Fréttablaðið - 15.12.2018, Side 18
Gullplöturnar Ef svo ólíklega
vill til að framandi og vitibornar
lífverur klófesti og kanni Voyager
1 eða 2, þá munu þær geta lært
mikið um mannkyn með því að
rýna í þau vísindi og verkfræði
sem smíði þeirra útheimti. En sú
þekking segir lítið um menningu
mannkyns og samfélag. Því
bera geimförin í skauti
sér eins konar hand-
bók um Jörðina og
lífið sem blómstraði
þar um tíma.
Handbókin er í
formi 12 tommu
hljómplatna sem
pressaðar voru úr
kopar og húðaðar með
gulli. Plöturnar eru geymdar
bakvið állok sem rafhúðað var
með ísótópanum úraníum-238.
Helmingunartími ísótópans er
4,5 milljarðar ára og því munu
forvitnar og greindar verur geta
beitt massagreiningu til að
áætla aldur hljómplatnanna.
Stjörnufræðingurinn
og vísindamiðlarinn
Carl Sagan hafði veg og
vanda af vali á innihaldi
platnanna. Þar er að
finna kveðjur frá
Jörðu á 45 tungu-
málum ásamt
ávarpi þáverandi
framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, Kurts
Waldheim.
Að auki er að finna á plötunum
tónverk eftir Bach, Mozart, Beet-
hoven, Chuck Berry, Blind Willie
Johnson ásamt þjóðlagatónlist
fjölmargra menningarhópa.
Klukkutíma langt rit af heila-
bylgjum Önnu Druyan,
eiginkonu Sagans, er að
finna á plötunum.
Á plöturnar er
búið að rista stað-
setningu sólarinnar
út frá staðsetningu
14 tifstjarna. Auk
þess er að finna
upplýsingar um vetni,
algengasta frumefni
alheimsins, og staðsetning
sólarinnar er rist á plöturnar með
vísan í staðsetningu 14 tifstjarna.
Auk þess er að finna upplýsingar
um vetni, algengasta frum-
efni alheimsins. Á myndinni
er einnig útskýrt hvernig
vetnisatómið gefur frá sér
rafsegulgeislun þegar það
breytir um orkuástand.
Tíðni þessarar geisl-
unar er nákvæmega
1420.40575177 MHz.
Þetta er sú tíðni sem
við notum til að
hlusta eftir skilaboð-
um frá framandi
vitsmunalífi.
Megi raforkan vera með þér.
4.490.000 kr.
Verð frá
Skiptu yfir í vistvæna orku strax í dag!
Volkswagen e-Golf kemur þér á áfangastað á rafmagninu einu saman. Þú nýtir hreina innlenda
orku, tekur aldrei eldsneyti, ert laus við olíuskipti og upplifir magnaðan akstur. Gríptu tækifærið
núna og stökktu inn í framtíðina með Volkswagen e-Golf – 100% rafmagnsbíl.
www.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
Til afhendingar strax!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Sólvindshvolf
Sólvindsmörk
Sól
hulstu
r Miðgeimur
Jaðarhögg
Voyager 1
21,2 milljarða
km fjarlægð
frá jörðu.
Voyager 2
18 milljarða
km fjarlægð
frá jörðu.
✿ Voyager-verkefnið
Sólin
GEIMVÍSINDI Vísindamenn NASA
fengu í vikunni staðfestingu á grun-
semdum sínum um að geimfarið
Voyager 2 hefði sagt skilið við bein
áhrif Sólarinnar og haldið út í mið-
geim, svæðið milli stjarnanna.
Þetta þýðir að Voyager 2 hefur
brotið sér leið gegnum svæðið þar
sem sólvindar og stjörnuvindar
mætast í jaðri sólvindsmarkanna.
Staðfesting á þessum merka áfanga
fékkst með því að mælingartæki
um borð í Voyager 2 greindu sífellt
minna magn rafgass frá Sólinni.
Á ferðalagi sínu um sólkerfið
hefur Voyager 2 kannað Júpíter,
Satúrnus, Úranus og Neptúnus í
návígi. Þrátt fyrir að geimfarið hafi
nú þegar gefið vísindamönnum ein-
stakt tækifæri til að kanna sólkerfið,
þá er vísindavinna Voyager 2 rétt
að byrja. Geimfarið er nú byrjað að
senda til Jarðar mælingar á eðli og
hitastigi miðgeims.
„Það er gríðarlega margt sem
við vitum ekki um það svæði sem
bíður handan sólvindsmarkanna,“
sagði Ed Stone, vísindamaður við
Voyager-verkefnið hjá Tækniháskól-
anum í Kaliforníu.
Voyager 2 hefur þó ekki yfirgefið
sólkerfið eins og oft er haldið fram.
Jaðar sólkerfisins er skilgreindur
við enda Oort-skýsins, sem er þyrp-
ing halastjarna sem umlykur sól-
kerfið. Fjarlægri mörk Oort-skýsins
eru talin liggja í rúmlega 14 billjóna
kílómetra fjarlægð. Voyager 2 er nú
Voyager 2 þenur seglin í stjörnuvindi
Eftir að hafa rannsakað heimahagana gaumgæfilega síðustu 40 ár siglir Voyager 2 nú milli stjarnanna. Næstu árin mun geimfarið kanna
miðgeim en eftir að rafhlöðurnar tæmast tekur við einmanalegt ferðalag. Eftir 300 þúsund ár mun Voyager 2 nálgast stjörnuna Síríus.
í um 18 milljarða kílómetra fjar-
lægð. Það mun líklega taka Voyager
2 um 30 þúsund ár að sigla í gegnum
Oort-skýið.
Voyager 2 mun halda áfram að
senda merki til Jarðar til ársins
2025, en þá hefur geimfarið verið
á ferðalagi í 48 ár. Eftir það mun
Voyager 2 þjóta um miðgeiminn,
ekki sem vísindatól, heldur sem
fulltrúi mannkyns. Eftir tæplega
300 þúsund ár mun Voyager-2 finna
hlýju sólstjörnu á ný, þegar geim-
farið kemst í návígi við stjörnuna
Síríus sem er í 8,6 ljósára fjarlægð
frá Jörðinni. kjartanh@frettabladid.is
Voyager-geimförunum var skotið á
loft í ágúst og september árið 1977.
Þau könnuðu reikistjörnur og tungl
sólkerfisins, en æða nú á ógnar-
hraða milli stjarnanna.
Voyager 1
Fjarlægð frá Jörðu 21.692.212.000 km
Sendingartími merkis 20 klst. | 5 mín.
Ár í geimnum 41
Plánetur kannaðar 2 og tunglið Títan
Voyager 2
Fjarlægð frá Jörðu 17.960.950.000 km
Sendingartími merkis 16 klst. | 38 mín.
Ár í geimnum 41
Plánetur kannaðar 4
Voyager-geimförin eru
fyrstu manngerðu hlutirnir
sem komast út í miðgeim.
1 5 . D E S E M b E r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r16 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A ð I ð
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
E
-E
F
A
0
2
1
C
E
-E
E
6
4
2
1
C
E
-E
D
2
8
2
1
C
E
-E
B
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K