Fréttablaðið - 15.12.2018, Page 64
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS.
Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is
Sjúkraþjálfari
Laus er til umsóknar 90% staða sjúkraþjálfara á Reykjlaundi. Um
er að ræða eitt starf sem skiptist í 60% verkefnastjórastöðu á
verkjasviði og 30% stöðu hreyfistjóra.
Staðan er laus frá og með 1. apríl 2019.
Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegum teymum þar sem áhersla
er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Krafist
er frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum, skipulagshæfileika og
góðrar hæfni í mannlegum samskiptum.
Hæfnikröfur:
• Íslenskt starfsleyfi.
• Góð og almenn færni í mannlegum sam skiptum og samvinnu.
• Æskileg er reynsla af teymisstarfi og
meðferð einstaklinga með langvinna verki.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags sjúkraþjálfara og
fjármálaráðherra auk stofnanasamnings Félags sjúkraþjálfara og
Reykjalundar.
Upplýsingar um starfið veitir
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðusjúkraþjálfari í síma 585 2160
eða í gegnum netfangið asdiskri@reykjalundur.is og
Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri í síma 585 2143 eða í gegnum netfangið gudbjorg@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2019
Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á heima-
síðu Reykjalundar www.reykjalundur.is
Rannís er líflegur vinnustaður með nálægt 50 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska
og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun
og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum
sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á
þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.
Borgartúni 30, 105 Reykjavík,
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Rannís óskar eftir að ráða sérfræðing í fullt starf á alþjóðasvið stofnunarinnar. Starfið felur í sér að
hafa umsjón með Uppbyggingasjóði EES, vera landstengiliður fyrir undiráætlanir Horizon 2020
rannsókna- og nýsköpunaráætlunar ESB og taka virkan þátt í erlendum samstarfsverkefnum. Einnig
er um að ræða þátttöku í kynningarmálum og skipulagningu viðburða í samstarfi við sviðsstjóra og
aðra starfsmenn sviðsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
l Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
l Reynsla af verkefnastjórnun og upplýsingamiðlun er æskileg
l Reynsla af rannsóknum og þekking á vísindasamfélaginu er kostur
l Mjög góð samstarfshæfni og samskiptafærni áskilin
l Færni í notkun algengra tölvuforrita og góð almenn tölvukunnátta áskilin
l Mjög góð íslenskukunnátta og mjög góð færni í ensku, rituðu og skrifuðu máli, önnur
tungumálakunnátta er kostur
l Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, frumkvæði
og veita góða þjónustu
Upplýsingar um starfið veitir Aðalheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri alþjóðasviðs, í síma 515 5806
eða í netfangi: adalheidur.jonsdottir@rannis.is.
Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 2019.
Sækja skal um á vefsíðu Rannís: www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/
og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um starfið.
Sérfræðingur á alþjóðasviði
Blómaskreytir óskast til
starfa í Blómavali Skútuvogi
Hjá Blómavali er lifandi starfsumhverfi, öflug liðsheild og frábær starfsandi.
Lögð er mikil áhersla á símenntun og að starfsmenn fái tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
Gildin okkar eru: Metnaður, þjónustulund og sérþekking.
Leitað er að vandvirkum og fagmenntuðum blómaskreyti með frjóa
hugsun til þess að bætast í hóp öflugra starfsmanna Blómavals.
Helstu verkefni eru gerð blómaskreytinga, vöruframsetning og sala
og þjónusta við viðskiptavini.
Hæfniskröfur:
• Starfsreynsla úr blómaverslun og af sölustörfum
• Góð reynsla af blómaskreytingum
• Listrænt auga og fagurfræðileg hugsun
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki í starfi
• Gott vald á íslensku
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Díana Allansdóttir á dianaa@husa.is
Umsóknarfrestur til og með 4. janúar 2019.
Sótt er um starfið á www.husa.is/laus-storf
Hvetjum bæði kynin til þess að sækja um starfið.
Blómaval er stórmarkaður með allt fyrir blóma- og garðáhugafólk.
Hjá okkur eiga áhugamenn um ræktun að fá allt sem hugurinn girnist og faglega þjónustu.
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
F
-8
8
B
0
2
1
C
F
-8
7
7
4
2
1
C
F
-8
6
3
8
2
1
C
F
-8
4
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K