Fréttablaðið - 15.12.2018, Qupperneq 104
H ann Jói Sig. er ekki bara leikari heldur líka söngvari. Rödd hans hljómar á nýjum diski sem tekinn var upp á tónleikum í
Salnum í fyrra. Hann heitir Flottasta
áhöfnin í flotanum og vísar til inni
haldsins, splunkunýrra sjómanna
laga, ásamt syrpu af gömlum og sígild
um. Titilinn má eflaust líka heimfæra
upp á flytjendurna, að minnsta kosti
segir Jóhann hljóðfæraleikarana á
plötunni vera einvalalið og líka kvint
ett sem syngi með honum.
Nýju lögin eru flest eftir Friðrik
Sturluson, bassaleikara í hinni víð
frægu sveit Sálinni hans Jóns míns, að
sögn Jóhanns. „Friðrik á tíu lög og alla
textana, Gummi Jóns, vinur hans úr
Sálinni gerði tvö lög og Gunni Þórðar
eitt. Svo hnýttum við saman syrpu úr
þekktum sjómannalögum eins og Land
leguvalsinum og Það gefur á bátinn við
Grænland.“
Í síðarnefnda textanum, sem er
eftir Kristján frá Djúpalæk, koma fyrir
ljóðlínurnar „En geigþungt er brimið
við Grænland og gista það kýs ekki
neinn, hvern varðar um draum þess og
vonir og þrár sem vakir þar hljóður og
einn …“ Jóhann segir nýju textana ein
mitt fjalla dálítið um líðan sjómanna
í kulda og ágjöf úti í ballarhafi, hugs
andi heim, og einnig um áhyggjur ást
vinanna í landi. „Þetta er aðeins annar
vinkill á sjómannalífið en oft var sungið
um í den,“ segir Jóhann. „Mér finnst
svolítið gott að skila þessari plötu af
mér vegna föður míns sem stóð sína
pligt á sjónum í 25 ár. Þó okkar sam
band hafi verið brokkgengt þá syng
ég þetta fyrir pabba. Eitt úthaldið hjá
honum stóð í þrettán mánuði, þá var
veitt við Grænland, siglt með aflann til
Þýskalands, stoppað í 36 tíma og stímt
aftur á miðin. Þetta var auðvitað rosa
legt.“
Platan fæst í föstu formi í Hagkaup,
að sögn Jóhanns. „Svo er hún á netinu,
nú renna öll vötn til Spotify.“
Jóhann tekur þátt í Ríkharði þriðja,
jólaleikriti Borgarleikhússins, í þriðja
sinn. „Fyrst var það í Þjóðleikhúsinu
1986, þá með öllu járninu, skjöldum
og spjótum. Við klæddum hver annan
í brynjur og hjálma og mikill tími fór
í að æfa bardaga með öllum vopnun
um. Næst var það líka í Þjóðleikhúsinu
2003. Þá var Hilmir Snær í titilhlut
verkinu en Helgi Skúlason ’86, nú er
það í höndum Hjartar Jóhanns Jóns
sonar.“ Jóhann segir leikhópinn fara
minnkandi eftir því sem tímar líði og
margir hafi fleiri hlutverk en eitt. „Ég
leik Hasting lávarð og borgarstjórann,
auk annarra hlutverka. Svo er ég að lesa
Harry Potter. Búinn að lesa sex bækur
inn á hljóðbók og er með þá sjöundu
og síðustu.“
Það er sem sagt ekki iðjuleysinu fyrir
að fara hjá Jóhanni. Hann kveðst hafa
verið í sveit öll sumur og alist upp við að
taka á því. „Viðkvæðið hjá einum bónd
anum var ávallt: „Þegar þú ert búinn í
þessu komdu þá til mín svo ég geti látið
þig í annað verk!“ gun@frettabladid.is
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ebba Ingibjörg Magnúsdóttir
Höfðagrund 21, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, laugardaginn 8. desember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
mánudaginn 17. desember klukkan 13.
Lilja Björk Högnadóttir Haraldur Friðriksson
Magnús Högnason Hrund Valgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Vinir, ættingjar, starfsfólk
krabbameinslækningadeildar
11E og líknardeildar – þakka
ykkur umhyggjuna í veikindum
og við andlát pabba míns,
tengdapabba og afa,
Benedikts Gunnarssonar
listmálara og fyrrv. dósents í myndlist
við KHÍ, Kastalagerði 13, Kópavogi,
sem lést þann 22. nóvember síðastliðinn.
Kærleikurinn varir.
Valgerður Benediktsdóttir
Grímur Björnsson
Gunnar Grímsson
Sóley Grímsdóttir
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson
Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag?
Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ég syng þetta fyrir pabba
Á diskinum Flottasta áhöfnin í flotanum syngur Jóhann Sigurðarson leikari ný
sjómannalög. Í textunum kemur sálarlíf sjómanna og ástvina þeirra við sögu.
Jóhann syngur öll lögin á nýrri sjómannaplötu. Þar fjalla textarnir ekki bara um hetjuna
sem stígur ölduna vígreif heldur líka tilfinningalíf hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og systir,
Sólrún Helga Hjálmarsdóttir
Norðurgarði 11, Hvolsvelli,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 11. desember.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
þriðjudaginn 18. desember kl. 16.00.
Jarðsett verður í Langholtskirkjugarði, Meðallandi,
fimmtudaginn 20. desember kl. 14.00.
Guðrún Ásta Lárusdóttir Guðmundur Pálsson
Vilborg Linda Indriðadóttir Jón Þór Stefánsson
Helga Björg Dagbjartsdóttir Magnús Einarsson
Vigfús Jón Dagbjartsson
Guðlaug Margrét Dagbjartsd. Björn Bragi Sævarsson
Sveinbjörg María Dagbjartsd.
Sævar Hjálmarsson Dagný Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð,
vinarhug og hlýju við andlát
og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Geirlaugar Guðmundsdóttur
Hafnarfirði.
Stuðningur ykkar í gegnum árin hefur verið ómetanlegur.
Helgi Vigfússon Elín Anna Hreinsdóttir
Hildur Vigfúsdóttir Jani Pitkäjärvi
og barnabörn.
Mér finnst svolítið gott að skila
þessari plötu af mér vegna
föður míns sem stóð sína pligt á
sjónum í 25 ár. Þó okkar sam-
band hafi verið brokkgengt.
1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R54 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
C
F
-3
E
A
0
2
1
C
F
-3
D
6
4
2
1
C
F
-3
C
2
8
2
1
C
F
-3
A
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K