Fréttablaðið - 14.02.2019, Síða 2

Fréttablaðið - 14.02.2019, Síða 2
Veður Suðvestan kaldi eða strekkingur en allhvass vindur fyrir austan. Lægir smám saman er líður á daginn með lítilsháttar éljum en bjartviðri NA-lands. Frost 0 til 5 stig, en hiti 0 til 5 stig við suður- og suðaustur- ströndina. SJÁ SÍÐU 34 Það er alveg sama hversu marga dálks- entimetra Jón Baldvin Hannibalsson tekur undir þessar greinar sínar. Helgi Seljan fréttamaður Krefjast þess að brottvísunum verði hætt Flóttafólk efndi til mótmæla við Hallgrímskirkju í gær. Sex karlar sem hingað komu í leit að hæli tóku til máls. Hópurinn krefst þess að brottvísunum verði hætt og hælisleitendum verði tryggður réttur til vinnu og húsnæðis. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ALVÖRU MATUR Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM DÓMSMÁL Fréttamaðurinn Helgi Seljan á RÚV gefur lítið fyrir kröfur um afsökunarbeiðni og boðaða málsókn hjónanna Jóns Bald­ vins Hannibalssonar og Bryn­ dísar Schram gegn honum, Sigmari Guðmundssyni og Magnúsi Geir Þórðar syni útvarpsstjóra. „Það er alveg sama hversu marga dálksentimetra Jón Baldvin Hanni­ balsson tekur undir þessar greinar sínar og hversu oft hann birtir þær, það er bara einn maður sem hefur orðið uppvís að því að halla réttu máli í sínum málf lutningi vegna þessa alls og það ítrekað. Kenni­ talan hans er í Mogganum í dag, er mér sagt,“ sagði Helgi Seljan um málið. Grein, undirrituð af Jóni Baldvini og Bryndísi með kennitölum þeirra, var birt í Morgunblaðinu í gær. Í henni er út varps­ stjóra gef inn sjö daga frestur til að draga til baka ummæli sem féllu í útvarpsþætti þar sem Sigmar og Helgi ræddu við Aldísi Schram, dóttur þeirra hjóna. Einnig segja þau að útvarpsstjóri eigi að veita Helga og Sigmari al var­ lega áminn ingu fyr ir gróf brot á siðaregl um Rík is út varps ins og að biðja eigi áheyrendur afsökunar á vinnu­ brögðum þeirra. „En ef þér, hr. út­ va r ps st jór i , k jó sið að bregðast ekki við þess ari áskor un okk ar áskilj um við okk ur all an rétt til að stefna yður, fyr ir hönd Rík is út varps ins, og starfs mönn um yðar, sem og viðmæl end um, fyr ir rétt, til þess að fá meiðyrði, rang hermi og til hæfu­ laus ar ásak an ir, dæmd ar dauðar og ómerk ar. Og að Rík is út varp inu verði skylt að bæta þolend um þess­ ar ar ófræg ing ar her ferðar það tjón, sem þau hafa orðið fyr ir af völd um RÚV,“ skrifa þau Bryndís og Jón. Fjöl skylda þeirra hafi beðið óbæt­ an legt tjón af völd um um fjöll unar frétta manna RÚV. Útvarpsstjóri telur heldur ekki til efni til þess biðja hjónin af ­ sökunar. Hann segir fréttagildi viðtalsins hafi verið ótvírætt og að siðareglur hafi verið virtar við gerð þess. Magnús sagði Jón Bald­ vin ekki hafa haft beint samband við sig vegna málsins. Ef þau Jón Baldvin og Bryndís telji á sér brotið bendir Magnús Geir á siðanefnd RÚV eða siðanefnd Blaðamanna­ félags Íslands. Þangað sé alltaf hægt að leita. gar@frettabladid.is Sé bara einn uppvís að því að halla réttu máli Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hvorki útvarpsstjóri né fréttamennirnir Helgi Seljan og Sigmar Guð- mundsson á RÚV telja sig skulda Jóni Baldvin og Bryndísi Schram af- sökunarbeiðni, líkt og þau hjónin fara fram á. Útvarpsstjóri segir siða- reglur hafa verið virtar. LÖGREGLUM ÁL L ö g r e g l a n á Írlandi leit ar en n að Jón i Þresti Jónssyni. H a n n h e f u r ekki sést síðan kl. 11 á laugar­ d a g s m o r g u n í W hitehall í Dyf linni. Fjöl­ skylda hans er farin til Írlands. Í tilkynningu frá þeim segir að þau séu í áfalli en vilji að öðru leyti ekki tjá sig. Í gær birti lögreglan nýja mynd af Jóni Þresti á samfélagsmiðlum þar sem aftur var biðlað til almennings um upplýsingar um hvar Jón Þröst­ ur er niðurkominn. Írska lögreglan gat lítið tjáð sig um málið í samtali við blaðamann að öðru leyti en því að leitin væri í höndum lögreglu­ stöðvarinnar í Ballymun í norður­ hluta Dyflinnar. Jón Þröstur er 41 árs og um 182 cm á hæð. – ab Leit að Jóni Þresti stendur enn yfir TRÚMÁL Fjöldi kaþólskra hér á landi hefur þrefaldast síðan 1998 sem hlutfall allra landsmanna. 3,85% landsmanna eru nú innan kaþólsku kirkjunnar. Hefur kaþólskum því fjölgað mest á síðustu árum og eru nú rúmlega 13.000 kaþólskrar trúar hér á landi. Árið 1998 voru rúmlega 3.200 landsmanna innan kaþólsk u kirkjunnar eða rétt rúmt eitt pró­ sent landsmanna á þeim tíma. Nú, tveimur áratugum seinna, telur Hagstofan að kaþólskir séu um 13.400 talsins. Séra Patrick Breen, prestur kaþólsku kirkjunnar í Reykjavík, segir töluna þó mun hærri. „Hingað hafa flust margir frá Pól­ landi, Litháen og Filippseyjum, kaþ­ ólskum löndum, og Suður­Ameríku. Það er meginskýringin,“ segir sr. Patrick. „Tölurnar um kaþólska á Íslandi gefa hins vegar ranga mynd af fjöldanum sem kirkjan þjónar. Hér eru um 23 þúsund Litháar og Pólverjar við störf. Megnið af því fólki er kaþólskt. Þannig að við getum reiknað með að hér séu um 25 þúsund kaþólikkar. Við teljum að 2.000 manns, sem eru af íslensku bergi brotnir, séu kaþólskrar trúar.“ Það er því í mörg horn að líta hjá prestum kirkjunnar og þar sem kaþólskir eru duglegir við að iðka trú sína þarf að messa oft. „Það er liður í okkar trú að mæta til messu og vera virkur í starfinu. Til að mynda erum við með sex sunnu­ dagsmessur í Landakoti. Þær eru mjög vel sóttar.“ – sa Telja Hagstofu vantelja fjölda kaþólikka Hér eru um 23 þúsund Litháar og Pólverjar við störf. Megnið af því fólki er kaþólskt. Séra Patrick Breene Magnús Geir Þórðarson útvarpstjóri. Fleiri myndir er að finna á +Plússíðu Fréttablaðs- ins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS Jón Þröstur 1 4 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 5 1 -9 D A 8 2 2 5 1 -9 C 6 C 2 2 5 1 -9 B 3 0 2 2 5 1 -9 9 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.