Fréttablaðið - 15.12.2018, Page 22
www.ss.is
PI
PA
R\
TB
W
A
mjúkt, safaríkt og bragðmilt
Jólin eru tími elskulegrar íhaldssemi þegar við viljum vera viss um að allt sé eins og það
á að vera. Þess vegna velja tugþúsundir Íslendinga SS birkireykta
hangikjötið á jólaborðið, því það er mjúkt, safaríkt og bragðmilt.
Gleðileg jól!
Bandaríkin Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, vissi að þagnar-
greiðslurnar til tveggja meintra
hjásvæfa hefðu verið ólöglegar.
Þetta fullyrti Michael Cohen, fyrr-
verandi „reddari“ og lögmaður
Trumps, í viðtali við ABC News
í gær. Þá sagði Cohen jafnframt
að Trump hefði skipað sér með
beinum hætti að greiða konunum.
Cohen var dæmdur í þriggja
ára fangelsi á miðvikudag. Meðal
annars fyrir þessar greiðslur sem
teljast brot á lögum um
fjármögnun kosninga.
Greiðslurnar voru
inntar af hendi þegar
Trump var í forseta-
framboði. Cohen
verður fyrsti náni
b a n d a m a ð u r
Trumps til að fara
í fangelsi vegna
r a n n s ó k n a r
Roberts Mueller,
sérstaks sak-
sóknara sem rannsakar meint sam-
ráð framboðsins við Rússa. Lög-
manninum er gert að hefja afplánun
í síðasta lagi 6. mars.
Trump hefur ítrekað neitað því að
hafa vitað af greiðslunum á sínum
tíma eða að hafa fyrirskipað
þær. Í viðtalinu sagði
Cohen, sem nú hefur
snúist gegn forsetanum,
fólki að trúa ekki orðum
Trumps. „Maðurinn segir
ekki satt. Það er sorglegt að
ég þurfi að axla ábyrgð á
gjörðum hans.“
A u k i n h e l d u r
sagði Cohen að
Mu e l l e r s a k-
sóknari hefði
undir höndum
„umfangsmikil
s ö n n u n a r -
g ö g n “ s e m
sýndu fram
á sannsögli
hans. – þea
Cohen segir Trump hafa
vitað af lögbrotum sínum
Frakkland Fjórða fórnarlamb skot-
árásarinnar á jólamarkaði í frönsku
borginni Strassborg lést í gær. Frá
þessu greindi saksóknaraembætti
Parísar. Þá greindu franskir miðlar
frá því að eitt fórnarlamb til við-
bótar hefði hlotið varanlegan heila-
skaða og að til viðbótar væri fernt
enn á spítala.
Meintur árásarmaður, Cherif
Chekatt, var skotinn til bana á
fimmtudagskvöld eftir að hann
skaut á lögregluþjóna í Neudorf-
hverfi Strassborgar. Chekatt hafði
áður verið sakfelldur fyrir ýmsa
glæpi og er talinn hafa snúist til
öfgaíslam á meðan hann var í fang-
elsi í Þýskalandi. Þá var hann einnig
undir smásjá frönsku leyniþjónust-
unnar. – þea
Fjórða fórnarlambið látið
Bretland Fundi leiðtogaráðs Evr-
ópusambandsins í Brussel lauk í gær.
Theresa May, forsætisráðherra Bret-
lands, náði ekki að knýja fram neinar
breytingar á samningnum sem ríkis-
stjórn hennar hefur gert við ESB um
Brexit.
Meirihluti breska þingsins er ekki
tilbúinn til þess að samþykkja samn-
inginn. May frestaði atkvæðagreiðslu
sem fram átti að fara um hann í vik-
unni og þurfti í kjölfarið að verjast
atlögu eigin flokksmanna. Þótt hún
hafi staðið af sér vantrauststillögu
greiddi rúmur þriðjungur Íhalds-
manna á þingi atkvæði gegn henni.
Ástæðan er varúðarráðstöfun
sem finna má í samningnum og er
hugsuð til að koma í veg fyrir sýnileg
landamæri á milli Norður-Írlands og
Írlands ef viðræður um fyrirkomulag
þar sigla í strand. Áhyggjur eru af því
að varúðarráðstöfunin gæti orðið
varanleg, sett Breta undir reglur ESB
og komið í veg fyrir gerð fríverslunar-
samninga.
En þótt May næði ekki að fá neinu
breytt náði hún samt að fá leiðtoga
hinna 27 aðildarríkjanna til þess að
undirrita skriflega yfirlýsingu um að
varúðarrástöfunin yrði aldrei neitt
annað en tímabundin. Samkvæmt
plagginu mun Evrópusambandið
reyna af fullum krafti að ná sam-
komulagi ef varúðarráðstöfunin er
virkjuð.
Að mati skýranda BBC þýðir það
að fundurinn var ekki árangurslaus
fyrir May. Ekki eru þó allir á þeirri
skoðun. Skýrandinn tók vissulega
fram að þessi fyrirheit leiðtoga hinna
aðildarríkjanna væru ólíkleg til þess
að breyta skoðunum andstæðinga
May.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaflokksins og þar með bresku
stjórnarandstöðunnar, sagði að fund-
urinn sýndi fram á að samningur May
væri dautt plagg. „Forsætisráðherra
hefur algjörlega mistekist að ná fram
breytingum á þessum misheppnaða
samningi,“ sagði Corbyn.
thorgnyr@frettabladid.is
Engar breytingar voru
gerðar á fundi í Brussel
Forsætisráðherra Bretlands tókst trúlega ekki að sannfæra ósátta um ágæti
Brexit-samnings síns. Hún fékk þó loforð um að varúðarráðstöfun um landa-
mærin við Írland yrði einungis tímabundin. Corbyn segir May hafa mistekist.
Theresa May á fundinum í belgísku höfuðborginni í gær. NordicphoTos/AFp
Forsætisráðherra
hefur algjörlega
mistekist að ná fram breyt-
ingum á þessum misheppn-
aða samningi.
Jeremy Corbyn,
leiðtogi
Verkamanna-
flokksins
1 5 . d e s e m B e r 2 0 1 8 l a U G a r d a G U r20 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
E
-E
A
B
0
2
1
C
E
-E
9
7
4
2
1
C
E
-E
8
3
8
2
1
C
E
-E
6
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K