Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 26

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 26
26 Ljósmæðrablaðið - júlí 2010 Í janúar 2010 fórum við tvær galvaskar norðlenskar ljósmæður á vit ævintýra á Grænlandi. Stefnan var tekin á Nuuk þar sem við unnum við ljósmæðrastörf. Nuuk er höfuðstaður Grænlands og þar búa u.þ.b. 15 þús. manns og fæðingar eru um 400 á ári. Ástæðan fyrir því að við fórum í þetta ævintýri er sú að dönsk ljósmóðir sem önnur okkar, þ.e. Málfríður (Malla) vann með í Færeyjum sumarið 2009 hafði samband þar sem mikill tímabundinn skortur var á ljósmæðrum í Nuuk. Í fyrstu fórum við að grínast með þetta, fannst það hálf fjar- lægt að við yrðum ljósmæður á Grænlandi í janúar kaldasta mánuði ársins, en svo létum við slag standa og ákváðum að láta ekki þetta tækifæri úr greipum okkar ganga. Þar sem við vorum með danskt og sænskt ljós- mæðraleyfi var umsóknarferlið auðvelt og gekk hratt fyrir sig. Við sendum pappíra út og stuttu seinna var allt frágengið s.s. flug, húsnæði, hótel o.s.frv. Þar sem flugsamgöngur eru frekar erfiðar yfir veturinn neyddumst við til að fljúga fyrst til Kaupmannahafnar og þaðan til Græn- lands. Alls þurftum við að taka fjórar flug- vélar til að komast á leiðarenda. Ferðalagið gekk mjög vel og allt gekk að óskum. Þegar við vorum búnar að koma okkur fyrir í íbúðinni, sem var hin huggulegasta, þurftum við að fylla á ísskápinn. Við vorum búnar að undirbúa okkur fyrir það að hlut- irnir væru öðruvísi en á Íslandi en bjuggumst hins vegar ekki við því að ganga inn í nánast tómar matvöruverslanir. Við fengum síðar að vita að ekki hafði komið skip frá Danmörku síðan fyrir jól og þar af leiðandi allt uppselt. Þess vegna voru matarinnkaupin frekar fátækleg í fyrstu - ekki til smjör, mjólk, ostur, grænmeti eða ávextir. Tveim dögum síðar kom skip og allt varð yfirfullt af vörum. Við vorum ráðnar á fæðingadeild þar sem tvær fullkomnar fæðingastofur voru til staðar. Fyrstu tvo dagana fengum við aðlögun en síðan tók alvaran við. Að taka á móti barni er eins hvar sem er í heiminum þannig að mesta púðrið fór í að koma okkur inn í skrán- ingu, tölvu og pappírsmál svo og almenna starfsemi sjúkrahússins. Það má segja að deildin sé eins konar göngu- og dagdeild, þ.e. ljósmæður eru einungis í húsinu frá kl. 8- 16 alla virka daga en eftir það eru bakvaktir. Á deildinni störfuðu að jafnaði 8 ljósmæður. Þrjár þeirra voru grænlenskar en hinar danskar. Við vorum í nánu samstarfi við deild sem kölluð er K3. Sú deild líkist að miklu leyti gömlu kvennadeild FSA, þegar allt sem snéri að konum var á sömu deild- inni: sængurlega, meðganga svo og almenn kvensjúkdómadeild. Á K3 störfuðu eingöngu hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar, þannig að ef t.d. þurfti að setja konu í monitor eða meta á einhvern hátt vorum við kallaðar til, á nóttu sem degi. Við fengum sinn vaktsímann hvor því að við vorum mikið á sólahringsvöktum. Einnig fengum við leigubílakort þar sem við notuðum leigubíla aðallega á kvöldin og næturnar. Við vorum mjög glaðar með að fá þetta leigubílakort þar sem okkur fannst ekki spennandi tilhugsun að þurfa að rölta einar á spítalann í myrkrinu. Maður gat lent í því að mæta fólki í misgóðu ástandi á rölti um nætur. Áður en við komum til Grænlands vissum við að mikið væri um alls kyns félagsleg vandamál. Samt sem áður höfðum við ekki gert okkur grein fyrir því að stærsta heil- brigðisvandamálið og jafnframt það kostn- aðarsamasta væru fóstureyðingar. Á Græn- landi er öðru hverju fóstri er eytt. Það var ekki óalgengt að hitta konur sem höfðu farið fjórum til sex sinnum í fóstureyðingu. Það sem kom okkur samt mest á óvart í þessu sambandi var að öll lyf og getnaðarvarnir eru fríar. Mikið er um kynsjúkdóma af ýmsu tagi og töluverð hassneysla jafnvel á meðgöngu og þar af leiðandi ofbeldi og misnotkun algeng. Ófrískar konur fengu oft þvagfærasýkingar af einhverjum ástæðum. Félagsleg staða var oft mjög slæm t.d. bjuggu heilu kynslóðirnar saman í lítilli blokkaríbúð og allt að þriggja ára bið var eftir leiguíbúð. Þeir sem voru atvinnulausir voru nánast upp á ættingja eða vini komnir vegna mjög lágra atvinnuleysisbóta. Til dæmis tók önnur okkar á móti barni hjá 44 ára einstæðri móður og fór hún heim með barnið til háaldraðra foreldra sinna sem bjuggu í lítilli blokk- aríbúð ásamt eldri dóttur konunnar. Mæðravernd fór fram á sjúkrahúsinu og var sinnt á deildinni okkar. Við komum ekki þar nærri vegna tungumálaörðugleika. Gott aðgengi var að túlk en flestir Grænlend- ingar í Nuuk tala góða dönsku. Það sama er hins vegar ekki hægt að segja um fólkið frá smærri stöðunum, það gat oft verið flókið. Ekki var boðið upp á hnakkaþykktarmælingu og voru því legvatnsástungur mjög algengar. Konum var boðið upp á 16 vikna sónar en hann var einungis notaður til þess að áætla meðgöngulengd en ekki fósturrannsókn eða fósturskimun eins og tíðkast hér á Íslandi. Grænlendingar eru almennt mjög gott og vingjarnlegt fólk og ekki þótti okkur erfitt að sinna grænlenskum fæðandi konum þrátt fyrir að algengt væri að fæðingarstofan væri full af ættingjum. Ættingjarnir héldu sér til hlés og voru rólegir og yfirvegaðir. Við fundum það fljótt að það eru sterk fjölskyldubönd á Grænlandi og mikið traust borið til ljós- mæðra. Önnur okkar var eitt sinn með konu í fæðingu þar sem maki, foreldrar konunnar og þrír eldri bræður hennar voru viðstaddir. Grænlenskt ævintýri Húsmæðraorlof Málfríður St. Þórðardóttir og María Egilsdóttir ljósmæður á fæðingardeild FSA Höfundar með forláta selskinnshúfur frá grænlenskum hönnuði sem kallar sig Kuka Design.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.