Fréttablaðið - 14.02.2019, Page 56

Fréttablaðið - 14.02.2019, Page 56
Franska kvikmyndahátíðin er í fullum gangi í Háskólabíói og Veröld – Húsi Vigdísar. Þetta er í nítjánda sinn sem hátíðin er haldin í Reykja- vík og sem fyrr er lögð áhersla á að gefa mynd af fjölbreytni franskrar kvikmyndagerðar með úrvali nýrra mynda af öllu tagi. Á dagskránni eru gamanmyndir, drama, spennumyndir, teiknimynd- ir, sögulegar og klassískar myndir þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað fyrir sinn smekk. Allar hafa myndirnar fengið mikla aðsókn og lof í Frakklandi og víða um lönd, ekki síst á þekktum kvikmyndahá- tíðum. Myndirnar eru sýndar ýmist með íslenskum eða enskum texta. Minning kvikmyndagerðarkon- unnar Sólveigar Anspach verður heiðruð á hátíðinni í kvöld þegar verðlaun í nafni hennar verða afhent í þriðja sinn í Háskólabíói kl. 18. Verðlaunin eru veitt fyrir frum- raun í stuttmyndagerð og er skil- yrðið að leikstjórinn sé kona og að myndin sé á frönsku eða íslensku. Að þessu sinni sendu 60 kvikmynda- gerðarkonur, frá Íslandi, Frakklandi, Alsír, Kanada, Kongó, Malí, Senegal og Sviss myndir í keppnina. Dómnefnd skipuð Degi Kára Pét- urssyni, Helgu Rakel Rafnsdóttur, Ísold Uggadóttur, Valérie Leroy og Sjón sem var formaður, valdi þrjár sem verða sýndar í kvöld og ein þeirra hlýtur verðlaunin sem Eliza Reid forsetafrú afhendir. Myndirnar þrjár eru ólíkar og hver er sögð bera sín sterku einkenni; ljóðræna sýn, vísindaskáldskap, fjölskyldusögu. Myndirnar kanna dýpsta samband okkar við þau sem okkur standa næst og minna á hve ímyndun og dagdraumar skipta miklu máli í lífinu. Athöfninni lýkur með sýningu á Tunglferðinni eftir Georges Méliès. Myndin er frá fyrstu árum kvik- myndagerðar, tekin árið 1902, og er 15 mínútna löng. Hún er um leið fyrsta framtíðar- eða vísindamynd sem sögur fara af. Sólveig Anspach lést 2015 langt fyrir aldur fram og hennar er nú minnst í þriðja sinn á Frönsku kvikmyndahátíðinni sem nú fer fram í Reykjavík. Sólveigar Anspach minnst á Frönsku kvikmyndahátíðinni KVIKMYNDIR Tryggð HHHHH Leikstjórn: Ásthildur Kjartansdóttir Aðalhlutverk: Elma Lísa Gunn- arsdóttir, Enid Mbabazi, Raffaella Brizuela Sigurðardóttir, Claire Harpa Kristinsdóttir. Tryggð er stórmerkileg kvikmynd sem maður hefur einhvern veginn á tilfinningunni að allt of margir séu að láta fram hjá sér fara. Það væri mikið glapræði þar sem hér er á ferðinni ákaf lega vönduð og vel gerð kvikmynd sem á brýnt erindi við okkur öll. Ásthildur Kjartansdóttir leik- stýrir og skrifar handritið og skilar stórgóðri kvikmynd upp úr skáld- sögunni Tryggðarpantur eftir Auði Jónsdóttur. Bók Auðar kom út 2006 og sjálfsagt ber það spádómsgáfu rithöfundarins skýrt vitni að sagan á enn frekar erindi nú en þá. Elma Lísa Gunnarsdóttir leikur Gíselu, mátulega hrokafulla blaða- konu og íslenska forréttindapíu sem hefur það býsna gott í húsi sem hún erfði eftir ömmu sína. En ekki er allt sem sýnist og fjárhagurinn þrengist f ljótt þegar hún segir upp í vinnunni. Þá grípur hún á lofti tækifæri til þess að skrifa grein um aðstæður innf lytjenda á Íslandi og kynnist þannig Mariu, frá Suður-Ameríku, og Abebu sem er hingað komin frá Úganda ásamt ungri dóttur sinni, Lunu. Af misskilinni og skilyrtri hjarta- gæsku hvítu konunnar býður hún konunum að búa hjá sér og allt fer voða vel af stað. Gísella fyllir upp í andlegt og veraldlegt tómarúm með nýju leigjendunum en þegar efna- hagur hennar þrengist og nýju „vin- konurnar“ vilja fá sjálfsagt athafna- frelsi súrnar sambúðin fljótt. Myndin er ákaflega áferðarfögur, kvikmyndatakan er á köflum frá- bær og