Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 16
16 17. ágúst 2018FRÉTTIR - ERLENT
L
ýðveldið Norður-Makedón-
ía (betur þekkt sem
Makedónía) verður aðildar-
ríki NATO ef allt gengur sam-
kvæmt áætlun en aðildin fellur
ekki í góðan jarðveg hjá Rússum
enda líta þeir á Balkanskaga og
nærliggjandi svæði sem áhrifa-
svæði sitt og kæra sig ekki um að fá
enn eitt NATO-ríki í bakgarð sinn.
Á leiðtogafundi NATO fyrr í sum-
ar var Donald Trump Bandaríkja-
forseti spurður hvort hann teldi að
Rússar myndu reyna að auka áhrif
sín í Makedóníu eftir að viðræður
NATO og Makedóníu um NATO-
-aðild hefjast. Hann var einnig
spurður hvað NATO og Bandarík-
in myndu gera til að spyrna við
áhrifum Rússa á vestanverðum
Balkanskaga.
„Við segjum aldrei neitt um
framtíðaráætlanir okkar.“
Svaraði Trump stutt og laggott
og ræddi þetta ekki frekar sem
verður nú að teljast frekar ólíkt
honum enda ekki vanur að vera
spar á yfirlýsingar og stór orð.
En flestir vestrænir frétta-
skýrendur og sérfræðingar eru ekki
í vafa um að svarið við fyrri spurn-
ingunni sé já. Hins vegar er ekki
eins ljóst hvað NATO og Banda-
ríkin munu gera til að spyrna
gegn áhrifum Rússa á vestan-
verðum Balkanskaga. En það er
ljóst að Grikkir ætla ekki að láta
Rússa vaða uppi án þess að reyna
að spyrna við fótunum. Þeir hafa
nú þegar vísað tveimur rússnesk-
um stjórnarerindrekum úr landi
og hafa neitað tveimur til viðbótar
um heimild til að koma til Grikk-
lands. Ástæðan er að sögn grískra
stjórnvalda að rússnesku stjórnar-
erindrekarnir höfðu reynt að múta
embættismönnum í norðurhluta
Grikklands til að reyna að láta við-
ræður Grikkja og Makedóníu um
nýtt nafn Makedóníu fara út um
þúfur. Viðræðurnar gengu nýlega
upp eftir 27 ára deilur ríkjanna
vegna nafns Makedóníu. Samn-
ingurinn gengur út á að nafni
Makedóníu verði breytt í Lýð-
veldið Norður-Makedónía en á
móti viðurkenna Grikkir landið og
veita makedónska minnihlutan-
um í Grikklandi ákveðin réttindi.
Deilurnar um nafn Makedóníu
eiga rætur að rekja til þess að
eitt hérað í Grikklandi heitir
Makedónía. Þetta hefur valdið því
að Grikkir hafa þvertekið fyrir að
Makedónía fengi aðild að NATO
eða ESB. En nú eru þessar deilur
næstum úr sögunni og því fátt sem
stendur í vegi fyrir NATO- og ESB-
-aðild nema hvað gríska þingið á
eftir að samþykkja samninginn og
Makedónar greiða þjóðaratkvæði
um hann síðar á árinu.
Rússar eru ósáttir
Makedónía er víðs fjarri ESB-að-
ild þar sem efnahagur landsins
uppfyllir ekki skilyrði fyrir aðild
en NATO er reiðubúið til viðræðna
um aðild enda er stefna NATO að
halda dyrunum opnum fyrir ný
aðildarríki sem sjálf óska eftir að-
ild. En stækkun NATO fer illa í
Rússa og gengur augljóslega gegn
hagsmunum þeirra. Þeir telja að
NATO sé að mjaka sér nær landa-
mærum Rússlands með því að
styrkja samstarf við ríki eins og
Georgíu og Úkraínu hægt og ró-
lega. Það er þjóðaratkvæða-
greiðslan í Makedóníu sem menn
óttast að Rússar ætli að skipta sér
af. Fyrrnefndir stjórnarerindrekar
höfðu að sögn sett sig í samband
við pólitíska hópa yst til hægri
auk lykilmanna í rétttrúnaðar-
kirkjunni sem er tengd Rússlandi
sögulegum böndum.
Zoran Zaev, forsætisráðherra
Makedóníu, sagði í samtali við
Buzzfeed að grískir kaupsýslu-
menn, sem styðja málstað Rússa,
hafi greitt ákveðnum Makedónum
13.000 til 21.000 dollara fyrir að
fremja ofbeldisverk í aðdraganda
þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Hópur makedónskra blaðamanna
hefur einnig upplýst að rúmlega
350.000 dollurum hafi verið deilt
niður á stjórnmálamenn, þjóð-
ernishreyfingar og fótboltabullur
til að hafa áhrif á þjóðaratkvæða-
greiðsluna.
Nikos Zydakis, ráðherra
Evrópumála í Grikklandi, sagði í
samtali við Buzzfeed að önnur ríki
hefðu áður reynt að hafa áhrif á
landið en það hafi ekki verið alvar-
legar tilraunir, en samningurinn
við Makedóníu breyti öllu og til-
raunirnar verði væntanlega mun
alvarlegri. Hann sagði að skilaboð
Grikkja til Rússa væru mjög skýr,
samningurinn sé á milli Grikk-
lands og Makedóníu og aðrir eigi
ekki að blanda sér í málið.
Rússar eru sagðir hafa bland-
að sér í mál í Serbíu og Svartfjalla-
landi, sem er aðili að NATO, sem og
í öðrum ríkjum í Evrópu. Þar hafa
verið nefnd til sögunnar afskipti
og tilraunir til íhlutunar í lýðræðis-
legum kosningum í Þýskalandi og
Frakklandi á síðasta ári og Brexit-
kosningarnar margfrægu. Því óttast
margir að Rússar muni láta að sér
kveða í aðdraganda þjóðaratkvæða-
greiðslunnar í Makedóníu. n
Hafa áhyggjur af afskiptum Rússa af
áformum Makedóníu um aðild að NATO
Zoran Zaev
Forsætisráðherra
Makedóníu t.h.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
„Við
segjum
aldrei neitt
um framtíðar-
áætlanir
okkar
3 SKREF
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
• Skráningartöflur
• Eignaskiptayfirlýsingar
• Eftirfylgni
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
ÞARABAKKA 3
S. 578 6800