Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 11
11Ljósmæðrablaðið - júlí 2015
til réttmætis þess að draga út fjóra þætti. Þá kom KMO-próf og
Bartlett-próf vel út eins og sést í töflunni og það styður gæði gagna
til þáttagreiningar. Þættirnir fjórir skýrðu 42,7% af heildardreifingu
atriðanna. Með nokkrum undantekningum (atriði 31, 34, 5, 22,
14, 6 og 25) eru þáttahleðslur nokkuð afgerandi á einn þátt. Sá
þáttur sem flest atriði hlaðast umtalsvert á en tilheyra á endanum
ekki er þáttur IV. Hleðslur atriða sem hlaðast á þann þátt eru hins
vegar mjög ótvíræðar. Eins og sést í töflu 1 hlaðast atriðin ekki
eins á þættina í Í-BATM eins og í BATM. Öll atriðin úr BATM-
þættinum Skapraun og fjögur atriði af fimm úr BATM-þættinum
Ánægjulegar hlóðust á þátt I í Í-BATM. Öll atriðin utan eitt í
BATM-þættinum Leynd hlaðast á þátt II í Í-BATM. Atriðin 14
úr BATM-þættinum Fordæming og forskrift dreifast hins vegar
nokkuð á þættina í Í-BATM, sjö atriði hlaðast á þátt III, fimm
atriði á þátt IV, tvö atriði á þátt III og eitt atriði á þátt I. Ákveðið
var að halda í þættina eins og þeir koma fram í okkar greiningu
en Cronbachs-α (sjá gildi í töflu 2) styður þá ákvörðun. BATM-
þátturinn Ánægjulegar dettur alveg út í okkar greiningu og nýr
þáttur (þáttur IV) bætist við. Af atriðunum 40 voru þáttahleðslur
þriggja atriða lægri en 0,35. Ákveðið var að halda þeim atriðum
með þar sem áreiðanleikaprófun þáttanna kom betur út með þeim,
heldur en ef þeim var sleppt. Þáttabygging Í-BATM er því nokkuð
frábrugðin BATM fyrir utan að BATM-þátturinn Leynd er svo til
alveg sambærilegur þætti II í Í-BATM. Endanlegir þættir eru fjórir í
Í-BATM: I. Skapraun (16 atriði), II. Leynd (11 atriði), III. Forskrift
(8 atriði) og IV. Máttur (5 atriði). Fylgni þáttanna er að mestu veik
fyrir utan að miðlungsfylgni er milli fyrsta og fjórða þáttar (r=0,47)
og þriðja og fjórða þáttar (r=0,36) (sjá töflu 2).
Hugtakaréttmæti og áreiðanleiki íslenska OBCS (Í-OBCS) út
frá leitandi þáttagreiningu
Tafla 3 sýnir niðurstöður leitandi þáttagreiningar fyrir Í-OBCS.
Áður en greiningin var gerð var athugað hvort gögnin uppfylltu
skilyrði fyrir þáttagreiningu. Þau reyndust gera það en KMO-próf
og Bartlett-próf komu vel út eins og sést í töflu 3. Upphaflega var
beitt hornskökkum snúningi en ekki reyndist fylgni milli þátta og
var greiningin endurtekin með hornréttum snúningi. Sex þættir voru
með eigingildi hærra en einn, en skriðupróf benti til réttmætis þess
að draga út þrjá þætti. Þættirnir þrír skýrðu 36,9% af heildardreifingu
atriðanna. Þáttahleðslur voru ótvíræðar á einn þátt utan eitt atriði
(atriði 14). Atriði 16: „Ég hef oft áhyggjur af því hvort fötin sem
ég klæðist fari mér vel“ hlóðst á þátt I í Í-OBCS en í bandaríska
OBCS í þáttinn Eftirlit. Ákveðið var að hafa atriðið í þætti III í
Í-OBCS. Atriðið hlóðst líka á þann þátt í Í-OBCS auk þess að
áreiðanleikaprófun þáttarins kom betur út þannig. Íslensku þættirnir
fengu heitin I. Skömm á líkamanum, II. Trú á stjórnun og III. Eftirlit.
Tengsl þáttanna eru veik fyrir utan tengsl þátta eitt og þrjú (r=0,45)
(sjá töflu 3) þar sem um miðlungsfylgni er að ræða.
