Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 2
N E S T L É B A R N A M A T U R , S Í M I 5 8 0 6 6 3 3, barnamatur@barnamatur.is, www.barnamatur.is
Hvert aldursbil þarf sérstaka fæðu
Tíðindi frá Nestlé
Fyrstu litlu skammtarnir. Milt bragð og mjúk áferð.
Innihalda aðeins eina eða fáar fæðutegundir. Unnið
þannig að barnið á auðvelt með að kyngja matnum.
Matur með aðeins grófari áferð og fleiri innihaldsefnum.
Gott að byrja að gefa þegar vel gengur með litlu
skammtana og barnið er orðið áhugasamara um mat.
Matur með bitum til að tyggja. Tilvalið að byrja að gefa
þegar tennurnar láta á sér kræla, oftast við 8 mánaða
aldurinn. Þá klæjar barnið í gómana og þarf að fá
eitthvað meira til að tyggja.
Matur með enn stærri bitum, fjölbreyttari og bragðmeiri.
Fyrir eldri börn sem eru orðin athafnasamari. Gott að
byrja að gefa þegar barnið er farið að standa og læra að
ganga, yfirleitt um eins árs aldurinn.
Brjóstamjólk er án nokkurs vafa besta fæðan
fyrir ungbörn. Hún inniheldur nákvæmlega
rétt hlutföll af öllum næringarefnum sem
hvert og eitt barn þarfnast. Þar að auki ver
brjóstamjólkin barnið gegn sýkingum.
Fram að sex mánaða aldri dafna flest
börn vel eingöngu á brjóstamjólk. Eftir það
þarf að fara að bæta öðrum fæðutegundum
við brjóstagjöfina.
Öll börn þroskast á sínum eigin hraða. Þess
vegna er ekki hægt að segja nákvæmlega til
um á hvaða aldri sé tímabært að byrja að
gefa barninu fyrstu matarskammtana og taka
síðan næsta skref.
Við hjá Nestlé höfum tekið tillit til þessa
og þróað „Barnamat þrep af þrepi“ en í þessi
fjögur mismunandi þrep skiptum við öllum
barnamatnum okkar.