Fréttablaðið - 15.12.2018, Side 98
Þau Björn Loki og Elsa Jónsdóttir kalla sig Krot og Krass og eru nýbúin að opna stúdíó í gömlu húsi við Laugaveg. Þegar ég mæti sitja þau
hvort sínum megin við upphækkað
borð og teikna, Elsa á blað, Björn í
tölvu. Segjast samt mála mest stór
verk, beint á veggi. „Við gerum ein-
hverjar skissur fyrst,“ segir Björn.
„Já, erum með grunnhugmyndir,“
segir Elsa. „En finnum oftast vegg-
inn fyrst. Svo pælum við í hvað við
eigum að setja á hann.“
Þau eru sem sagt vegglistamenn.
Eftir að hafa lært grafíska hönnun
í Listaháskólanum beindist áhugi
beggja að leturhönnun og þau byrj-
uðu að vinna saman þess vegna.
„Það eru ekki margir í þessu fagi,
enda er það mjög tímafrekt. Það er
mest fyrir nörda sem gleyma sér í
smáatriðum formfræðinnar. Við
höfum gaman af því,“ segir Elsa.
Hún upplýsir að þau hafi unnið
saman í fimm ár og verið kærustu-
par um helminginn af tímanum.
„Fínt að prófa að vinna saman
fyrst!“ Björn segir þau undanfarið
hafa pælt mikið í íslenska höfða-
letrinu. „Margar af okkar skissum
eru út frá höfðaletri og íslenskum
útskurði. Við höfum verið að gera
nútímalegar útgáfur af letrinu, með
okkar tvisti.“
Vegglistin blómstrar í Úkraínu
Í sumar ferðuðust Björn og Elsa
um á húsbíl og máluðu veggverk
í fimm Evrópulöndum, að Íslandi
meðtöldu. Það landanna sem mest
er í umræðunni nú er Úkraína, þar
stoppuðu þau í tvo mánuði og mál-
uðu þrjú höfðaleturs-veggverk, tvö í
Lviv, sem Björn kallar Kúbu austurs-
ins, og eitt stærsta veggverk sem
þau hafa gert, í höfuðborginni Kíev.
Hvernig hófst það ævintýri?
„Við höfðum samband við Oleg
Sosnov sem vinnur að því að útvega
vegglistaverk í Kíev, er tengiliður
milli listafólks og borgaryfirvalda.
Þar eru ráðamenn opnir fyrir að
breyta hinu gamla sovéska útliti
og gera eitthvað nýtt og spennandi.
Tónlistarsenan er blómstrandi og
vegglistin líka,“ segir Björn.
Elsa segir þó eima eftir af for-
tíðinni í hugum íbúanna. „Við
máluðum vegg á skólabyggingu í
íbúðahverfi, þar sem tugþúsundir
búa í stórum blokkum. Umferð
gangandi fólks fram hjá okkur var
stöðug allan daginn í tvær vikur
en einungis fjórar eða fimm mann-
eskjur yrtu á okkur og spurðu út í
hvað við værum að gera. Ef börn
stoppuðu þá drógu foreldrarnir þau
umsvifalaust í burtu. Þetta var sér-
stakt því á Íslandi – og nánast hvar
sem við höfum verið að mála, er fólk
sífellt að stoppa og velta fyrir sér á
hvers vegum við séum, hvaðan við
komum og hvað við séum að bar-
dúsa. En í þessu hverfi var allt annað
uppi á teningnum. Oleg sagði þetta
vera leifar af gamla sovéska hugs-
unarhættinum, að skipta sér ekki
af eða tjá sig. Það hafi greypst svona
í þjóðina og erfðist milli kynslóða.“
Björn tekur við: „Partur af því sem
Oleg er að gera er að reyna að lífga
upp á svæði þar sem börn eru, með
því að planta málverki eða einhverj-
um skrítnum hlut inn í umhverfið
og fá þau til að hugsa út fyrir boxið.
Hann fékk okkur til að kynna verkið
fyrir krökkunum í skólanum. Þeim
fannst líka áhugavert að við værum
á húsbíl. „Af hverju viljið þið búa í
bíl, þegar þið hafið efni á að fljúga?“
spurðu þau. Oleg sagði okkur að
einungis 2-5% þjóðarinnar flygju til
annarra landa. Það telst alger lúxus.“
Þau Elsa og Björn fundu þó fyrir
gerjun í listalífinu í Kíev. „Fólkið
sem er á okkar aldri er fyrsta kyn-
slóðin sem elst upp utan Sovétríkj-
anna. Það er að byggja upp nýja
listasenu en hefur í raun engar
fyrirmyndir því lítið var um frjálsa
sköpun á sovéttímanum svo það er
í raun 40-50 ára gat í listasögunni og
unga fólkið getur ekki farið í gallerí
til að skoða grafíkverk frá þessum
tíma. En nú eru komnir góðir lista-
háskólar,“ lýsir Björn.
Þó fréttir berist af stríðsátökum
í Úkraínu urðu Björn og Elsa ekki
vör við þau. „Í Kíev er ekki borgara-
styrjöld og áhrif stríðsins minni en
maður hélt fyrst,“ segir Elsa. „En
Oleg sagði vegglistafólk heyra skot-
hljóð í borgum nærri landamær-
unum, þar sem herinn er grár fyrir
járnum, þó þar búi líka fólk sem
reynir að lifa sínu venjubundna lífi.
Þar var skotgat á einum skóla og
vegglistamaður málaði inn í það sár.
Við bjuggumst samt við meiri upp-
lausn í landinu og að stríðið væri á
allra vörum. Það er ekki þannig.“
Björn tekur undir það. „Stríðið er
meira í umræðu út á við. Kannski er
það rússneskum öfgamönnum í hag
að koma óorði á Úkraínu, þannig að
hún eigi erfiðara með að tengja sig
við Evrópu. Það er talað um þetta
sem fréttastríð.“ Hann segir það þó
hafa tekið þau Elsu hátt í tíu tíma að
komast yfir landamærin til Úkraínu
frá Póllandi.
Spiluðu af fingrum fram
Ferðin hófst í Reykjavík í maí. „Við
keyrðum fyrst hálfan hring um
Ísland því við tókum ferjuna frá
Seyðisfirði. Máluðum einn vegg á
Siglufirði í snjókomu og ætluðum
að mála á fleiri stöðum en gátum
það ekki vegna veðurs. Flýgur fiski-
sagan, heitir verkið á Siglufirði,“
Skreyttu Evrópu
út frá íslensku letri
Listamennirnir Björn Loki og Elsa Jónsdóttir vissu ekki að þau
myndu enda í tveggja mánaða dvöl í Úkraínu þegar þau keyrðu
húsbílinn úr hlaði fyrr á árinu. Yfir fimm mánaða tímabil máluðu
þau leið sína í gegnum Evrópu en dvölin hófst í snjóhríð á Siglufirði.
Elsa og Björn við verkfæravegginn og myndina sem hefur fylgt þeim í öllum þeirra stúdíóum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Annað tveggja verka sem parið vann í úkraínsku borginni Lviv.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
ÞAR VAR SKOTGAT Á
EINUM SKÓLA OG VEGG-
LISTAMAÐUR MÁLAÐI
INN Í ÞAÐ SÁR.
↣
1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R48 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
C
F
-7
9
E
0
2
1
C
F
-7
8
A
4
2
1
C
F
-7
7
6
8
2
1
C
F
-7
6
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K