Fréttablaðið - 31.01.2019, Side 21
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Barselóna – Hvað voru Íslending-ar að flýja þegar röskur fimmt-ungur þjóðarinnar, sumir segja
fjórðungur, flutti vestur um haf 1870-
1914? Fátækt, já, og einnig kulda eins
og Vesturfarasafnið á Hofsósi vitnar
um: „Hver kaldi veturinn rak annan
með köldum sumrum í kjölfarið, ís
lá að landinu …“ Íbúafjöldi landsins
stóð í stað frá 1870 til 1890 og var þá
enn um 70 þúsund. Til viðmiðunar
voru Íslendingar um 35 þúsund við
stofnun Alþingis 930.
Áður en skipulegar vesturferðir
hófust 1870 höfðu nokkrir Íslend-
ingar farið til Júta í Bandaríkjunum
eins og Halldór Laxness lýsti í Para-
dísarheimt og einnig til Brasilíu.
Alls fóru um 15 til 20 þúsund manns
vestur um haf í leit að betra lífi 1870-
1914, en sumir sneru þó aftur heim.
Um fjórðungur Svía fluttist um líkt
leyti vestur um haf, ein milljón af
fjórum. Báðar þjóðir hafa sömu sögu
að segja. Forfeðrum okkar og for-
mæðrum var tekið opnum örmum í
Vesturheimi. Þannig vilja flóttamenn
og aðrir nýbúar að komið sé fram við
þá í nýjum heimkynnum.
Bræðslupottar
Saga heimsins er saga fólksflutninga.
Þannig byggðust Ísland og Ameríka.
Og þannig byggðist heimurinn þegar
frumbyggjarnir dreifðu sér út um
allar jarðir frá Afríku. Öldin sem leið
vitnar um vel heppnaða fólksflutn-
inga, stundum þó af illum tilefnum,
og vitnar einnig um illa dregin landa-
mæri og ófrið af þeirra völdum.
Bandaríkin byggðust sem bræðslu-
pottur, sannkallað innflytjendaríki
þar sem ólíku fólki ægir saman. Evr-
ópa er nú einnig orðin að bræðslu-
potti. Fjöldi íbúa Sviss sem er fæddur
utan landsins er 28%, tvisvar sinnum
hærra hlutfall en í Bandaríkjunum.
Fjöldi íbúa Norðurlanda sem er
fæddur utan lands er orðinn svip-
aður og vestra: 12% í Danmörku, 14%
á Íslandi, 15% í Noregi og 18% í Sví-
þjóð. Finnland sker sig úr með sín 6%.
Reynslan sýnir að fólk af ólíkum
uppruna á yfirleitt auðvelt með að
búa saman í sátt og samlyndi. Hör-
undslitur skiptir flest fólk ekki meira
máli en augnlitur. Þannig er til dæmis
Singapúr. Og þannig er Höfðaborg,
eða var þar til aðskilnaðarsinnar hófu
ofsóknir gegn lituðu fólki um og eftir
miðja síðustu öld.
Líkt og Íslendingar og Svíar eru
margir Austurríkismenn, Ítalar, Pól-
verjar, Spánverjar, Tékkar, Ungverjar,
Þjóðverjar o.fl. þakklátir gestgjöfum
sínum í Ameríku fyrir að hafa tekið
þeim tveim höndum þegar þeir flúðu
undan ógnarstjórn nasista, fasista og
kommúnista í heimalöndum sínum
á síðustu öld. Mörgum Evrópubúum
finnst því sjálfsagt að taka við fólki
sem leitar nú til þeirra á flótta undan
stríði og steikjandi hita.
Stríðsflóttamenn eru kapítuli út
af fyrir sig. Næstum fjórðungur Sýr-
lendinga, fimm milljónir af 22, hafa
flúið landið frá því borgarastyrjöldin
þar brauzt út 2011, flestir til Tyrk-
lands, Líbanons og Jórdaníu. Meðal
Evrópulanda hafa Þýzkaland og Sví-
þjóð tekið við flestum sýrlenzkum
flóttamönnum. Straumurinn hefur
hjaðnað frá 2015.
Loftslagsflóttamenn eru annað mál
og óvenjulegra þótt hliðstæð dæmi
séu þekkt frá fyrri tíð eins og vestur-
ferðir Íslendinga vitna um. Stríð og
hitnandi loftslag eru hvort tveggja
hörmungar af manna völdum.
Straumur flóttamanna frá Afríku
að ströndum Grikklands, Ítalíu,
Spánar o.fl. Miðjarðarhafslanda
Loftslagsflóttamenn
síðustu ár stafar einkum af hlýnun
loftslags og meðfylgjandi vatns-
skorti. Straumurinn á trúlega eftir að
harðna. Flóttafólkið hættir lífi sínu
í lekum bátum frekar en að stikna
heima fyrir. Chad-vatn, ein helzta
vatnsuppspretta 20 til 30 milljóna
manna í afrísku eyðimörkinni, hefur
minnkað að flatarmáli um 90%.
Í fyrra, 2018, komu 134 þúsund
manns sjóleiðina til Suður-Evrópu,
Sýrlendingar, Afríkumenn og aðrir,
borið saman við 180 þúsund manns
árið áður. Íbúar Evrópu hafa tekið
við flestu þessu fólki, minnugir þess
hversu vel þeim var tekið þegar þeir
þurftu sjálfir að flýja að heiman. Við
bætist vitneskjan um að ríkar þjóðir
í Ameríku og Evrópu bera mun meiri
ábyrgð en fátækari lönd á hitnandi
loftslagi. Margir Evrópumenn hafa
áhyggjur af innstreyminu, einkum
þeim nýbúum sem sýna því lítinn
áhuga að semja sig að siðum heima-
manna og halda jafnvel sumir áfram
að fremja heiðursmorð eins og
heima hjá sér. Það er að sönnu sjald-
gæft, en við slíkt er ekki búandi.
Gestgjafareglan
Hér kemur gestgjafaregla Kristjáns
Hreinssonar skálds og heimspek-
ings til skjalanna og bregður birtu á
vandann. Gesturinn getur því aðeins
ætlazt til að vera velkominn að hann
semji sig skv. reglunni að siðum gest-
gjafans. Þessa reglu virtu Íslendingar,
Svíar og aðrir í Vesturheimi. Þessa
reglu virða næstum allir nýbúar,
hver á sínum stað, og hana þurfa sýr-
lenzkir flóttamenn og aðrir einnig að
virða. Gestgjafinn hefur framfylgd
reglunnar á heimavelli í hendi sér. Sé
reglunni ekki framfylgt geta illskeyttir
öfgamenn náð að magna óvild í garð
flóttamanna svo sem Donald Trump,
forseti Bandaríkjanna, hefur reynt
og einnig t.d. Victor Orbán, forsætis-
ráðherra Ungverjalands. Þeir höfða
hvorugur til heilbrigðra menningar-
og varðveizlusjónarmiða heldur til
innhverfrar þjóðrembu og rasisma.
Gott og girnilegt
Nú er ljúffenga Goða upphengiáleggið komið í umhverfis-
vænni umbúðir úr pappa. Því er ekkert mál að flokka og endurvinna.
Betra fyrir umhverfið
Goði - alltaf góður
NÝTT
Með góðri sAmvisku
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 3 1 . J A N Ú A R 2 0 1 9
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
1
-8
E
4
C
2
2
3
1
-8
D
1
0
2
2
3
1
-8
B
D
4
2
2
3
1
-8
A
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K