Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 7
7Ljósmæðrablaðið - júlí 2015
R I T R Ý N D G R E I N
ÚTDRÁTTUR
Mikilvægt er að íslenskar ljósmæður taki þátt í alþjóðlegum og þver-
menningarlegum samræðum um viðfangsefni sín og grundvalli þær
á íslenskum rannsóknum.
Rannsóknin, sem greint er frá hér, er hluti stærri rannsóknar
sem hefur þann tilgang að auka skilning á samhengi sjálfshlutgerv-
ingar, viðhorfi til tíðablæðinga, viðhorfi til þess að bæla blæðingar,
líkamsþjálfunar, líkamsvitundar og upphafs blæðinga. Markmið
úrvinnslunnar er að þýða, staðfæra, þáttagreina og áreiðanleika-
prófa mælitækin: Spurningalistinn um skoðun á og viðhorf til tíða-
blæðinga (The Beliefs about and Attitudes Toward Menstruation
Questionnaire (BATM)) og Hlutgerði líkamsvitundarkvarðinn (The
Objectified Body Consciousness Scale (OBCS)). BATM er 40 atriði
og OBSC 24 atriði. Spurningalistarnir voru þýddir á íslensku og
íslenska þýðingin þýdd aftur yfir á ensku. Þýðingarnar tvær voru því
næst samlesnar af höfundum og þýðendum þar til samþykkt náðist.
Þeir voru lagðir fyrir þægindaúrtak hjúkrunarfræðinema (n=224)
við Háskóla Íslands vorið 2013. Mælitækin voru þáttagreind með
leitandi þátttagreiningu og stuðst við meginhlutagreiningu og horn-
skakkan snúning. Niðurstaða þáttagreiningar íslensku útgáfunnar af
BATM sýndi fjóra þætti en þeir eru: Skapraun, Leynd, Forskrift og
Máttur og reyndist niðurstaðan að nokkru leyti frábrugðin uppruna-
legu útgáfunni. Áreiðanleiki þátta var á bilinu 0,74 til 0,88 og
skýrðu þeir 42,7% af heildardreifingu atriða. Fylgni milli þátta var
viðunandi. Niðurstaða þáttagreiningar íslensku útgáfunnar af OBSC
sýndi þrjá þætti: Skömm á líkamanum, Trú á stjórnun og Eftirlit, sem
voru sambærilegir við upprunalegu útgáfuna. Áreiðanleiki þátta var
á bilinu 0,71 til 0,72 og skýrðu þeir 36,9% af heildardreifingu atriða.
Fylgni milli þátta var viðunandi. Niðurstöður sýndu að viðhorf
þátttakenda til blæðinga eru frekar hlutlaus. Þeim finnst þó frekar
skapraun að blæðingum en telja ekki að þeim beri að leyna. Þeir
hafa litla skömm á líkama sínum, telja sig geta stjórnað útliti sínu og
fylgjast vel með því og hugsa meira um líkamann út frá útliti hans en
líkamlegri líðan. Meginályktun rannsóknarinnar er að þáttabygging
íslensku úgáfunnar af BATM og OBSC er nothæf og mælir annars
vegar viðhorf til tíðablæðinga og hins vegar hlutgerða líkamsvitund
íslenskra kvenna.
Lykilorð: Viðhorf, blæðingar, líkamsvitund, þáttagreining.
ABSTRACT
It is of importance that Icelandic midwifes participate in
international and transcultural dis-course about their subject and
base their discourse on Icelandic studies.
The study presented here is a part of a larger study that aims
to increase understanding of the relationship between self-
objectification, attitudes towards menstruations, attitudes towards
menstrual suppression, physical activities, body awareness and
menarche. The purpose with the present analysis is to translate,
contextualise, factor analyse and test the reliability of the instruments
The Beliefs about and Attitudes Toward Menstruation Questionnaire
(BATM) and The Objectified Body Consciousness Scale (OBCS).
BATM has 40 items and OBSC 24 items. The questionnaires were
translated and back translated and finally read by authors and
translators until acceptance was reached. They were administered
to a convenient sample of nursing students (n=224) at the University
of Iceland in spring 2013. The instruments were factor analysed
Þýðing og forprófun tveggja mælitækja
RANNSÓKN Fyrirspurnir
Herdís Sveinsdóttir
herdis@hi.is
Viðhorf til tíðablæðinga
og hlutgerð líkamsvitund
Ragnheiður Halldórsdóttir,
hjúkrunarfræðingur BS, Höglandssjúkrahus
í Svíþjóð
Ragna Ásþórsdóttir,
hjúkrunarfræðingur BS, Landspítala
Herdís Sveinsdóttir,
hjúkrunarfræðingur PhD,
Háskóla Íslands og Landspítala