Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 9

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 9
9Ljósmæðrablaðið - júlí 2015 tilgang að auka skilning á samhengi sjálfshlutgervingar, viðhorfi til blæðinga, heilsutengdra lífsgæða, viðhorfi til þess að bæla blæðingar, líkamsþjálfunar, líkamsvitundar og upphafs blæðinga. Markmið úrvinnslunnar hér er að þýða, staðfæra, þáttagreina og áreiðanleikaprófa mælitækin BATM og OBCS. AÐFERÐ Úrtak og framkvæmd Úrtak rannsóknarinnar var þægindaúrtak kvenhjúkrunarfræðinemenda við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands sem skráðir voru í eitthvert af þeim fjórum námskeiðum sem kennd voru í janúar 2013, alls 313 nemendur á aldrinum 19 til 48 ára. Farið var í kennslustundir og var spurningalisti lagður fyrir kvennemendur sem mættu í tíma þá daga sem rannsóknin fór fram. Rannsóknin var kynnt nemendum, þeim afhent kynningarbréf og spurningalisti og þeir beðnir um að skila listanum fyrir lok skóladags. Farið var aftur í tíma í tveimur námskeiðanna sökum lítillar mætingar nemenda í fyrra skiptið sem gagnasöfnun var gerð. Mælitæki BATM BATM var samið af sálfræðingum með langa reynslu af rannsóknum á tíðahring kvenna (Márvan o.fl., 2006) í þeim tilgangi að skoða viðhorf til tíðablæðinga og trú kvenna á ýmsa þætti sem tengjast blæðingum. BATM er 40 atriða listi og eru svarmöguleikar mjög ósammála (=1), frekar ósammála (=2), hvorki sammála né ósammála (=3), frekar sammála (=4) og mjög sammála (=5). Listinn skiptist í fjóra þætti: I. Skapraun (e. annoyance) (11 atriði), II. Leynd (e. secrecy) (10 atriði), III. Fordæming og forskrift (e. proscriptions and prescriptions) (14 atriði) og IV. Ánægjulegar (e. pleasant) (5 atriði). Hærra gildi á mælitækinu í heild þýðir að þátttakendur séu mjög sammála því að blæðingar hafi áhrif á frammistöðu og daglegt líf en lægra gildi þýðir að þeir séu ósammála því. Upphaflega voru 88 atriði í mælitækinu og voru þau annars vegar fengin úr heimildaleit sem laut að mýtum, staðalímyndum og viðhorfum til blæðinga og hins vegar úr viðtölum um blæðingar við 24 konur á mismunandi aldri og með mismikla menntun. Þá var réttmæti mælitækisins enn frekar skoðað með því að tólf sérfræðingar með reynslu af rannsóknum á tíðahringnum mátu nauðsyn hvers atriðis á listanum. Niðurstaða frekari prófana á þessum 88 atriða lista á mexíkóskum og bandarískum körlum og konum leiddi til 40 atriða listans með fjórum þáttalausnum (BATM). Tafla 1 sýnir atriðin og þættina fjóra. Áreiðanleiki þáttanna (Cronbachs-α) hefur mælst frá 0,74 til 0,88 fyrir þættina Fordæming og forskrift, Skapraun og Leynd og á bilinu 0,62 til 0,69 fyrir þáttinn Ánægjulegar (Márvan o.fl., 2006). OBCS OBCS var samið af sálfræðingum sem byggðu á femínískum kenningum um félagslega byggingu (e. social construction) kvenlíkamans (McKinley og Hyde, 1996). Mælitækinu, sem er á ensku, er ætlað að mæla á hvern hátt meðvitundin hlutgerir líkamann út frá stöðugu eftirliti með honum, hvernig einstaklingurinn samsamar sig (e. internalize) menningarlegum staðalímyndum um líkamann og trú á að geta stjórnað líkamanum. OBSC er 24 atriða listi og merkja þátttakendur við á tölukvarða frá 1 til 7 þar sem 1 þýðir mjög ósammála og 7 mjög sammála. Upphaflega voru 69 atriði á listanum og voru þau fengin úr heimildum og úr fyrri rannsóknum höfunda. Niðurstaða frekari prófana á þessum 69 atriða lista, þar sem þátttakendur voru ungar og miðaldra konur, leiddi til 24 atriða listans sem reyndist innihalda þrjá þætti: I. Skömm á líkamanum (e.body shame) (8 atriði), II. Trú á stjórnun (e. control beliefs) (8 atriði) og III. Eftirlit (e. surveillance) (8 atriði) (McKinley og Hyde, 1996). Hátt gildi á Skömm á líkamanum veldur því að konunni líður eins og hún standi sig ekki ef hún uppfyllir ekki menningartengdar væntingar um líkama sinn, lágt gildi þýðir að henni finnist hún í góðu lagi þó hún uppfylli ekki slíkar væntingar. Hátt gildi á Trú á stjórnun þýðir að konan trúir að hún hafi stjórn á þyngd sinni