Fréttablaðið - 15.12.2018, Side 56
Vera
Einarsdóttir
vera@frettabladid.is
Systurnar Elísabet og Ragn-heiður Stefánsdætur, sem báðar eru sjúkraþjálfarar
að mennt og búsettar á Akranesi,
þykja færar í eldhúsinu og eru oft
og iðulega beðnar um uppskrift
að því sem þær gera. Þær hafa
verið með matarsnappið Matar-
lyst um tíma þar sem þær leyfa
sístækkandi hópi fólks að fylgjast
með störfum sínum í eldhúsinu.
Fyrir nokkrum mánuðum opn-
uðu þær samnefnda Facebook-
síðu þar sem uppskriftirnar fá að
lifa og hægt er að fletta þeim upp.
„Við höfum frá unga aldri
fengið að baka og njóta okkar
í eldhúsinu. Við fáum yfir-
leitt mikið lof fyrir það sem við
bjóðum upp á og ákváðum að
opna uppskriftabækurnar okkar
fyrir áhugasömum og deila okkar
uppáhaldsréttum. Því hefur
verið vel tekið og alltaf fleiri sem
fylgjast með,“ segir Elísabet.
Nú fyrir jólin eru systurnar
eðli málsins samkvæmt á kafi í
jólabakstri og féllust á að deila
tveimur vinsælum uppskriftum
með lesendum. Annars vegar
uppskrift að lakkrísís með Ópal-
skoti og fylltum lakkrísreimum
sem Ragnheiður setti saman og
kallar jólaísinn í ár og Sörum sem
þær segja þær allra bestu.
Deila bestu uppskriftunum
Systurnar Elísabet og Ragnheiður Stefánsdætur eru ástríðukokkar og fóru nýverið að deila
uppáhaldsuppskriftum með áhugasömum, uppskrift að lakkrísís og ómótstæðilegum Sörum.
Elísabet og Ragnheiður
njóta sín best í eldhúsinu.
Systurnar fullyrða að þessar Sörur séu þær bestu. Ótrúlega fallegar kökur.
Jólaísinn í ár
6 eggjarauður
200 g sykur
70 ml Opal skot með pipar, þessi
brúni
½ l rjómi léttþeyttur
200 g fylltar lakkrísreimar skornar
smátt niður
Léttþeytið rjómann, leggið til
hliðar. Eggjarauður og sykur þeytt
þar til létt og ljóst. Bætið Opalskoti
út í. Látið vélina ganga á lægsta
hraða í ca. ½ -1 mín. Blandið rjóm-
anum varlega út í eggjablönduna
með sleikju í smáum skömmtum.
Að síðustu eru smátt skornar
lakkrísreimar settar út í. Ísinn
er settur í skál eða annað ílát og
frystur. Hann er svo skreyttur með
lakkrísreimum.
Sörur … þær allra bestu
Botn
8 eggjahvítur
4 dl flórsykur
300 g hakkaðar möndlur
½ tsk. lyftiduft
Stífþeytið hvíturnar ásamt flór-
sykri. Bætið lyftidufti út í ásamt
möndlunum og hrærið ofurvarlega
með sleikju. Klæðið bökunar-
plötur með bökunarpappír. Notið
2 teskeiðar og búið til litlar kökur.
Gott að miða við að hver sé 1 tsk.
og að hafa gott bil á milli. Bakið
við 175°C í 12 til 15 mín. Takið út
úr ofninum og kælið vel. Takið svo
kökurnar af með spaða þegar þær
eru orðnar kaldar.
Krem
250 g sykur
2 dl vatn
8 eggjarauður
500 g lint smjör
4 msk. Nesquik
3 msk. bökunarkakó
Setjið vatn og sykur í pott og sjóðið
vel saman eða þar til verður að
sírópi. Þetta þarf að sjóða í að
minnsta kosti 15 mín. þar til
þykkt. Á meðan eru eggjarauðurn-
ar þeyttar vel. Hellið svo sírópinu
í mjórri bunu út í eggjarauð-
urnar og þeytið vel þar til blandan
kólnar. Þá er smjörið skorið í
kubba og blandað varlega út í
hrærivélarskál með eggjablönd-
unni. Þegar allt smjörið er komið
saman við skal blanda Nesquik og
kakói út í og þeyta áfram. Athugið
að það tekur tíma að þeyta þetta
krem vel saman.
