Fréttablaðið - 15.12.2018, Síða 120
Bækur
kláði
HHHH
Fríða Ísberg
Útgefandi: Partus forlag
Fjöldi síðna: 200
Smásagnasöfn eru, þegar vel tekst til, eitt mest spennandi bókmennta-
formið. Kláði eftir Fríðu
Ísberg er einmitt þannig,
hver saga kallar á svörun frá
lesandanum, bæði vegna
stílbragða og orðsnilldar en
einnig vegna sýnar á hvers-
dagsleika sem segir meira
en allar stórsögur heimsins.
Uppbyggingin er einföld og
stíllinn tær sem gerir það að
verkum að lesandinn kemst
hvergi frá hughrifum sínum
heldur finnur sig í því óþol-
andi ástandi að verða bæði
að staldra við og melta það
sem hann var að lesa og drífa
sig inn í næstu sögu, næsta óþol.
Kláði er sennilega besta orðið yfir
þessa líðan.
Í fyrstu sögunni kynnumst við
síðmiðaldra hjónum sem búa
með tengdasyni og tengdadóttur
og sjáum tengdadótturina sem er
milli tvítugs og þrítugs með þeirra
augum. Í næstu sögu sjáum við aftur
unga konu með augum kærasta,
þó það sé ekki sami kærastinn og
persónan er ekki sú sama. Í þriðju
sögunni er þessi unga kona sem við
höfum nú séð frá tveimur sjónar-
hornum komin í aðra persónu, þú,
við erum með henni á leið heim af
djamminu, fylgjumst með henni
passa sig eins og skyldan býður,
skynjum hættuna sem felst í því að
vera hún, meira að segja í venjulegu,
„öruggu“ samfélagi. Næsta saga er
svo í fyrstu persónu, þar talar unga
konan sjálf og við erum komin inn
í sagnaheiminn, inn á djammið, í
kvíðann og hversdagslífið en um
leið tilfinningar sem sennilega
allar konur og karlar líka kannast
svo mætavel við, eitthvert undir-
liggjandi óþol sem þarf að bregðast
við, kannski með því að klóra sér.
Í öllum sögunum má skynja
þetta óþol, ýmist gegn aðstæðum
eða fólki. Konan sem dettur óvart
um klámfantasíur mannsins síns á
netinu, sú sem rekst á gömlu vin-
og óvinkonuna í röðinni í Bónus,
mamman sem bíður eftir því að
nágrannarnir lesi blöðin með mikil-
væga viðtalinu, fermingarstelpan
sem þolir ekki hvernig fermingar-
dagurinn hennar gleypir allt fyrsta
apríl grín eins og fermingin sjálf
gleypir leyfi hennar sjálfrar til að
fíflast og vera krakki, konan sem
getur ekki annað en hlaupið til að
reyna að flýja sorgina sem er nánast
óbærileg. Allar þessar konur og allt
þetta fólk er í einhverri spenni-
treyju sem verður til í því sem við
fyrstu sýn virðast hversdagslegar
aðstæður en sem seinna kemur í ljós
að eru aðeins birtingarmyndir við-
varandi óþolandi ástands, friðleysis
og andarteppu í samtíma þar sem
fólk er svo einmana, hjarðdýrin sem
þurfa snertingu og hitann frá öðrum
líkömum en lifa í staðinn fyrir ein-
hvers konar afskræmda útgáfu af
samfélagslegu samþykki sem er
eiginlega ekki samþykki heldur
dómur í formi læks eða komments
í snjalltækjum, sem kemur sérstak-
lega skýrt og nöturlega fram í einni
sögunni.
Fríða Ísberg er einn mest spenn-
andi rithöfundur sem ég hef komist
í tæri við lengi. Þessar sögur tala á
léttleikandi hátt til einhvers sem
er djúpt í okkur öllum, alvarlegrar
þarfar til að breyta samfélaginu og
það er svo einstaklega við hæfi að
birtingarmynd þess, aðalpersóna
og málpípa, sé hin unga kona sem
svo oft hefur verið passíft viðfang
og söguhreyfir bókmenntanna, án
raddar og verundar.
Brynhildur Björnsdóttir
Niðurstaða: Magnaðar hvers-
dagssögur um undirliggjandi óþol
gagnvart óviðunandi ástandi.
Að klæja í lífið
„Fríða Ísberg er einn mest spennandi rithöfundur sem ég hef komist í tæri við
lengi.“ segir gagnrýnandinn í dómi um Kláða. FréttaBlaðið/Sigtryggur ari
Síðustu sætin laus, frá kr. 365.000.
Dagsetningar: 15. febrúar - 2 mars., 2019.
Grænar ferðir í samstarfi við Discovery Travel í Costa Rica bjóða
upp á náttúruupplifun í einu fallegasta landi Mið Ameríku.
Við ætlum að njóta einstakrar náttúru og dýralífs, með
göngum og hugleiðslu, ásamt skoðunarferðum um regnskóa
og einstaka jarðfræði. Flogið til San Jose, sem er höfuðborg
Costa Rica. Ferðast um landið, til Tortuguero, Arenal þjóðgarðs,
Monteverde og Tamarindo þar sem við verjum síðustu dögum
ferðarinnar við fallega strönd.
HAFÐU SAMBAND
Netfang:
info@graenarferdir.is
sími: 864 1336
Fararsjórar eru Gróa Másdóttir jógakennari,
og Helga Bára Bartels jarðfræðingur.
í febrúar 2019COSTA RICA
Takk fyrir
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
þakkar öllum velunnurum sínum
innilega fyrir veittan stuðning
undanfarin 90 ár.
AFMÆLISÁR
MÆÐRASTYRKSNEFNDAR
REYKJAVÍKUR
90 ÁRA
Job.is
Þú finnur draumastarfið á
1 5 . d e s e m B e r 2 0 1 8 L a u G a r d a G u r70 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
C
F
-0
D
4
0
2
1
C
F
-0
C
0
4
2
1
C
F
-0
A
C
8
2
1
C
F
-0
9
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K