Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Síða 23

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Síða 23
23Ljósmæðrablaðið - júlí 2015 á fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja einu ári eftir að skurðstofunni þar var lokað og þjónustustig breyttist, eða á tímabil- inu 1. maí 2010 til 1. maí 2011. Alls voru 145 konur í úrtakinu. Mælitækið sem var notað í þessari rannsókn er skráningarlisti sem notaður hefur verið á Íslandi í öðrum rannsóknum, svokallaður atriðisorðalisti (Berglind Hálfdánsdóttir, 2015; Sigrún Kristjánsdóttir, 2012). Það var þýtt og staðfært úr norsku en þar hafði það verið notað í rannsókn um útkomu heimafæðinga í Noregi á árabilinu 1997‒2007 (Blix, Schaumburg Huitfeldt, Öien, Straume og Kumle, 2012) og er notað í framvirkri rannsókn um útkomu heimafæðinga á Íslandi og á Norðurlöndunum árabilið 2009‒2013 en niðurstöður úr þeirri rannsókn bíða birtingar (Ólöf Ásta Ólafsdóttir, munnleg heimild, apríl 2015). Upplýsingar úr mæðraskrám voru settar inn í skráningarlista. Einnig fengust upplýsingar um undirbúning á meðgöngu, svo sem hjá Margréti Knútsdóttur um þátttöku á meðgöngujóganámskeiði en hún er jógakennari og ljósmóðir og hefur séð um þessi námskeið í Reykjanesbæ. Margar kvennanna mættu vikulega í jóga frá 20. viku og fram að fæðingu (Margrét Knútsdóttir, munnleg heimild, júní 2012). Undirbúningsnálar eru gefnar á fæðingardeild HSS frá viku 36 og mæta konurnar einu sinni í viku, mynda tengsl við ljósmæðurnar á deildinni og fá nálastungur í ákveðna punkta (Sp6, Ht7 og Gv20) sem undirbúa legið og andlega þáttinn undir fæðinguna og veita slökun. Foreldrum gafst kostur á að koma á foreldrafræðslunámskeið sem tvær ljósmæður deildarinnar sáu um. Lýsandi tölfræði var beitt. Útkomubreytur tengjast afdrifum kvenna og barna þeirra. Hjá barninu voru Apgar stig skoðuð. Hjá móðurinni var útkoma spangar metin. Skoðað var hvers konar verkjastilling var notuð, svo sem notkun baðs, glaðlofts, nálastungna og sterkra verkjalyfja eins og pethidins og phenergans. Einnig voru skoðaðar útkomubreytur fyrir fæðingarferlið, fæðingarmáta, lengd fæðingar og magn blæðingar, tíðni vatnsfæðinga, inngrip eins og sogklukkur, keisaraskurðir, spangarklippingar, belgjarof og notkun hríðaörvandi lyfja. Samanburður var gerður og skoðað var hvort munur væri á útkomu fæðinga milli þeirra sem fengu undirbúning í formi jóga, nálastungna eða fræðslu miðað við allan hópinn. Þau marktæknimörk sem notuð voru í rannsókninni eru Pearson´s t-próf þar sem bornir eru saman tveir hópar og Anova þar sem bornir eru saman fleiri en tveir hópar. Við gagnaúrvinnslu var notast við forritið Excel. Fengin voru meðaltöl og tíðnitölur með aðstoð Excel forritsins og SPSS forritsins ásamt því að fá marktækni. NIÐURSTÖÐUR Meðalaldur kvenna í rannsókninni var 27 ár. Frumbyrjur 36% og fjölbyrjur 64%. Meðalmeðgöngulengd þátttakenda var 40 vikur. Meðallengd allra fæðinga á HSS var 7,35 klst. Vatnsfæðingar voru 45% allra fæðinga á HSS eða alls 65. Konur sem voru með heila spöng voru alls 36 eða 26%. Flestum konum blæddi eðlilega eftir fæðingu eða minna en 500 ml (95%). Áverkar á spöng voru hjá alls 104 konum en það eru 72%. 50 konur eða 36% fengu 1° spangarrifu, 53 fengu 2° spangarrifu eða 38% kvennanna, 1 kona fékk 3° spangarrifu eða 0,7% og þurfti að senda hana á LSH í saumaskap. Engin kona fékk 4° spangarrifu. 13 konur voru klipptar spangarklippingu (e. episitomia) eða 9% kvennanna. Þær konur sem voru með heila spöng voru alls 36 eða 26%.   Mynd 1: Útkoma spangar hjá öllu úrtakinu     Mynd 2: Verkjameðferð allra í úrtakinu Mynd 3: Inngrip í fæðingu 0   5   10   15   20   25   30   35   40   Heilar   1°rifa   2°rifa   3°rifa   4°rifa   %   0   10   20   30   40   50   60   70   80   %   0   5   10   15   20   25   %   Mynd 1: Útkoma spangar hjá öllu úrtakinu.   Mynd 1: Útkoma spangar hjá öllu úrtakinu     Mynd 2: Verkjameðferð allra í úrtakinu Mynd 3: Inngrip í fæðingu 0   5   10   15   20   25   30   35   40   Heilar   1°rifa   2°rifa   3°rifa   4°rifa   %   0   10   20   30   40   50   60   7   8   %   0   5   10   15   20   25   %   ynd 2: Verkjameðferð allra í úrtakinu.   : t s r j ll rt i     Mynd 3: Inngrip í fæðingu 0   5   10   15   20   25   30   35   40   eilar   1°rifa   2°rifa   3°rifa   4°rifa   %                 0   0     0   5   10           Mynd 3: Inngrip í fæðingu. Meirihluti kvennanna eða 98 notuðu baðið til verkjastillingar eða um 68%. Belgjarof var algengasta inngripið í fæðingar á HSS eða 23%. Heil spöng

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.