byrjaði að stunda sjálfsfróun fyrir framan hundruð áhorfenda sem fylgdust með streyminu á YouTube. Hvort myndlist- arneminn hafi á endanum stigið út úr kassanum gjörbreyttur maður eða ekki er eitthvað sem aðeins hann getur svarað fyrir um. Jafnvel hvort það búi meira í honum sem getur sett samfélagið á aðra hliðina, en almenningur hefur lengi beðið spenntur eftir framhaldi á þessum bersýnilega gjörningi. Sigraði heiminn og fór aftur í leikskólann Hólmfríður kom, sá og sigraði í keppninni Ungfrú heimur árið 1985 en 78 stúlkur tóku þátt í keppninni. Þetta var í fyrsta skipti sem íslenskur keppandi hlaut þennan titil (sem sannaði endanlega fyrir heiminum að íslenskt kvenfólk er með því fallegasta í heiminum og víðar) en alls ekki hið síðasta. Arftakar hennar að titlinum urðu seinna meir Linda Pétursdóttir, þremur árum síðar, og síðan Unnur Birna Vilhjálmsdóttir árið 2005. Annað en með titilssystur hennar ákvað Hófí þó ekki að viðhalda fyrirsætuferlinum, þrátt fyrir að tilboðum rigndi inn í kjölfar sigursins. Hófí kunni vel við sig sem leikskólakennari og lætur gott af sér leiða í því fagi. NOKIA 3.1 DUAL 13 MP MYNDAVÉL TEKUR 2 SIMKORT 5.2” HD SKJÁR MEÐ GORILLA GLASS Skiptir stærðin máli? Offita hefur lengi verið feimnismál en í þeim málum lagði Guðjón Sigmundsson, þekktur sem Gaui litli, alla þjóðina að fótum sér. Þetta var fyrir rúmum tuttugu árum, þegar hann kom vikulega fram í magasín- þættinum Dagsljós og var vigtaður hverju sinni. Ýmsir muna kannski eftir því þegar hann birtist þjóðinni á hvítum nærbuxum, stálhress að sjá og 170 kíló að þyngd. Breyting Gauja var gríðarleg í gegnum tímann og heillaðist landinn að jákvæðni hans, framgöngu og drífanda í átt að heil- brigðari lífsstíl. Sviðsljós Gauja varði í lengri tíma en hinar hefðbundnu, ímynduðu fimmtán mínútur gefa trúlega til kynna, en maðurinn mætti stór, minnkaði og, að lokum, hvarf, en með pomp og prakt mætti segja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.