Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Page 46
46 Ljósmæðrablaðið - júlí 2015
Skýrsla stjórnar LMFÍ 2014 – 2015
F R É T T I R A F F É L A G S S T A R F I
Stjórnarfundir
Stjórnarfundir starfsársins hafa verið 13 talsins, haldnir á tveggja til
þriggja vikna fresti eftir því hvað legið hefur fyrir hverju sinni.
Kjaramál
Síðustu tvö starfsár hafa markast mikið af kjaraviðræðum og
undirbúningi fyrir miðlæga kjarasamninga. Síðasta vor lauk samningum
á þann hátt að við töldum okkur hafa samið um vopnahlé þar sem komið
var langt fram á vor (28. maí) og samið var til stutts tíma. Við tókum því
aftur að undirbúa kjaraviðræður í ágúst. Samningar runnu út 28. febrúar
sl. og erum við búnar að eiga nokkra fundi með samninganefnd ríkisins
sem býður okkur 3,5% launahækkun. Það er hvergi nærri því sem við
erum að hugsa um þannig að þegar þetta er skrifað ber enn mikið á milli.
Haldnir hafa verið sex fundir til kynningar á kröfugerð okkar og stöðu
mála. Þessir fundir hafa bæði verið í Reykjavík og á nokkrum stöðum á
landsbyggðinni þar sem flestar ljósmæður eru. Atkvæðagreiðsla vegna
verkfallsaðgerða verður í vikunni 16–20. mars.
Stofnanasamningar hafa ekki alveg gleymst og var gengið frá yfirferð
tveggja stofnanasamninga nú eftir áramót.
Félagsfundir – menntamál - fagdeildir
Tveir félagsfundir voru haldnir á haustönninni. Annar var vegna
menntunarmála ljósmæðra. Á fundinum var kynnt hvernig námi ljós-
mæðra er fyrirkomið annars staðar á Norðurlöndunum. Umræður voru
um með hvaða hætti hentugast væri að breyta náminu hérlendis og var
það niðurstaðan að stefna ætti að fimm ára direct entry námi sem lyki
með M.Sc. gráðu og möguleika á eins árs viðbótarnámi til að ljúka
námi í hjúkrun. Stjórn félagsins sendi bréf til námsbrautar í hjúkrun
við Háskóla Íslands þar sem þessar tillögur voru lagðar fram. Annar
félagsfundur var haldinn til að stofna formlega þær fjórar fagdeildir sem
samþykktar voru á aðalfundi 2014. Þetta eru fagdeild um kynheilbrigði
og forvarnir, fagdeild um fæðingahjálp, fagdeild um meðgönguvernd
og fósturskimanir og fagdeild um sængurlegu og brjóstagjöf. Skýrslur
deildanna eru í aðalfundargögnum.
BHM
Talsvert samstarf hefur verið við BHM á árinu. Sérstaklega vegna
stýrihópa sem myndaðir voru í kjölfar bókunar í síðustu kjarasamn-
ingum. Formaður var þá í hóp með fulltrúum þriggja annarra félaga og
fjögurra fulltrúa samninganefndar ríkisins þar sem vaktavinnukaflinn
var tekinn til endurskoðunar. Vinnu í þeim hópi lauk 1. desember sl.
með sameiginlegu plaggi sem kynnt hefur verið á fundum.
95 ára afmæli félagsins
95 ára afmæli félagsins var fagnað á afmælisdeginum 2. maí. Í kjöl-
far fræðsludags á vegum námsbrautar HÍ og HH var stigið upp í rútu
og haldið í skoðunarferð um Reykjanes og að Ásbrú þar sem hönnuðir
voru heimsóttir. Síðan var farið í Bláa lónið þar sem afmælisgestum
gafst kostur á að fara í bað í lóninu og snæða svo kvöldmat þar. Þrír
heiðursfélagar voru tilnefndir að þessu sinni og söngvarinn Valdimar
Guðmundsson kom og skemmti.
Guðrún Ásmundsdóttir hélt erindi á aðalfundi Ljósmæðrafélagsins.