Fréttablaðið - 15.12.2018, Síða 49

Fréttablaðið - 15.12.2018, Síða 49
Framhald á síðu 2 ➛ Hafnarfjörður & Garðabær L AU G A R DAG U R 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 Kynningar: Hafnarfjörður, Apríl skór Hafnarfjörður skartar sínu fegursta á aðventunni eins og fyrri ár. Búið er að skreyta bæinn með fallegum jólaskreyt­ ingum og fjölmargt skemmtilegt er á dagskrá dagana fyrir jól, segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. „Bærinn okkar hefur allt til alls. Hann er fallegur sjávar­ bær með sinn eigin sjarma, lifandi miðbæ, heillandi hafnarsvæði og er steinsnar frá fallegum náttúru­ perlum á borð við Hellisgerði, Víði­ staða tún, Hvaleyrarvatn, Helgafell og Hamarinn. Það skapast líka alltaf einstök og heimilisleg jóla­ stemning í miðbæ Hafnarfjarðar á aðventunni. Hingað kemur fólk til að njóta, slaka á og skemmta sér.“ Uppskrift að góðum degi Sveitarfélagið hefur stækkað mikið undanfarin ár og þjónusta við íbúa og gesti aukist á sama tíma til muna, segir Rósa. „Veitingastöðum og kaffihúsum hefur fjölgað auk þess sem margar verslanir við Strandgötuna, í Firði, á Flens­ borgar höfn og víðar um bæinn bjóða til sölu íslenska hönnun og handverk, notaðan fatnað og ýmislegt fleira. Tónlistarfólk, kórar og aðrir skemmtikraftar eru að troða upp um allan bæ næstu daga auk þess sem fjölbreytt dagskrá er í boði í Bæjarbíói, í hjarta Hafnar­ fjarðar. Kirkjur bæjarins, bókasafn og önnur samkomuhús eru einnig að bjóða upp á tónleika og ýmsa skemmtun. Það er því óhætt að segja að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í flóru af fjölbreyttu menningarlífi Hafnar­ fjarðar.“ Rósa mælir með því að taka dag­ inn snemma í Hafnarfirði. „Þannig er upplagt að heimsækja einhverja af þeim þremur sundlaugum sem eru í bænum en hver og ein hefur sitt sérkenni. Opnunartími þeirra hefur verið lengdur og verður til að mynda hægt að fara í jólasund á aðfangadag og áramótsund á gamlársdag þegar opið verður undir hádegi. Eftir sundferðina er tilvalið að koma við í bakaríi eða á kaffihúsi áður en haldið er á vit menningar og verslunar. Síðan mæli ég með því að taka rölt um Strandstíginn frá Norðurbakka að Flensborgarhöfn og líta á þá sýningu sem þar er að finna um sögu Hafnarfjarðar.“ Gómsætar veitingar, hönnun og handverk Jólaþorpið er opið allar helgar á aðventunni og segir Rósa nauð­ synlegt að fara að minnsta kosti eina ferð þangað til að upplifa stemninguna, njóta jólaskemmt­ unar og söngva á sviði samhliða því að ganga á milli fallegra jólahúsa, skoða og kaupa fallega vörur. „Í ár er lögð aukin áhersla á mat. Þann­ ig er til dæmis til sölu lambakjöt beint frá býli í ýmsum útfærslum, geitaostar og hágæða kaffi. Það eru mismunandi söluaðilar í jólahús­ unum milli helga og jafnvel daga sem gerir þau meira lifandi og fjöl­ breytileg og er fólki hvatning til að koma oftar en einu sinni í þorpið Hafnarfjörður á aðventunni Hafnarfjörður er jólalegur og líflegur yfir aðventuna og iðar af mannlífi. Fjölmargt skemmtilegt er í boði fyrir alla fjölskylduna dagana fyrir jólin og taka bæjarbúar vel á móti gestum og gangandi. Stemningin í Jólaþorpinu í Hafnarfirði er engu lík. Boðið er upp á afþreyingu fyrir fólk á öllum aldri og þorpið er landsþekktur söluvettvangur fyrir ýmiss konar gjafavöru og matvæli fyrir jólin. KYNNINGARBLAÐ 1 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 4 4 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 C F -7 E D 0 2 1 C F -7 D 9 4 2 1 C F -7 C 5 8 2 1 C F -7 B 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 4 4 s _ 1 4 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.