og útliti ef hún leggur hart að sér, lágt gildi felur í sér að konan telji sig ekki stjórna þyngd og útliti heldur sé þessum þáttum stjórnað af erfðum. Hátt gildi á Eftirlit þýðir að konan fylgist iðulega með útliti sínu og hugsar um líkama sinn út frá útliti hans, lágt gildi þýðir að hún fylgist sjaldan með útliti sínu og hugsar um líkamann út frá líkamlegri líðan. Tafla 2 sýnir þættina og atriðin í hverjum þætti. Mælitækið hefur verið notað í fjölda rannsókna og hefur áreiðanleiki (Cronbachs-α) Líkamsskammar mælst á bilinu 0,70 til 0,84, Eftirlits á bilinu 0,79 til 0,89 og Trúar á stjórnun á bilinu 0,68 til 0,72 (McKinley og Hyde, 1996; McKinley, 1998; McKinley, 1999). Þýðing og staðfæring mælitækjanna tveggja Leyfi fengust frá höfundum mælitækjanna til að nota þau hér á landi. Upphafleg útgáfa BATM var á spænsku en höfundar mælitækisins þýddu mælitækið á ensku með viðurkenndum aðferðum (Márvan o.fl., 2006) og er enska útgáfan notuð hér. Markmið þýðingarinnar var að hvert íslenskt atriði næði merkingu enskunnar en ekki endilega að þýða frá orði til orðs. Við þýðinguna var fylgt viðurkenndu þýðingaferli (Jones, Lee, Phillips, Zhang og Jaceldo, 2001; Brynja Örlygsdóttir og Erla Kolbrún Svavarsdóttir, 2005). Mælitækin voru upphaflega þýdd og staðfærð af rannsakendum úr ensku yfir á íslensku. Enska og íslenska útgáfan voru samlesnar af íslenskufræðingi og íslenska útgáfan því næst þýdd aftur yfir á ensku af tvítyngdum klínískum sálfræðingi búsettum í Bandaríkjunum. Lokaeintak listanna var því næst lesið yfir og samþykkt af þessum aðilum. Spurningalistinn var forprófaður á átta konum á aldrinum 23 til 26 ára og komu fram smávægilegar athugasemdir varðandi orðalag sem tekið var tillit til. Þá gagnrýndi einn þátttakenda BATM og sagði staðhæfingar endurteknar. Ekki var tekið tillit til þessarar athugasemdar því það var metið svo að athugasemd frá einum aðila væri ekki nægileg til að breyta byggingu á íslensku útgáfu listans. Það tók konurnar átta á bilinu 11 til 19 mínútur að svara listanum. Bakgrunnsspurningar Listinn, sem lagður var fyrir þátttakendur, innihélt, auk BATM og OBSC, mælitækið SF-36v2 sem mælir heilsutengd lífsgæði og spurningar um blæðingasögu, hreyfingu og mataræði. Í töflu 3 eru lýsandi niðurstöður fyrir spurningar sem gefa mynd af þátttakendum. Valdar voru spurningar sem rannsóknir sýna að tengjast líkamsvitund og viðhorfi til blæðinga þó að hér séu ekki skoðuð slík tengsl. Tölfræðileg úrvinnsla Tölfræðiúrvinnsla fór fram með tölfræðiforritinu Statistical Package for the Social Sciences (SPSS), 21. útgáfu (SPSS Inc., Chicago, USA). Notuð var lýsandi tölfræði til að lýsa úrtakinu. Til að meta hugtakaréttmæti (e. construct validity) var gerð leitandi þáttagreining (e. exploratoy factor analysis) og stuðst við meginhlutagreiningu og hornskakkan snúning (e. oblimin rotation). Svörum þátttakenda sem slepptu fleiri en tveimur atriðum í hverjum þætti var sleppt í greiningunni. Fylgni þátta og atriða var skoðuð og ef ástæða var til var beitt hornréttum (e. varimax) snúningi. Einungis þættir með eigingildi 1 eða meira voru dregnir út. Til að athuga mikilvægi þátta var skriðurit (e. scree plot) jafnframt skoðað auk Kaiser-Meyer- Olkin (KMO) prófs og Bartletts-prófs. KMO gefur til kynna hvort úrtakið sé hæfilegt (e. sampling adequacy) og bendir til áreiðanleika þátta. Bartletts-próf metur fylgni milli fullyrðinga í þáttum. Við þáttabyggingar var ákveðið, með hliðsjón af fjölda þátttakenda, að atriði með þáttahleðslu lægri en 0,35 skyldu felld út (Field, 2013). Cronbachs-α var notað til að reikna út innra samræmi þátta. Fylgnipróf (Pearson) var notað til að skoða fylgni milli þátta. Siðfræði Fengið var leyfi frá Vísindasiðanefnd (nr. HI12110194/10.6.6), leyfi frá rektor Háskóla Íslands (tilvísun: HI12110194/10.6.6) til að leggja rannsókn fyrir nemendur skólans auk þess sem rannsóknin var tilkynnt til Persónuverndar (nr. S6003). Þátttakendur fengu

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.