Þá tekur við handavinna við að
smyrja kremi með borðhníf á eina
köku í einu. Gott er að raða þeim
í eldfast mót eða djúpan bakka
og frysta. Loks eru 400 grömm af
suðusúkkulaði brædd yfir vatns-
baði og frosnu kreminu dýft ofan
í. Kökunum er raðað aftur í sama
form og þær frystar þar til á að
bera þær fram.
Í langferð um landið byrjuðu þau að upphugsa spil sem hefði ákveðna eiginleika sem hentaði
þeirra vinahópi og þeim fjöl-
skyldumeðlimum sem þau spila
oftast með. Bergur og Tinna spila
gjarnan með nokkrum öðrum
pörum og vildu því búa til spil
sem hentar stærri hópum. Þau
sjálf hafa gaman af því að úthugsa
leiki og þrautir en vildu prófa að
búa til spil sem fengi fólk til að
tala saman frekar en að veltast um
í heilabrotum. Og til þess þurfti
spilið að vera fljótlegt að læra
og auðspilað. Afrakstur þessarar
hugmyndavinnu er nýtt, íslenskt,
frumsamið spil sem heitir Sjónar-
spil.
„Þetta er búið að vera langt ferli
en hefur gengið ótrúlega vel,“ segir
Bergur. „Við hönnuðum þetta allt
frá grunni, prófuðum prufugerðir
á okkar nánustu mörgum sinnum
og réðumst svo í framleiðsluna
sem var að hluta til fjármögnuð
með hópfjármögnun á Karolina
Fund sem gekk algerlega vonum
framar. Það sem hefur svo verið
frábært er að sjá hversu góðar
viðtökur spilið hefur fengið og að
fólk skemmtir sér í raun og veru
við spilamennskuna eins vel og við
höfðum vonast til.“
Sjónarspil gengur út á að lýsa
meðspilurum sínum með orðum
úr spilabunkanum og það á að
leiða í ljós hvernig þeir sem spila
koma öðrum fyrir sjónir – en það
er það sem heiti spilsins vísar til.
„Það er eiginlega langskemmti-
legast að sjá þegar foreldrar eða
makar verða steinhissa á því
hvernig börnin eða betri helm-
ingurinn koma öðrum fyrir sjónir.
Það að einhver sé snyrtipinni er til
dæmis oft mjög umdeilt! Lýsingar-
orðin eru flest á jákvæðum nótum
í þessu spili en við útbjuggum líka
aukapakka sem er merktur 18+
þar sem fyrir koma aðeins tví-
ræðari orð,“ segir Bergur. „Spilið
sjálft er merkt fjórtán ára og eldri
en við höfum heyrt af foreldrum
sem hafa spilað þetta með yngri
börnum. Spilið eykur orðaforða
hjá börnum, og satt best að segja
fullorðnum líka, því áður en
leikurinn byrjar er hægt að fara
yfir og útskýra orð sem spilarar
þekkja ekki.“
Þau hjónin byrjuðu framleiðslu-
ferlið tímanlega svo að spilið gæti
verið komið í verslanir fyrir jól. „Í
okkar fjölskyldum, eins og eflaust
svo mörgum á Íslandi, eru spil
og samverustundir þeim tengdar
algjörlega samofnar jólahátíð-
inni. Spil eru iðulega gefin sem
jólagjafir í okkar fjölskyldum og
möndlugjöfin er alltaf spil. Frí-
dagarnir eru svo nýttir til þess að
prófa ný spil eða rifja upp gömul
og góð. Það finnst flestum gaman
að spila, svo gaman að það er alveg
hægt að líta upp frá skjánum í
smástund,“ segir Bergur kíminn.
Spilið fæst í öllum helstu versl-
unum landsins. Hægt er að fræðast
nánar um það á Facebook undir
Sjónarspilið. Kynning verður í Spila-
vinum og A4 í Kringlunni í dag og í
A4 í Smáralind á morgun.
Sjónarspil
fær fólk til að hlæja
Tinna og Bergur með Sjónarspil sem þau hönnuðu frá grunni. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Sjónarspil kemur öllum í gott skap yfir jólin.
Hjónin Tinna
Finnbogadóttir
og Bergur Hall-
grímsson hafa
lengi haft ánægju
af því að setjast
niður með vinum
og fjölskyldu til
að spila.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
F
-3
E
A
0
2
1
C
F
-3
D
6
4
2
1
C
F
-3
C
2
8
2
1
C
F
-3
A
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K