Fréttablaðið - 15.12.2018, Side 94
Jólin snúast svo
mikið um hefðir
og fólk vill aðallega
heyra lög sem það þekk-
ir. Við virðum það en
setjum lögin stundum í
nýja búninga.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Öll
merk-
in okkar
eru vand-
lega valin,
en þau eru
nú orðin
níu talsins.
Ég man hreinlega ekki hvernig hugmyndin vaknaði en árið 2011 þegar við héldum fyrstu
tónleikana vorum við öll saman í
Barbörukórnum í Hafnarfjarðar-
kirkju og líklega höfum við bara
verið svona þyrst í að syngja fleiri
jólalög,“ segir Jóhanna sem er
söngvari líkt og Þóra og Örvar en
maður Jóhönnu, Bjartur Logi, er
organisti og píanóleikari.
Strax í upphafi var ákveðið að
hafa ókeypis aðgang að tónleikun-
um. „Maður veit að ekki allir hafa
efni á að fara á jólatónleika og við
litum á þetta sem okkar framlag.
Kirkjan styrkir okkur síðan með
því að við þurfum ekki að borga
leigu.“
Góð jólastund
Á þessum áttundu tónleikum
jólahjónanna verður bæði spilað
og sprellað. Dagskráin er ætluð
öllum, bæði fullorðnum og ekki
síður börnum. „Ég á til dæmis níu
ára systurdóttur sem á að vera á
skautasýningu á laugardaginn
meðan tónleikarnir eru og hún
harðneitar að mæta því hún ætlar
alls ekki að missa af þessum tón-
leikum,“ segir Jóhanna glettin.
Tónleikarnir eru klukkustundar-
langir. „Okkur þótti það passlegt
enda eru allir svo uppteknir á
þessum tíma.“
Í nýjum búningi
Klassísk jólalög verða í fyrir-
rúmi á tónleikunum. „Jólin snúast
svo mikið um hefðir og fólk vill
aðallega heyra lög sem það þekkir.
Við virðum það en setjum lögin
stundum í nýja búninga. Sumt
endurnýtum við frá fyrri árum en
svo gerum við alltaf eitthvað nýtt,“
segir Jóhanna. Annað veifið hafa
leynigestir skotið upp kollinum
og þannig verður það í ár. „Við
reyndar auglýsum alltaf hver er
leynigestur og í ár er það Hallur
Guðmundsson vinur okkar og
bassaleikari. Hann mun spila með
okkur og sprella dálítið eins og
honum er einum lagið.“
Tónleikarnir bera heitið Hátíð í
bæ og eru löngu orðnir ómissandi
hluti af aðventunni fyrir marga,
ekki síst söngvarana sjálfa. „Þetta
er orðið hluti af okkar jólahefð og
ég veit ekki hvað við myndum gera
ef við hættum þessu einn daginn.
Líklega myndum við bara samt
hittast til að æfa,“ segir Jóhanna
glaðlega og bætir við að desember
sé skipt upp í tvö tímabil hjá
hópnum. Fyrir og eftir tónleika.
„Þegar þeir eru yfirstaðnir getum
við loks einbeitt okkur að öllu
hinu sem þarf að gera fyrir jólin.
Og það hefur alltaf reddast.“
Tónleikarnir hefjast í dag,
laugardag, klukkan 17 í Hafnar-
fjarðarkirkju. Jólahjónin munu
einnig vera með tónleika á Hrafn-
istu í Hafnarfirði 17. desember
klukkan 13.30, Sólvangi þann 18.
klukkan 14.30 og í Drafnarhúsinu
20. desember klukkan 11.
Jólahjón boða hátíð í bæ
Jólahjónin Bjartur Logi Guðnason og Jóhanna Ósk Valsdóttir og Örvar Már Kristinsson og Þóra
Björnsdóttir bjóða til jólatónleika í Hafnarfjarðarkirkju í dag áttunda árið í röð. Ókeypis aðgangur.
Það er alltaf líf og fjör á jólatónleikunum Hátíð í bæ í Hafnarfjarðarkirkju. Þeir fara fram í dag klukkan 17 og er að-
gangur ókeypis. Tónleikarnir eru fyrir löngu orðnir ómissandi hluti af aðventunni fyrir marga. Mynd/SIGTRYGGUR ARI
SKÓHÖLLIN
Firði Hafnarfirði s. 555 4420
Loðfóðraðir leðurskór
með mannbroddum
sem er smellt fram.
Dömstærðir 36-41
Herrastærðir 41-46
Verð 19.995 kr.
Tilvalið í jólapakkann
Apríl skór er falleg skóverslun á Garðatorgi 4 í Garðabæ sem selur dömuskó og fylgi-
hluti. Tinna Rún Davíðsdóttir á og
rekur verslunina, en hún er 31 árs
og fædd og uppalin í Garðabæ.
„Ég hef unnið í skóbransanum
í 14 ár og var lengi innkaupastjóri
fyrir skóverslanir hér á landi,“ segir
Tinna. „Núna er ég að klára BA-
nám í textílhönnun í Bretlandi og
útskrifast næsta vor.
Við leggjum mikið upp úr góðu
viðmóti og persónulegri þjónustu,“
segir Tinna. „Við höfum fengið
gríðarlega góðar viðtökur í Garða-
bænum og erum mjög þakklát fyrir.
Öll merkin okkar eru vandlega
valin og það hefur bæst við merkin
hjá okkur, sem eru nú orðin níu
talsins,“ segir Tinna. „Þar má helst
nefna sænska merkið Ten Points,
sem hefur vakið mikla lukku,
ástralska merkið Senso, sem er
ótrúlega flott, og Free People, sem
er með aðeins öðruvísi skó en við
erum vön að sjá.
Verslunin verður eins árs í næstu
viku en hefur nú þegar fest sig í
sessi sem ein glæsilegasta skó-
verslun landsins,“ segir Tinna. „Við
ætlum að halda upp á afmælið
næsta þriðjudag, þann 18. desem-
ber, og bjóða upp á 20% afslátt af
öllum vörum þann daginn af því
tilefni.
Við erum einnig með vefverslun
á slóðinni www.aprilskor.is, þar
sem hægt er að lesa um skóna og
merkin í rólegheitunum,“ segir
Tinna. „Við bjóðum upp á fría
heimsendingu á öllum pöntunum
yfir 10.000 krónum.“
Árs afmæli hjá Apríl skóm
Skóverslunin Apríl skór í Garðabæ hefur fest sig í sessi sem ein glæsilegasta skóverslun landsins.
Verslunin heldur upp á afmælið næsta þriðjudag með því að bjóða 20% afslátt af öllum vörum.
Tinna Rún á og rekur verslunina Apríl skór á Garðatorgi 4, en hún er 31 árs
gamall Garðbæingur með 14 ára reynslu af skóbransanum. MYNDIR/EYÞÓR
Í Apríl skóm eru
seldir fallegir
dömuskór og
fylgihlutir og
mikið er lagt
upp úr góðu
viðmóti og
persónulegri
þjónustu.
18. desember verður boðið upp á
20% afslátt af öllum vörum.
6 KYNNINGARBLAÐ 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RHAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
C
F
-6
B
1
0
2
1
C
F
-6
9
D
4
2
1
C
F
-6
8
9
8
2
1
C
F
-6
7
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K