sviðsmyndin heillandi en mynda þó aðeins ramma um marg- laga mannlegan harmleik utan um ágenga sögu. Upphaf, ris og endalok myndar- innar smella saman í firnasterka heild sem hálfpartinn bítur í halann á sjálfri sér þegar aðalpersónan er annars vegar. Hin vel upplýsta, vel meinandi, hvíta, vestræna „góðmennska“ okkar í garð „hinna“ sem deila jörð- inni með okkur kristallast í míkró- kosmósinum sem hús Gísellu er. Konurnar sem hún hýsir af hjarta gæsku og á eigingjörnum for- sendum hafa hrakist hingað undan fátækt, styrjöldum og annarri óáran sem er ekki síst afleiðing ofbeldis og vestræns yfirgangs í þeirra heims- hluta árhundruðum saman. Hin vestræna sektarblandna Æ sér gjöf til gjalda Ólíkum menningarheimum lýstur saman í húsi í Reykjavík með hádramatískum afleiðingum í Tryggð. Mikið mæðir á Elmu Lísu í aðalhlutverkinu sem hún skilar með miklum glæsibrag. Enid Mbabazi og Claire Harpa Kristinsdóttir eru dá- samlegar í hlutverkum mæðgna frá Úganda sem fá að kenna á gestrisni Gíselu sem Elma Lísa leikur. hjálpfýsi og góðmennska gagn- vart þessu ógæfusama fólki („ekki segja „þetta fólk!““) persónugerist dásamlega í Gísellu sem er í raun holdgervingur allra okkar hvítu, vestrænu forréttinda. Ljóst litaraftið og þjóðernið, sem opnar nánast hvaða dyr sem er, gerir Gísellu mögulegt að hætta í fússi í vinnunni sem henni leiðist í, taka sér góðan tíma til að „fara yfir málin“, láta sér leiðast í tómu, barnlausu húsi, sulla í rauðvíni og setja saman lausleg plön um að skrifa grein um fátæka innflytj- endur. Allt þetta getur hún leyft sér á sama tíma og vextir hlaðast ofan á lánin og gjaldþrot vofir yfir. Samt lúxus sem Abeba getur ekki einu sinni látið sig dreyma um þar sem hún stritar myrkranna á milli til þess að hafa þak yfir höfuð sitt og dóttur sinnar. Smátt og smátt verður áhorfendum ljóst að samkennd Gísellu með konunum bágstöddu nær einungis svo langt sem konurnar sam- þykkja yfirburði hennar og halda sig við fyrir- framgefin hlutverk s í n s e m konur sem eiga bágt og þurfa aðstoð. Það er til dæmis ekki vel séð að eiga kærasta, reykja sígarettur eða að benda Gísellu á að hún eigi eftir að vinna húsverk. Samskipti Gís- ellu og leigjendanna eru í rauninni míkrókosmós af ofríki nýlenduherra gagnvart hinum undirsettu; ráðríki hennar gagnvart skjólstæðingunum ágerist eftir því sem líður á myndina án þess að hún verði þess vör. En það er einmitt svoleiðis sem hvít forrétt- indi virka; þau eru svo sjálfsögð, allt- umlykjandi og mynda svo þéttofið net um veruleikann. Ein skýrasta birtingarmynd þess í myndinni er hve sjálfsagt Gísellu þykir að slá eign sinni á Lunu, dóttur Abebu, undir formerkjum velvildar. Þetta mynst- ur er býsna vel þekkt og nær mörg hundruð ár aftur í tímann þar sem hvítum konum sem tilheyrðu yfir- stétt nýlenduherranna þótti sjálfsagt að taka börn af svörtum ambáttum sínum sem eins konar sambland af lítilli manneskju og gæludýri. Innflytjendur á Íslandi voru ein- mitt að mótmæla kröppum kjörum sínum hérna í gær. Pæliði aðeins í því og drífið ykkur svo í bíó að sjá Tryggð. Þórarinn Þórarinsson NIÐURSTAÐA: Falleg en átakanleg bíómynd sem á brýnt erindi við íslenskan samtíma og okkur öll. Mynd sem er ekki síður mikilvægt að allir sjái en Lof mér að falla. Við erum öll ein fjölskylda. Er þetta eitthvað flókið? 1 4 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R40 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍÓ 1 4 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 5 1 -D 8 E 8 2 2 5 1 -D 7 A C 2 2 5 1 -D 6 7 0 2 2 5 1 -D 5 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.