Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 49

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 49
49Ljósmæðrablaðið - júlí 2015 fyrir vinnudegi þar sem ljósmæður sem áhuga hafa á gætu komið saman og unnið að stefnumótun fyrir félagið sem sárlega vantar. 5. maí næstkomandi hyggst félagið, ásamt HH, námsbraut og LSH, standa fyrir fræðadegi og er undirbúningur hafinn. Vinna við app eða smáforrit fyrir væntanlega foreldra er hafin. Vonast félagið til að það komist í gagnið sem fyrst. Nauðsynlega þarf að uppfæra og laga vefinn ljosmodir.is og erum við að leita að peningum í það verkefni. Vefur- inn ljosmodir.is er mjög mikið heimsóttur og notaður og ef að vel er á málum haldið gæti hann skilað okkur ágætis tekjum. Á hugmyndastiginu • Skoða þarf betur að gera Ljósmæðrablaðið að rafrænu tímariti. Einn af kostunum við það er að einstakar greinar koma þá upp við Google leit á vefnum. Eins og er setjum við blaðið inn í PDF skjali og koma þá ekki einstaka greinar upp við leit. • Einnig hafa komið upp hugmyndir um að virkja betur vefinn ljosmaedrafelag.is og gera hann sjáanlegan svo að auðveldara sé að skoða hann í síma. Þar inn kæmu upplýsingar sem ljósmæður nota ef til vill í daglegri vinnu. Eins hefur komið upp sú hugmynd að setja inn leitarvél þar sem ljósmæður sem starfa sjálfstætt gætu sett inn upplýsingar um sig, t.d. brjóstaráðgjafi – hvaða tungumál talar – í hvaða hverfi starfar o.s.frv. Þetta gæti nýst konum sem vilja leita sér að heimaþjónustuljósmóður sem dæmi. • Gaman væri að gera viðtalsþátt þar sem talað er við þær ljósmæður sem eldri eru og muna tímana tvenna og/eða safna viðtölum við þær í gegnum „munnlega geymd“ sem er verkefni á vegum Landsbókasafnsins og eru viðtölin þá varðveitt þar. Ingibjörg Ýr Óskarsdóttir ljósmóðir er komin af stað með að athuga möguleika okkar á að gera viðtalsþátt með nokkrum eldri ljósmæðrum þar sem þær lýsa starfi sínu og þeim aðstæðum sem þær störfuðu við og þróuninni gegnum árin. Það verður spennandi að sjá hvað út úr þeirri vinnu kemur. Þakkir Stjórn félagsins þakkar öllum þeim sem starfað hafa fyrir félagið á síðastliðnu ári, einnig þeim sem hafa látið sig málefni félagsins varða, haft samband og veitt ábendingar. Fyrir hönd stjórnar LMFÍ Áslaug Valsdóttir, formaður

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.