Fréttablaðið - 15.12.2018, Qupperneq 14
Alþingi Fjöldi aðstoðarmanna ráð-
herra og alþingismanna verður
kominn yfir 50 eftir tvö ár.
Ráðnir verða 17 nýir aðstoðar-
menn fyrir þingflokka á næstu árum
og hafa þingflokksformenn komist
að samkomulagi um hvernig þeim
verður skipt milli þingflokka.
Eftir áramót verða átta nýir
aðstoðarmenn ráðnir, einn fyrir
hvern þingflokk. Árið 2020 bætast
fimm við og fjórir árið 2021. Síðari
árin tvö verður aðstoðarmönnum
þingflokka skipt milli þingflokka
eftir reiknireglu D’Hondt og verður
miðað við stærð þingflokka að frá-
töldum þeim þingmönnum sem
þegar hafa aðstoðarmenn, þ.e. ráð-
herrar og formenn.
Eftir að framangreint samkomu-
lag formanna þingflokkanna náð-
ist rétt fyrir síðustu mánaðamót
minnkaði hins vegar þingflokkur
Flokks fólksins um helming og fór úr
fjórum þingmönnum í tvo og hinir
brottreknu þingmenn eru orðnir
óháðir þingmenn.
Þegar frumvarp um þessar breyt-
ingar var rætt á Alþingi í vikunni
kom fram í ræðu Birgis Ármanns-
sonar að formenn þingflokka hafi
rætt málið aftur í kjölfar þessara
breytinga en ákveðið að hrófla ekki
við samkomulaginu að svo stöddu.
Því ber svo við að hinn tveggja
manna þingflokkur Flokks fólksins
verður kominn með þrjá starfsmenn
eftir áramót. Hinir brottreknu, Ólaf-
ur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason,
eru hins vegar á köldum klaka og fá
engan aðstoðarmann.
Í máli Birgis Ármannssonar kom
Flokkur fólksins fær þrjá aðstoðarmenn
Aðstoðarmenn ráðherra
og þingmanna verða
orðnir samtals 52 árið
2021. Tveggja manna
þingflokkur Flokks
fólksins fær þrjá að-
stoðarmenn á næstunni
en þingmennirnir sem
reknir voru úr flokknum
fá enga aðstoð.
sAmtAls
✿ Aðstoð fyrir ráðherra og þingmenn
Þingmenn og ráðherrar (þar með talinn einn utan þings)
Fjöldi aðstoðarmanna
64
52
n Þingmenn aðrir en ráðherrar
n Aðstoðarmenn
n Aðstoðarmenn sem bætast við í
áföngum til ársins 2021.
Meðal þeirra eru ritarar sem þing-
flokkar munu velja sér sjálfir.
Vinstri græn
7 aðstoðarmenn ráðherra + 4
32 2
Þingmenn Aðstoðarmenn
sAmfylking
1 aðstoðarmaður formanns + 3
1
Þingmenn Aðstoðarmenn
miðflokkurinn
1 aðstoðarmaður formanns + 3
1
Þingmenn Aðstoðarmenn
PírAtAr
1 aðstoðarmaður formanns + 3
1
Þingmenn Aðstoðarmenn
Viðreisn
1 aðstoðarmaður formanns +2
1
Þingmenn Aðstoðarmenn
flokkur fólksins
1 aðstoðarmaður formanns + 2
1
Þingmenn Aðstoðarmenn
sjálfstæðisflokkurinn
Þingmenn Aðstoðarmenn
9 aðstoðarmenn ráðherra + 5
22 2
2 1
frAmsóknArflokkurinn
6 aðstoðarmenn ráðherra + 3
22 2
AðstoðarmennÞingmenn
þingflokks. Ekki er skylt að auglýsa
störfin og ráðningin er tímabundin
og miðast að hámarki við lengd
kjörtímabils.
Birgir Ármannsson segir að sem
pólitískir starfsmenn verði þeir
líklega settir í önnur og pólitísk-
ari verkefni en þingmenn leiti til
starfsmanna þingsins með og þeir
gefi þingmönnum ábendingar sem
eru í eðli sínu ekki eingöngu fag-
legar heldur einnig pólitískar. Birgir
segir að með þessu geti þingmenn
og þingflokkar átt þess kost að bæta
upp og auka þekkingu innan þing-
flokka sinna. Hann segir að þegar
hann var í stjórnarandstöðu hafi oft
verið gagnlegt að hafa einhvern að
leita til.
„Þetta er gott mál og þýðir að ég
og aðrir þingmenn getum sinnt
starfinu sem kjósendur hafa treyst
okkur fyrir enn betur,“ segir Jón
Þór Ólafsson, þingmaður Pírata,
og bætir við: „Það eru ekki allir
alþingismenn lögfræðingar og hag-
fræðingar sem betur fer. Við viljum
hafa alls konar fólk á þingi; fólk með
alls konar styrkleika og úr öllum
stéttum og þjóðfélagshópum. Allt
þetta fólk þarf að geta sinnt starfinu
sínu óháð menntun og fyrri starfs-
reynslu. Þess vegna er aðstoðar-
mannakerfið svo mikilvægt.
Persónulega finnst mér að við
ættum að ganga miklu lengra. Mér
finnst að hver og einn þingmaður
ætti að hafa sinn eigin aðstoðar-
mann,“ segir Jón Þór.
adalheidur@frettabladid.is
þó einnig fram að verði frekari
breytingar á stærð þingflokka á
kjörtímabilinu verði fjöldi starfs-
manna þeirra einnig tekinn til
endurskoðunar.
Af frumvarpinu er einnig ljóst að
störf aðstoðarmannanna eru í eðli
sínu pólitísk. Þannig er ráðningar-
samband þeirra við þingið einungis
formlegt því skrifstofustjóri ræður
starfsmann að fenginni tillögu
Kostnaður við
eflingu Alþingis
Fjölgun aðstoðarmanna þing
manna er tilkomin meðal annars
vegna áherslu ríkisstjórnarinnar
á eflingu Alþingis.
Auk aðstoðarmanna fá þing
flokkar úthlutað fé frá Alþingi
ársfjórðungslega og er það
ætlað til aðkeyptrar sérfræði
aðstoðar fyrir þingmenn
og þingflokka. Samkvæmt
áherslum ríkisstjórnarinnar um
eflingu Alþingis hafa þessar fjár
veitingar verið tvöfaldaðar en
þingflokkar fengu samtals 51,9
milljónir árið 2017 en fá 106,9
milljónir á næsta ári.
Rekstrarframlag Alþingis til
þingflokka árið 2019:
107 milljónir á ári
Kostnaður við ritara þingflokka
og aðstoðarmenn formanna:
150 milljónir á ári
Kostnaður við fjölgun aðstoð-
armanna: 205 milljónir á ári
Tveir þingmenn
sem reknir voru
úr flokknum fá
enga aðstoðar
menn.
Persónulega finnst
mér að við ættum
að ganga miklu lengra. Mér
finnst að hver og einn
þingmaður ætti að
hafa sinn eigin
aðstoðar-
mann.
Jón Þór Ólafsson,
þingmaður Pírata
Fjöldi aðstoðarmanna nálgast bráðum fjölda þingmanna. FRéttAblAðið/Anton
1 5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 l A u g A r d A g u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
F
-1
7
2
0
2
1
C
F
-1
5
E
4
2
1
C
F
-1
4
A
8
2
1
C
F
-1
3
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K