Fréttablaðið - 15.12.2018, Page 96
Gospelkór Jóns Vídalíns ásamt Vídalínskirkju verður með jóla- og styrktartón-
leika í Vídalínskirkju annað kvöld
kl. 20. Miðaverð er 2.000 kr. og
rennur allur aðgangseyrir óskiptur
til Minningarsjóðsins Arnarins.
Frítt er inn fyrir börn 12 ára og
yngri. Gospelkórinn mun flytja
bland af gömlu og nýju efni í glæsi-
legum útsetningum og halda uppi
fjörinu ásamt hljómsveit undir
stjórn Davíðs Sigurgeirssonar líkt
og þeim einum er lagið.
Markmiðið minningarsjóðsins
er að auka tækifæri barna og
unglinga til úrvinnslu eftir missi
ástvinar. Farið er í sumarbúðir eina
helgi á ári og svo eru fjórar sam-
verur yfir vetrartímann í safnaðar-
heimili Vídalínskirkju.
Menningar- og listamiðstöð
Hafnarfjarðar
Opið fram að jólum alla daga
nema þriðjudaga kl. 12–17.
Tökum vel á móti ykkur
á aðventunni.
Strandgata 34
220 Hafnarfjörður
www.hafnarborg.is
Í Hafnarborg stendur nú yfir
sýningin SNIP SNAP SNUBBUR
með nýjum verkum eftir
Guðmund Thoroddsen.
Einnig eru Kærleikskúlan og
Jólaóróinn 2018 fáanleg í safn-
búð okkar til 19. Desember.
Á aðventunni er fátt skemmtilegra
en að velja jólatré úti í skógi.
Jólaskógur verður í Smalaholti í Garðabæ í dag, laugar-daginn 15. desember, frá kl.
12-16 á vegum Skógræktarfélags
Garðabæjar. Aðkoma að svæðinu
er frá Elliðavatnsvegi. Fólki gefst
hér kjörið tækifæri til að velja sér
draumajólatréð í skóginum og fella
sjálft í fögru umhverfi. Hægt er að
velja um bæði fallegar furur og
glæsilegt greni. Á sama stað verður
til sölu tröpputré og eldiviður.
Boðið verður upp á kakó og pipar-
kökur. Skógræktarfélagið í Garða-
bæ var stofnað árið 1988 og þrátt
fyrir ungan aldur hefur félagsstarf-
ið alla tíð verið öflugt, enda um að
ræða félag fyrir alla fjölskylduna,
með yfir þrjú hundruð félaga.
Jólaskógur í
Smalaholti
Mörgum þykja engin jól án þess að fara í kirkju og taka þátt í aftansöng
á aðfangadag. Það er áhrifarík
helgistund og er örugglega einkar
hátíðlegt að taka á móti jólunum
í Bessastaðakirkju sem stendur í
túnfæti seturs forseta lýðveldisins.
Bessastaðir eru fornt kirkjuból.
Þar hefur staðið kirkja frá því um
aldamótin 1200 svo víst sé, en
jafnvel allt frá kristnitöku árið
1000. Steinkirkjan sem nú stendur
á Bessastöðum var byggð utan um
eldri timburkirkju sem síðan var
rifin. Bygging hennar hófst árið
1773 en hún var fullbyggð árið
1823, eftir hálfa öld í byggingu.
Kirkjan var reist úr grjóti sem tekið
var úr Gálgahrauni og var hún vígð
árið 1796.
Aftansöngur í Bessastaðakirkju
hefst klukkan 17 á aðfangadag og
hátíðarguðþjónusta verður haldin
á jóladag klukkan 14.
Aftansöngur á
Bessastöðum
Styrktartónleikar í Vídalínskirkju
Markmið sumarbúðanna er:
1. Skapa vettvang fyrir börn og
unglinga að koma og segja sögu
sína í öruggu umhverfi.
2. Vettvangur fyrir börn og ungl-
inga til að hitta önnur ungmenni
sem eru í sömu sporum.
3. Staður þar sem unga fólkið lærir
að búa til verkfæri til að takast á
við daglegt líf.
4. Staður þar sem má líka hafa
gaman saman.
5. Staður til að hjálpa unga fólkinu
að nálgast sorgina á heilbrigðan
máta.
6. Staður þar sem unga fólkið lærir
að það er ekki eitt.
7. Staður þar sem þau fá tækifæri
til að heiðra minningu látinna
ástvina sinna.
Vídalínskirkja í Garðabæ. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RHAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
C
F
-7
E
D
0
2
1
C
F
-7
D
9
4
2
1
C
F
-7
C
5
8
2
1
C
F
-7
B
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K