Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2018, Side 24
24 17. ágúst 2018FRÉTTIR Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum Mikið úrval af stillanlegum rúmum Gerið gæða- og verðsamanbuð GRIPU OG HURFU n Fimmtán mínútna frægðin n Brot af því besta Listamaðurinn Andy Warhol spáði því á sjöunda áratugnum að allir í framtíðinni yrðu frægir í fimmtán mínútur. Þaðan á orðatiltækið Fimmtán mínútna frægð uppruna sinn, en eins og dæmin hér sýna er mismikil frægð sem fylgt getur hverjum og einum – ekki síst á tímum samfélagsmiðla og „meme- blætis“. Sum afrek má líta á með stoltum augun, á meðan annað kennir okkur betur á listina að hlæja með frekar en að viðkomandi. Hér er brot af því besta. tomas@dv.is „Mérbalalíðurágætlegavelbala“ Stundum er þunn lína á milli mismælis og stressviðbragða, en á rétta augnablikinu og sérstaklega á meðan upp- tökuvélar rúlla getur gull orðið til. Vilhjálmur Örn Hallgrímsson, þekktur sem Villi Hall, er án efa eftirminnilegasti þátttakandinn úr Bandinu hans Bubba. Ástæðuna má rekja til óborganlegs svars í beinu framhaldi af því að eigna sér sviðið í þættinum, þegar kom að því að svara hinni einföldu spurningu: „Jæja Villi, hvernig líður þér?“ Honum leið þá bara ágætlega vel bara, en svarið hans Villa hefur tileinkað sér sterkan sess í íslenskum „meme-kúltúr“. Enn þann dag í dag bíðum við spennt eftir sambærilegu atviki, frá honum eða öðrum. Ryan Gosling eða Júlíus? Þegar Ryan Gosling mætti til Íslands árið 2013 voru aðdáendur hans trylltir yfir tilhugsuninni. Ýmsir hófu ítarlega leit, með von um að koma auga á hann eða eiginkonu hans, Evu Mendes, og lá við að Íslendingar væru farnir að keppast um athygli stórleikarans. Einn Íslendingur taldi sér trú um að hafa óvart keyrt á bifreið þar sem leikarinn sat við stýrið á mörkum Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar. Viðkomandi sem átti að hafa klesst á bíl Gosling birti stöðu- færslu á Facebook og var sagður orðlaus við það eitt að sjá leikarann í eigin persónu. Frásögnin var ekki lengi að rata í íslenska fjölmiðla, en síðar kom í ljós að maður að nafni Júlíus Pétur hafði verið tekinn í misgripum fyrir leikarann þegar hann lenti sjálfur í aftanákeyrslu. Meira kom ekki úr sögunni, en Júlíus var heitasta umræðan þann dag fyrir að líkjast einum heitasta leikara sem fyrirfinnst. Tell Me Telma Íslenski dúettinn Einar Ágúst & Telma hóf göngu sína árið 2000 og keppti fyrir hönd Íslands með laginu Tell Me! Tvíeykið lenti í 12. sæti af 24 með 45 stig að talsins. Einar Ágúst er alkunnugur ýmsum og hafði á þeim tíma verið áberandi með hljómsveitinni Skíta- móral. Telma Ágústsdóttir hefur hins vegar sagt skilið við sviðsljósið í kjölfar lagsins og keppninnar og hvarf söngkonan sama og sporlaust eftir aldamótin. Seinna meir vann hún með Rokkkór Íslands en vekur þetta þá að sjálfsögðu upp spurninguna um hvenær stendur til að eiga „kombakkið“. Þangað til að sá dagur rennur mun hún alltaf eiga sínar fimmtán mínútur með lagi sem heyrðist títt á sínum tíma en lítið sem ekkert síðan þá. Sjálfsagt eru einhverjir Eurovision-sér- fræðingar ánægðir með það. Réttur maður á röngum Laugavegi Bandaríkjamaðurinn Noel Santillan átti örlagaríka ferð til Íslands árið 2016 sem kom honum í heimspressuna. Hann ákvað að skella sér á klakann og hafði bókað herbergi á Hótel Fróni á Laugavegi 22A. Eitthvað þótti honum það sérstakt þá þegar hann keyrði í fimm klukkustundir, langt út fyrir bæjarmörk- in. Að lokum bankaði hann upp á hjá Sigurlínu nokkurri Karlsdóttur, en hún býr á Laugarvegi (með R-i) á Siglufirði og spurði hvar Hótel Frón væri. Hún taldi þetta fyrst vera eitthvert grín en Noel lét engu að síður vel um sig fara á Hótel Siglufirði. Í viðtali við BBC sagðist hann hafa slegið inn rangt heimilisfang í GPS-tækið, en tók hann bara vel í aukarúntinn um landsbyggð- ina. Noel átti hins vegar eftir að lenda í fleiri ævintýrum og villtist aftur áður en ferðalaginu lauk. Þá var hann á leiðinni í Bláa lónið og studdist við sama GPS-tæki og leitt hafði hann á rangan stað. Þetta reyndist vera ákveðin fýluferð en þegar hann kom á staðinn var Bláa lónið hvergi sýnilegt, aðeins skrifstofuhúsnæði og fundarsalur. Kemur fyrir besta fólk. augnablikið App búið Fyrirtækið Plain Vanilla tjaldaði miklu til með gífurlegri þátttöku sem fylgdi spurningarappinu QuizUp, þar sem landinn og fleiri kepptust um að skora hver á annan árið 2013. Í kjölfar velgengninnar voru komin stór plön á teikniborðið, fullstór í raun, og þar á meðal áætlanir um bandarískan sjónvarpsþátt byggðum á appinu. Plönin fóru suður og var fljótlega sagan öll hjá fyrirtækinu, en eflaust eru enn einhverjir Íslendingar í dag sem hreyknir eru af tölunum sem þeir náðu á sérsviðum sínum í spurn- ingarappinu. Góðar minningar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.