Fréttablaðið - 15.12.2018, Side 12
www.gjofsemgefur.is
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 133567
undir tré á Íslandi
GEFÐU
jólapakka
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda
fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun
eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima
og erlendis.
Komið í
allar helstu
verslanir
Íslenskt
tískutímarit
1 5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r10
Þorlákshafnarbúar telja
ekki nægt heitt vatn
skila sér til bæjarins.
Elliði Vignisson bæjar
stjóri kveðst trúa því að
Veitur muni standa sig
betur. Að öðrum kosti
bori sveitarfélagið sjálft
eftir heitu vatni. Upplýs
ingafulltrúi Veitna segir
ástandið munu lagast
næsta haust.
orkUmáL Forsvarsmenn Lýsis og
seiðaeldisstöðvarinnar Ísþórs í Þor-
lákshöfn funduðu með bæjaryfir-
völdum í Ölfusi í síðustu viku vegna
skorts á heitu vatni. Skerða þurfti
heitt vatn frá Veitum til iðnfyrir-
tækja þar á svæðinu í kuldakasti í
byrjun desember. Íbúar fundu einn-
ig fyrir lægri þrýstingi á vatninu.
„Það var búið að tala um að það
yrði aukning á heitu vatni í haust
en það hefur ekki gengið eftir
og þá eðlilega verða menn von-
sviknir. Þeir hafa ekki brotið neina
samninga gagnvart okkur en ef
þetta er það sem við þurfum að búa
við verðum við að grípa til einhverra
annarra ráðstafana,“ segir Þórarinn
Ólafsson, framkvæmdastjóri Ísþórs.
Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu
Reykjavíkur, lögðu í sumar sverari
lögn frá háhitasvæðinu á Bakka
um tíu kílómetra leið niður í Þor-
lákshöfn. Það hefur ekki enn skilað
meira magni af heitu vatni eins og
Þorlákshafnarbúar töldu að ætti að
vera raunin.
„Þetta er náttúrlega ótækt enda
búum við á orkuríkasta svæði á
Íslandi. Ég bind vonir við að þetta
séu byrjunarörðugleikar hjá þeim,“
segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Ölfuss. „Við fengum þær skýringar
að Veitur hefðu þá skyldu að leggja
íbúðarhúsnæði til heitt vatn og
leggi höfuðáherslu á það en voru
að svera þessa lögn frá Bakka og
hingað niður eftir og hugðust með
því bæta aðgengi að heitu vatni
fyrir fyrirtæki. Það er ekki að virka
ennþá.“
Elliði segir stór fyrirtæki í Þor-
lákshöfn og að áform séu um enn
stærri fyrirtæki, meðal annars fimm
þúsund tonna landeldi á fiski. Lýsi
er nýbúið að byggja þar stóra verk-
smiðju.
„Við höfum lagt þunga áherslu á
það við Veitur og aðra að þessi mál
verði löguð fyrir þessi fyrirtæki og
minnt á það að ef Veitur ætla ekki
að tryggja nægt vatn til þeirra stóru
framkvæmda sem við stöndum
frammi fyrir þá sjáum við okkur
bara þann einn kost að stofna nýja
veitu og verða okkur sjálf næg með
það. Það mun aldrei viðgangast
að fyrirtæki á orkuríkasta svæði á
Íslandi hafi ekki heitt vatn,“ segir
bæjarstjórinn.
Það yrði þá ekki í fyrsta sinn
sem sveitarfélagið ræki hitaveitu.
Í febrúar árið 2000 seldi það Hita-
veitu Þorlákshafnar til Orkuveitu
Reykjavíkur.
Ólöf Snæhólm, upplýsingafull-
trúi Veitna, segir rétt að komið
hafi til skerðingar á afhendingu á
heitu vatni til iðnfyrirtækja þegar
mjög kalt hafi verið í veðri. „Sam-
kvæmt samningum sem gerðir eru
við slík fyrirtæki er Veitum heimilt
að skerða afhendingu á heitu vatni
þegar þannig stendur á og bera
gjöldin sem þau greiða þess merki,“
segir hún.
Að sögn Ólafar er í forgangi hjá
Veitum að veita nægu heitu vatni til
íbúa. Með sverun hitaveitulagnar-
innar búi íbúar Þorlákshafnar við
hærri og jafnari þrýsting á heita
vatninu en áður.
„Hins vegar geta íbúar orðið varir
við lágan þrýsting tímabundið á
meðan verið er að skerða afhend-
ingu á heitu vatni til iðnfyrirtækja
við hámarksálag í kuldaköstum,“
útskýrir Ólöf. Þegar kalt sé í veðri sé
framleiðsla á heitu vatni á Bakka í
hámarki. „Það hefur dugað þar sem
möguleikinn á skerðingum til iðn-
fyrirtækja er til staðar.“
Þá segir Ólöf að áætlað sé að
nýr búnaður, sem auki vinnslu-
og flutningsgetuna á Bakka,
verði tekinn í gagnið fyrir næsta
haust. „Sverun lagnarinnar var for-
senda þess að hægt verður að fara í
uppfærslu á búnaðinum til að auka
afköstin og koma þannig til móts
við uppbyggingu í Þorlákshöfn,“
segir upplýsingafulltrúi Veitna.
gar@frettabladid.is
Bora sjálf ef
Veitur auka
ekki heitt vatn
Hitaveita Þorlákshafnar var seld til Orkuveitu Reykjavíkur árið 2000. Nú
íhuga heimamenn að koma aftur á fót eigin hitaveitu. FRéttablaðið/VilHelm
Það mun aldrei
viðgangast að
fyrirtæki á orkuríkasta svæði
á Íslandi hafi
ekki heitt
vatn.
Elliði Vignisson,
bæjarstjóri Ölfuss
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
F
-2
A
E
0
2
1
C
F
-2
9
A
4
2
1
C
F
-2
8
6
8
2
1
C
F
-2
7
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K