Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Page 4

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Page 4
4 Ljósmæðrablaðið - júlí 2015 Undanfarnar vikur hafa verið átakamiklar og mörgum mjög erfiðar. Ljósmæðrafélagið hefur staðið í mjög harðri kjarabaráttu ásamt öðru háskólamenntuðu fólki innan BHM. Þegar þessi pistill er skrifaður hefur verkfallið staðið í 10 vikur og búið að setja lög á það. Í upphafi voru ekki allar ljósmæður sáttar við framkvæmd verkfallsins en þegar á hólminn var komið stóðum við saman sem einn maður. Verkfallið hefur reynt mjög á allar ljósmæður sem í aðgerðunum stóðu. Eðli verkfalla er þannig að þau bitna alltaf á þriðja aðilanum en ég fullyrði að mikillar fagmennsku var gætt í að forgangsraða og öllum bráðatilfellum var sinnt. Mikil vinna er hjá formanni Ljósmæðrafélagsins ásamt kjaranefnd fyrir okkur. Að fylgjast með þessari baráttu getur maður ekki annað en farið að hugsa um sögupersónuna Don Kíkóta sem barðist við vindmyllur. Utanfrá séð virðist ríkið vera í sýndarviðræðum, það sem er í boði í dag er ekki í boði á morgun. Maður veltir fyrir sér hvernig framhaldið verður, á að nýta tímann vel til 1. júlí eða á að halda áfram að vera í sýndarviðræðum og bíða eftir gerðardómi? Margir hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum hjá Landspítalanum. Ekki hafa heyrst fréttir af uppsögnum ljósmæðra. Töluvert atvinnuleysi hefur verið meðal ljósmæðra og því setið um hverja stöðu. Fregnir hafa borist af því að nokkrar ljósmæður sem ekki hafa fengið fastráðningu hér á landi séu að leita fyrir sér erlendis og geta þær fengið vinnu strax. Í svona átökum er líklegt að við missum eitthvað af fólki úr landi. Íslenskt heilbrigðisstarfsfólk er vel menntað fólk sem er eftirsótt erlendis og er ég þá ekki bara að tala um lækna, það er eins og ríkið sé hræddara við að missa læknana úr landi en annað heilbrigðisstarfsfólk. En nú að efni blaðsins, tvær ritrýndar greinar eru í blaðinu. Það er mikilvægt að íslenskar ljósmæður taki þátt í alþjóðlegum og þvermenningarlegum samræðum um viðfangsefni sín og grundvalli þær á íslenskum rannsóknum. Önnur ritrýnda grein blaðsins fjallar um þetta. Er hún hluti af stærri rannsókn sem hefur þann tilgang að auka skilning á samhengi sjálfshlutgervingar, viðhorfi til tíðablæðinga, viðhorfi til þess að bæla blæðingar, líkamsþjálfunar, líkamsvitundar og upphafs blæðinga. Niðurstöður sýndu að viðhorf þátttakenda til blæðinga eru frekar hlutlaus. Þeim er þó frekar skapraun að blæðingum en telja ekki að þeim beri að leyna. Þátttakendur hafa litla skömm á líkama sínum, telja sig geta stjórnað útliti sínu og fylgjast vel með því og hugsa meira um líkamann út frá útliti hans en líkamlegri líðan. Vísbendingar eru um aukna notkun viðbótarmeðferða hjá barnshafandi konum, svo sem nálastungumeðferðir, nudd og jóga. Hin ritrýnda greinin í blaðinu fjallar um þetta efni, tilgangur þeirrar rannsóknar var að skoða hvers vegna og hvaða viðbótarmeðferðir íslenskar konur nota á meðgöngu og hvar konur fá hvatningu og ráðleggingar varðandi slíkar meðferðir. Vítamín, nudd og meðgöngusund voru þær viðbótarmeðferðir sem flestar konurnar höfðu notað á meðgöngu. Barnshafandi konur virðast bera traust til ljósmæðra varðandi ráðleggingar um notkun viðbótarmeðferða á meðgöngu. Þekking ljósmæðra þarf að þróast í takt við breyttar áherslur. Nokkrar fræðslugreinar eru í blaðinu, má þar nefna grein um útkomu fæðingar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og skemmtilega grein um valdeflingu, svo eitthvað sé nefnt. Ég vil fyrir hönd ritnefndar óska ljósmæðrum gleðilegs sumars. Litið um öxl Gleðilegt sumar Hrafnhildur Ólafsdóttir ritstjóri Ljósmæðrablaðsins R I T S T J Ó R N A R P I S T I L L Hreinsifroða Procto-eze Krem og Procto-eze Hreinsir fást í apótekum. Umboðsaðili á Íslandi: LYFIS ehf., Grensásvegi 22, 108 Reykjavík. Sími: 534 3500 netfang: lyfis@lyfis.is www.lyfis.is Þríþætt verkun – verndar, gefur raka og græðir Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum Inniheldur ekki stera Má nota á meðgöngu Procto-eze Hreinsir er hreinsifroða sem ætluð er til að viðhalda hreinlæti og draga úr óþægindum tengdum gyllinæð. Froðan hreinsar, róar og frískar óþægindasvæðið. Hún hentar vel til að nota í sturtu og kemur í stað sápu sem oft ertir viðkvæmt svæðið. Procto-eze Krem veitir góða vörn með því að búa til vatns-fitufilmu yfir erta svæðið. Vörnin dregur úr kláða og sviða og meðferðarsvæðið verður mýkra og rakara, sem kemur í veg fyrir að húðin springi og valdi óþægindum. Fyrir hámarksárangur er mælt með notkun á Procto-ezeTM Hreinsi áður en Procto-ezeTM Krem er notað. Froðan hreinsar, róar og frískar óþægindasvæðið. Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum Gyllinæð eru bólgnar og þrútnar æðar í eða við endaþarmsopið og um 50% einstaklinga fá gyllinæð einhvern tíma ævinnar. Blæðing úr endaþarmi ásamt kláða og sársauka eru helstu einkenni gyllinæðar og er hún algengust hjá eldra fólki og konum á meðgöngu. Léttir á einkennum gyllinæðar Krem

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.