Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 8
8 17. ágúst 2018FRÉTTIR
geirsgötu 8 / s. 553 1500
Sumartilboð
Sægreifans
Humarsúpa, brauð &
ískaldur gull á 2.000 kr
H
vað eiga tveir barnaníð-
ingar, kung-fu prestur, flug-
vélar, þyrlur, Panamaprins,
kapella og sértrúarsöfnuð-
ur sameiginlegt? Jú, allt þetta er að
finna í flugskýli 1 á Reykjavíkur-
flugvelli. Barnaníðingarnir sitja
í stjórn félags sem er skráð með
yfir 200 milljónir í hlutafé, kung-
fu presturinn, sem eitt sinn var líf-
vörður og sjóræningjabani, stýrir
samkomum sértrúarsafnaðarins
og Panamaprinsins á skýlið sjálft.
Barnaníðingurinn heitir Sigurð-
ur Ingi Þórðarson, betur þekktur
sem Siggi hakkari, og situr hann
einn í stjórn ásamt Robert Tomasz
Czarny sem misnotaði tvær stúlk-
ur hér á landi um árabil. Allir hafa
þeir aðgang að haftasvæðum. Og
þegar meðlimir sértrúarsafnaðar-
ins mæta á svæðið geta þeir hæg-
lega farið inn á viðkvæm svæði eða
farið um borð í flugvélar og jafnvel
sest upp í þyrlu og tekið á loft væri
sá áhugi fyrir hendi. Eftirlit er ekk-
ert. Til að rekja þessa sögu þurfti
nokkra blaðamenn og talsvert
pláss enda um ævintýralega at-
burðarás að ræða sem aldrei hefði
átt að eiga sér stað.
Sigurður Ingi hefur undanfarna
mánuði starfað á Reykjavíkurflug-
velli sem framkvæmdastjóri félags í
eigu auðkýfingsins Hilmars Ágústs
Hilmarssonar. Starfsfólki annarra
fyrirtækja á vellinum er brugðið
og finnst óþægilegt að vera í kring-
um hann enda hefur hann fengið
dóma fyrir bæði kynferðisbrot gegn
ungum piltum og fjársvik.
Í krafti starfa sinna hefur Sig-
urður haft aðgang að haftasvæð-
um og myndavélakerfi sem fyrir-
tæki hans setti upp. Sigurður
starfar einnig fyrir annað félag
Hilmars sem rekur Flugskýli núm-
er 1 á Reykjavíkurvelli og þar var
Dan Sommer, lífverði Sigurðar og
prests, boðið að starfrækja kirkju-
starf gegn því að taka að sér starf
öryggisfulltrúa. Sommer leiðir
sértrúarsöfnuð sem telur um þrjá-
tíu manns en þar blandast saman
kristni og austræn dul-
speki.
Blaðamenn DV
fóru í flugskýli 1
og ræddu við
Sigurð, Hilm-
ar og prestinn
Dan Sommer
hvern í sínu
lagi. Við tóku
tveir tímar af
stórfurðulegum
viðtölum þar sem
þeir töluðu þvers og
kruss. Allir þrír töluðu
merkilega opinskátt um
vafasama gjörninga,
sem í það minnsta jöðr-
uðu við lögbrot. Þegar
blaðamenn DV fóru að
spyrja Sigurð um starf hans sem
stjórnarmaður félags sem er með
mörg hundruð milljónir í hlutafé
kom fljótt í ljós að Sigurður vissi
lítið um skuldbindingar félags-
ins og fjárhagsstöðu þess. Ítrekað
spurðu blaðamenn út í rekstur-
inn og kom þá nánast alltaf sama
svarið.
„Þið verðið að tala við eigand-
ann, ég get ekkert svarað því.
Það eiginlega bara gerðist,“ segir
Sigurður þegar hann var spurð-
ur hvernig það kom til að hann
byrjaði að vinna hjá fyrirtækinu.
Blaðamenn spurðu hvort Sig-
urður hefði haft vitneskju af því
að móðurfélag Ace Holdings,
Arwen Establishment, hafi verið í
Panamaskjölunum og svarar:
„Þið eruð að segja mér fréttir.“
Blaðamenn ræddu í um 20 mín-
útur fyrir utan flugskýli 1 en því
samtali lauk þegar Hilmar Ágúst
kom gangandi að og bað Sigurð
að hjálpa sér. Blaðamenn biðu og
bjuggust við að geta rætt við Sig-
urð lengur, en eingöngu Hilm-
ar Ágúst kom aftur út. Ræddu
blaðamenn ekkert frekar
við Sigurð.
„Starfsfólkið er að
rekast á hann hérna
og finnst þetta
ástand óþægi-
legt,“ segir starfs-
maður á Reykja-
víkurflugvelli sem
ekki vill láta nafns
síns getið. „Hér vinn-
ur fjölskyldufólk sem
kemur oft með börnin
sín í vinnuna, sérstak-
lega um helgar, en það
er farið að veigra sér við
því, því hann er hér á
öllum tímum. Það virð-
ist sem hann búi í skýli
1 og ungir drengir oft með honum
í fylgd.“
Sigurður er ekki með neitt
skráð lögheimili í Þjóðskrá. Eins
og flestir muna þá er brotasaga
Sigurðar löng og meðal annars var
hann dæmdur fyrir kynferðisbrot
gegn níu ungum piltum árið 2015
og hlaut fyrir það þriggja ára fang-
elsisdóm. Auk þess sveik hann
fjármuni út úr fjölda fyrirtækja,
meðal annars Wikileaks sem hann
starfaði áður hjá sem sjálfboðaliði.
Fékk hann fyrir það þungan dóm í
lok árs 2014.
Blaðamenn DV ræða
nokkuð ítarlega um kyn-
hneigð og eðli afbrota
Sigurðar við Sommer,
sem tekur það sér-
staklega fram að
Sigurður hafi gef-
ið honum leyfi til
ræða mál hans.
Sommer segir
Dæmdir barnaníðingar, kung-fu prestur, Panamaprins og
sértrúarsöfnuður leika lausum hala á Reykjavíkurflugvelli
Fyrirtæki Hilmars
kom fyrir í
Panamaskjölunum.
Hann réð Sigurð Inga
vegna vorkunnar.
Það vakti mikla athygli þegar
Sigurður fór beint á ökklaband
og var í umsjá vinar síns.
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is
n Barnaníðingar í stjórn n Reglur brotnar n Isavia vissi ekki neitt n Sértrúarsöfnuður í flugskýlinu n Réð barnaníðing vegna vorkunnar