Samanburður á Í-BATM og Í-OBSC við BATM og OBSC
Í töflu 4 sjást meðalstig þátttakenda í undirþáttum Í-BATM og
Í-OBSC og samanburður við úrtök bandarískra og mexíkóskra
kvenna þar sem upprunalegu mælitækin voru notuð. Þar sést,
þegar tillit er tekið til þess að þættirnir eru ekki alveg eins, að
viðhorf til tíðablæðinga virðast nokkuð svipuð hjá íslenskum
hjúkrunarfræðinemum og bandarískum og mexíkóskum háskóla-
stúdínum. Undantekning er þó þátturinn Leynd þar sem þær
íslensku fá færri stig að meðaltali en hinir hóparnir. Miðað við
bandarískar háskólastúdínur hafa íslenskir hjúkrunarfræðinemar
síður skömm á líkama sínum, telja sig betur geta stjórnað útliti
sínu og fylgjast betur með útliti sínu og hugsa meira um líkamann
út frá ásýnd hans. Meðalstigafjöldi hjúkrunarfræðinemanna á
undirþáttum Í-OBSC líkist frekar miðaldra bandarískum konum
(sjá töflu 4) en bandarískum háskólastúdínum.
UMRÆÐUR
Mikilvægt er að íslenskar ljósmæður taki þátt í alþjóðlegum
og þvermenningarlegum samræðum um viðfangsefni sín á sem
breiðustum vettvangi og grundvalli þær á íslenskum rannsóknum.
Í þessari grein var lýst ferli við að þýða, staðfæra, þáttagreina og
áreiðanleikaprófa mælitæki sem ætlað er til rannsókna á raunveruleika
íslenskra kvenna. Meginniðurstöður eru að þáttabygging Í-BATM
Tafla 3. Lýsandi niðurstöður um þátttakendur (N=224).
Tafla 4. Meðalstigafjöldi á undirkvörðum Í-BATM og Í-OBSC og á undirkvörðum BATM og OBSC í erlendum rannsóknum.
5
Tafla 3. Lýsandi niðurstöður um þátttakendur (N=224).
n (%) M (sf)
Aldur (n=220) 25,0 ( 4,7)
Hjúskaparstaða
Einhleyp 75 (33,5)
Fráskilin 3 ( 1,3)
Gift/í sambúð 146 (65,2)
Börn
Ekkert 147 (66,2)
Eitt 38 (17,1)
Fleiri en eitt 37 (16,7)
Hæð í cm (n=219) 168,0 ( 5,4)
Þyngd í kg (n=216) 67,4 (11,9)
Lengd tíðahrings í dögum (n=190) 29,0 ( 5,5)
Lengd blæðinga í dögum (n=222) 5,1 ( 1,3)
Líkamsþyngdarstuðull (n=216) 24,0 ( 5,0)
Hugsa of mikið um mat að eigin mati
Aldrei/sjaldan 71 (31,8)
Stundum 95 (42,6)
Oft/alltaf að hugsa um mat 57 (25,6)
Hversu oft samviskubit yfir því að borða of mikið
Aldrei/sjaldan 84 (37,7)
Stundum 89 (39,9)
Oft 50 (22,4)
Hversu oft farið í megrun
Aldrei 86 (38,9)
Sjaldan/stundum 111 (50,2)
Oft/alltaf í megrun 24 (10,8)
Telur sig af eðlilegri þyngd (já) 122 (54,5)
Tíðaverkir (já) 174 (78,4)
Styrkur tíðaverkja (n=187)# 4,7 ( 2,4)
Áhrif tíðaverkja á líf## 2,3 ( 2,1)
Notkun verkjalyfja vegna tíðaverkja
Aldrei/sjaldan 106 (48,0)
Stundum 71 (32,1)
Oft/mjög oft 44 (19,9)
Missir úr vinnu/skóla vegna tíðaverkja
Aldrei 158 (71,5)
Sjaldan 44 (19,9)
Stundum/oft/mjög oft 19 ( 8,6)
Ástundun líkamsþjálfunar
Þrisvar í viku eða oftar 123 (54,9)
Einu sinni til tvisvar í viku 56 (25,2)
Sjaldnar en einu sinni í viku 43 (19,4)
# Spurt um styrk tíðaverkja á tölukvarða frá 0 til 10 þar sem 0 = enginn verkur og 10 = versti mögulegi verkur.
## Spurt um áhrif tíðaverkja á líf á tölukvarða 0 til 10 þar sem 0 = engin áhrif og 10 = áhrifin gætu ekki verið
meiri.
