Fréttablaðið - 14.02.2019, Síða 28
læra inn á bransann í París, hvern-
ig hann virkar og hvernig maður
á að beita sér. Tískubransinn er
nefnilega mjög sérstakur í París og
eru ákveðnar óskráðar reglur sem
fólk fer eftir en erfitt er koma í orð
hverjar eru.“
Að mörgu er að huga í hröðum
heimi tískunnar, sérstaklega
þegar kemur að undirbúningi á
tískusýningu fyrir stærsta svið
borgarinnar, Paris Fashion Week.
„Við sýndum bæði herra- og
dömulínuna á sömu sýningunni í
september en það er í fyrsta sinn
sem Haider gerir það. Það er ótrú-
lega sérstök tilfinning að vinna
hörðum höndum dag og nótt og
svo stendur sýningin yfir í um 15
mínútur. Meðan allir standa upp
og klappa vorum við baksviðs í
spennufalli, drukkum nokkur
kampavínsglös og fórum síðan
heim og sváfum í sólarhring.“
Verkefni Bergs hjá Haider voru
eins misjöfn og þau voru mörg
að hans sögn. „Ég var settur í þau
verkefni sem þurfti að græja hverju
sinni, allt frá því að búa til hugar-
heim og litapalettu fyrir línuna eða
hlaupa á Hotel George V og pikka
upp kjól fyrir Naomi Campbell.“
Tvö ólík fyrirtæki
Í október á síðasta ári færði Bergur
sig um set og hóf starfsnám hjá
Acne Studios sem hann segir mun
þekktara og aðgengilegra merki en
Haider. „Þær vörur eru á viðráðan-
legra verði og eru seldar í mun
fleiri búðum auk þess sem Acne
Studios er með eigin búðir út um
allan heim. Það var góð reynsla að
fá að starfa hjá svona ólíkum fyrir-
tækjum. Hjá Acne er t.d. séð mjög
vel um starfsfólkið með alls konar
fríðindum, enda skandinavískt.
Hjá Acne hef ég aðallega verið að
vinna að hönnun á úlpum og alls
kyns yfirhöfnum svo ég nefni
eitthvað. Ég hef stundum ferðast
til höfuðstöðva þeirra í Stokk-
hólmi og sótt kynningarfundi
með eiganda Acne Studios. Þessar
ferðir hafa verið mjög lærdóms-
ríkar og dýrmæt reynsla. Síðan ég
byrjaði hjá Acne í október vann
ég að haustlínu merkisins sem
var frumsýnd fyrir stuttu í Palais
de Tokyo. Nú erum við að vinna
hörðum höndum að sumarlínu
2020. Sú vinna fer vel af stað og
línan verður mjög skemmtileg.“
Hann segir fyrirtækin tvö vera
mjög ólík, raunar eins og svart og
hvítt. „Haider er mun minna fyrir-
tæki þar sem bara nokkrir starfs-
menn starfa. Þar er meiri glamúr,
dýrari f líkur og vörurnar meira
nær hátísku. Það er líka minna
vöruúrval hjá Haider og talsvert
meiri vinna og pæling á bak við
hverja einustu flík.“
Kraftur á Íslandi
Hann segir erfitt að bera saman
heimsborgina París og litla Ísland.
„Það er kraftur í íslenskri tísku í
dag. Það eru margir hæfileikaríkir
fatahönnuðir en við erum bara svo
fámenn þjóð. Markaðurinn er lítill
og ekki mikið af starfsmöguleikum
í boði. Mér finnst gaman að sjá að
það eru þó nokkrir ungir fatahönn-
uðir á Íslandi að hanna sínar eigin
vörur. Svo erum við auðvitað með
flott fyrirtæki eins og 66°Norður.
Annars er í raun ekki hægt að bera
saman Reykjavík og París. Þetta
eru gerólíkir heimar.“
Með keppnisskap
Senn líður að lokum dvalar hans
hjá Acne Studios og um þessar
mundir er hann í miðju umsóknar-
ferli fyrir næsta starfsnám. „Ég var
í fótbolta til tvítugs þannig að ég
hef mikið keppnisskap og hef bara
verið að eltast við stóru þekktu
húsin hér í París. Það er erfitt að
komast í starfsnám þar sem hundr-
uð fatahönnuða útskrifast um
allan heim á hverju ári. Oft taka
tískuhúsin bara einn til tvo starfs-
nema á ári, stundum enga, svo það
er erfitt að komast að. Ég hef verið
mjög heppinn og er óendanlega
þakklátur fyrir að hafa fengið að
komast í starfsnám tvisvar í röð
í París. Það kitlar mig líka alltaf
aðeins að koma heim og prófa
að stofna mitt eigið merki og sjá
hverjar viðtökurnar verða. Eins og
staðan er núna er ekkert ákveðið
heldur er ég að skoða möguleikana
hér í París og í öðrum borgum.“
Nýtir frítímann vel
Álagið getur verið mikið í tísku-
bransanum og segir Bergur það
koma fyrir, sérstaklega fyrir
sýningar, að það sé unnið alla nótt-
ina og ekkert sofið. „Inn á milli fæ
ég þó frítíma en hann nýti ég mest
með Margréti. Við erum dugleg að
njóta borgarinnar, t.d. með því að
fara á söfn og alls konar sýningar.
Hér er alltaf eitthvað um að vera
svo það er sannarlega erfitt að láta
sér leiðast. Okkur finnst gaman að
fara í hönnunarbúðir en þar fæ ég
mikinn innblástur. Svo er frönsk
matarmenning náttúrulega stór-
kostlega góð svo við erum dugleg
við að fara út að borða hér í París.“
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr
Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Haider er mikill
listamaður að
sögn Bergs og eru
sýningar hans
oftar en ekki
mjög áhuga-
verðar. Hér ganga
öll módelin í hóp.
Hjá Acne
Studios
sérhæfir
Bergur sig
í hönnun
á yfir-
höfnum.
Sýnishorn
úr línu
Haid er
Acker-
mann sem
Bergur og
hönnunar-
teymið
hjá Haider
hannaði
saman.
Bergur Guðnason fatahönnuður á góðri stundu í París með unnustu sinni, Margréti Rajani Davíðsdóttur.
Það er kraftur í
íslenskri tísku í
dag. Það eru margir
hæfileikaríkir fatahönn-
uðir en við erum bara
svo fámenn þjóð.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt, fyrir
flottar konur
Verslunin Belladonna
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
4
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
1
-C
A
1
8
2
2
5
1
-C
8
D
C
2
2
5
1
-C
7
A
0
2
2
5
1
-C
6
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K