Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Blaðsíða 34
Miðbærinn 17. águst 2018KYNNINGARBLAÐ
Bóksala stúdenta er staðsett í hjarta háskólasamfélagsins, á Háskólatorgi, sem er við
hlið aðalbyggingar Háskóla Íslands.
Þangað sækir fjölbreyttur hópur fólks,
stúdentar, starfsfólk HÍ, nágrannar og
margir aðrir, enda torgið öllum opið
og þar lífleg og skemmtileg stemning
alla daga.
„Við skilgreinum okkur sem Bók-
sölu allra stúdenta, þjónustum alla
nemendur og útvegum bækur og
önnur námsgögn fyrir nemendur allra
háskóla á Íslandi,“ segir Óttarr Proppé
verslunarstjóri. „Sumir telja vegna
nafnsins að við séum eingöngu bók-
sala fyrir HÍ, en svo er ekki, við erum
fyrir alla.“
„Það sem mér finnst skemmti-
legast við Bóksölu stúdenta er hvað
hún þjónustar samfélagið á margan
hátt, bæði háskólasamfélagið, alla
námsmenn, þá sem búa í nágrenninu
og almennt þá sem hafa áhuga á
bókum,“ segir Óttarr. „Það er góð og
skemmtileg stemning hjá okkur, eins
og við viljum hafa það, alls konar fólk,
bækur, leikföng, ritföng og hvaðeina,
og bókakaffið okkar er falið leyndar-
mál,“ bætir hann við, en Bókakaffi
stúdenta er í samstarfi við Te & Kaffi
og með vörur og vélar frá þeim.
Hjá Bóksölu stúdenta fást ritföng
og skólavörur fyrir öll skólastig, og
alls konar bækur, bæði fræðibæk-
ur og almennar bækur, en að sögn
Óttars eru um 12–15 þúsund titlar til
í versluninni hverju sinni. Fáist bókin
ekki í versluninni má nýta sér pöntun-
arþjónustuna.
„Við erum með öfluga sérpöntun-
arþjónustu og getum útvegað flestar
fáanlegar bækur,“ segir Óttarr, en sú
þjónusta er vinsæl og vex sífellt, enda
býr bóksalan yfir öflugum vef og góð-
um tengslum við innlenda og erlenda
útgefendur og forlög. „Áherslan er
að við viljum þjónusta alla og útvega
allar bækur sem óskað er eftir með
sérstakri áherslu á fræðibækur.
Þessa dagana er allt að fara af
stað, fólk á öllum aldri að byrja aftur
í námi, sumir í fyrsta sinn og aðrir að
koma aftur eftir mislanga fjarveru,“
segir Óttarr. „Þetta er skemmtilegur
og lifandi tími, maður skynjar eftir-
væntingu og það er mikið að gerast
enda nýtt tímabil að hefjast. Það er
gaman að vera þátttakandi í því.“
Bóksala stúdenta er með útibú í
Háskólanum í Reykjavík við upphaf
skólaárs og einnig eru bókalistar
háskólanna komnir á vef Bóksölunn-
ar. „Við finnum að fólk er að komast
í gírinn, byrjað að undirbúa sig fyrir
veturinn og við erum tilbúin til að taka
á móti því.“
Bóksala stúdenta er á Háskóla-
torgi, Sæmundargötu 4. Síminn er
570-0777 og netfangið boksala@
boksala.is. Opið er virka daga frá kl.
9–18, en alltaf er opið í vefversluninni
á boksala.is
BÓKSALA STÚDENTA:
Lifandi og skemmtilegt samfélag
fyrir alla, stúdenta sem aðra