5
Tafla 3. Lýsandi niðurstöður um þátttakendur (N=224).
n (%) M (sf)
Aldur (n=220) 25,0 ( 4,7)
Hjúskaparstaða
Einhleyp 75 (33,5)
Fráskilin 3 ( 1,3)
Gift/í sambúð 146 (65,2)
Börn
Ekkert 147 (66,2)
Eitt 38 (17,1)
Fleiri en eitt 37 (16,7)
Hæð í c (n=219) 168,0 ( 5,4)
Þyngd í kg (n=216) 67,4 (11,9)
Lengd tíðahrings í dögum (n=190) 29,0 ( 5,5)
Lengd blæðinga í dögum (n=222) 5,1 ( 1,3)
Líka sþyngdarstuðull (n=216) 24,0 ( 5,0)
ugsa of ikið um mat að eigin mati
ldrei/sjaldan 71 (31,8)
Stundu 95 (42,6)
ft/alltaf að hugsa um mat 57 (25,6)
versu oft samviskubit yfir því að borða of mikið
ldrei/sjaldan 84 (37,7)
Stundu 89 (39,9)
ft 50 (22,4)
versu oft farið í megrun
ldrei 86 (38,9)
Sjaldan/stundum 111 (50,2)
ft/alltaf í megrun 24 (10,8)
elur sig af eðlilegri þyngd (já) 122 (54,5)
íðaverkir (já) 174 (78,4)
Styrkur tíðaverkja (n=187)# 4,7 ( 2,4)
hrif tíðaverkja á líf## 2,3 ( 2,1)
otkun verkjalyfja vegna tíðaverkja
ldrei/sjaldan 106 (48,0)
tundu 71 (32,1)
ft/ jög oft 44 (19,9)
issir úr vinnu/skóla vegna tíðaverkja
l rei 158 (71,5)
jal an 44 (19,9)
t u /oft/mjög oft 19 ( 8,6)
st un líkamsþjálfunar
ris ar í viku eða oftar 123 (54,9)
i sinni til tvisvar í viku 56 (25,2)
j l ar en einu sin i í viku 43 (19,4)
# purt u styrk tíðaverkja á tölukvarða frá 0 til 10 þar sem 0 = enginn verkur og 10 = versti mögulegi verkur.
## purt u áhrif tíðaverkja á líf á tölukvarða 0 til 10 þar sem 0 = engin áhrif og 10 = áhrifin gætu ekki verið
eiri.
6
Tafla 4. Meðalstigafjöldi á undirkvörðum Í-BATM og Í-OBSC og á undirkvörðum BATM og OBSC í erlendum rannsóknum.
Undirþættir Í-BATM og BATM Undirþættir Í-OBSC og OBSC
Þátttakendur (allt konur) Skapraun
m (sf)
Leynd
m (sf)
Fyrirmæli
m (sf)
Máttur
m (sf)
Líkamsskömm
m (sf)
Trú á stjórnun
m (sf)
Líkamseftirlit
m (sf)
Ísland – 223 hjúkrunarfræðinemar 3,3 (0,6) 1,7 (0,5) 2,0 (0,6) 2,3 (0,8) 2,9 (1,0) 4,4 (0,8) 5,5 (0,8)
Skapraun Leynd
Fordæming og
forskrift Ánægjulegar Líkamsskömm Trú á stjórnun Líkamseftirlit
Bandaríkin – 67 háskólastúdentara 3,7 (0,6) 2,10 (0,7) 1,9 (0,6) 2,7 (0,7)
Mexíkó – 86 háskólastúdentara 3,6 (0,7) 2,11 (0,7) 2,4 (0,7) 2,6 (1,8)
Bandaríkin – háskólastúdentarb 3,3 (1,0) 3,9 (0,7) 4,2 (0,9)
Bandaríkin – miðaldra konurc 3,0 (1,0) 4,9 (1,0) 4,3 (1,0)