Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 21
Þorvaldur Gylfason Í DAG Barselóna – Hvað voru Íslending-ar að flýja þegar röskur fimmt-ungur þjóðarinnar, sumir segja fjórðungur, flutti vestur um haf 1870- 1914? Fátækt, já, og einnig kulda eins og Vesturfarasafnið á Hofsósi vitnar um: „Hver kaldi veturinn rak annan með köldum sumrum í kjölfarið, ís lá að landinu …“ Íbúafjöldi landsins stóð í stað frá 1870 til 1890 og var þá enn um 70 þúsund. Til viðmiðunar voru Íslendingar um 35 þúsund við stofnun Alþingis 930. Áður en skipulegar vesturferðir hófust 1870 höfðu nokkrir Íslend- ingar farið til Júta í Bandaríkjunum eins og Halldór Laxness lýsti í Para- dísarheimt og einnig til Brasilíu. Alls fóru um 15 til 20 þúsund manns vestur um haf í leit að betra lífi 1870- 1914, en sumir sneru þó aftur heim. Um fjórðungur Svía fluttist um líkt leyti vestur um haf, ein milljón af fjórum. Báðar þjóðir hafa sömu sögu að segja. Forfeðrum okkar og for- mæðrum var tekið opnum örmum í Vesturheimi. Þannig vilja flóttamenn og aðrir nýbúar að komið sé fram við þá í nýjum heimkynnum. Bræðslupottar Saga heimsins er saga fólksflutninga. Þannig byggðust Ísland og Ameríka. Og þannig byggðist heimurinn þegar frumbyggjarnir dreifðu sér út um allar jarðir frá Afríku. Öldin sem leið vitnar um vel heppnaða fólksflutn- inga, stundum þó af illum tilefnum, og vitnar einnig um illa dregin landa- mæri og ófrið af þeirra völdum. Bandaríkin byggðust sem bræðslu- pottur, sannkallað innflytjendaríki þar sem ólíku fólki ægir saman. Evr- ópa er nú einnig orðin að bræðslu- potti. Fjöldi íbúa Sviss sem er fæddur utan landsins er 28%, tvisvar sinnum hærra hlutfall en í Bandaríkjunum. Fjöldi íbúa Norðurlanda sem er fæddur utan lands er orðinn svip- aður og vestra: 12% í Danmörku, 14% á Íslandi, 15% í Noregi og 18% í Sví- þjóð. Finnland sker sig úr með sín 6%. Reynslan sýnir að fólk af ólíkum uppruna á yfirleitt auðvelt með að búa saman í sátt og samlyndi. Hör- undslitur skiptir flest fólk ekki meira máli en augnlitur. Þannig er til dæmis Singapúr. Og þannig er Höfðaborg, eða var þar til aðskilnaðarsinnar hófu ofsóknir gegn lituðu fólki um og eftir miðja síðustu öld. Líkt og Íslendingar og Svíar eru margir Austurríkismenn, Ítalar, Pól- verjar, Spánverjar, Tékkar, Ungverjar, Þjóðverjar o.fl. þakklátir gestgjöfum sínum í Ameríku fyrir að hafa tekið þeim tveim höndum þegar þeir flúðu undan ógnarstjórn nasista, fasista og kommúnista í heimalöndum sínum á síðustu öld. Mörgum Evrópubúum finnst því sjálfsagt að taka við fólki sem leitar nú til þeirra á flótta undan stríði og steikjandi hita. Stríðsflóttamenn eru kapítuli út af fyrir sig. Næstum fjórðungur Sýr- lendinga, fimm milljónir af 22, hafa flúið landið frá því borgarastyrjöldin þar brauzt út 2011, flestir til Tyrk- lands, Líbanons og Jórdaníu. Meðal Evrópulanda hafa Þýzkaland og Sví- þjóð tekið við flestum sýrlenzkum flóttamönnum. Straumurinn hefur hjaðnað frá 2015. Loftslagsflóttamenn eru annað mál og óvenjulegra þótt hliðstæð dæmi séu þekkt frá fyrri tíð eins og vestur- ferðir Íslendinga vitna um. Stríð og hitnandi loftslag eru hvort tveggja hörmungar af manna völdum. Straumur flóttamanna frá Afríku að ströndum Grikklands, Ítalíu, Spánar o.fl. Miðjarðarhafslanda Loftslagsflóttamenn síðustu ár stafar einkum af hlýnun loftslags og meðfylgjandi vatns- skorti. Straumurinn á trúlega eftir að harðna. Flóttafólkið hættir lífi sínu í lekum bátum frekar en að stikna heima fyrir. Chad-vatn, ein helzta vatnsuppspretta 20 til 30 milljóna manna í afrísku eyðimörkinni, hefur minnkað að flatarmáli um 90%. Í fyrra, 2018, komu 134 þúsund manns sjóleiðina til Suður-Evrópu, Sýrlendingar, Afríkumenn og aðrir, borið saman við 180 þúsund manns árið áður. Íbúar Evrópu hafa tekið við flestu þessu fólki, minnugir þess hversu vel þeim var tekið þegar þeir þurftu sjálfir að flýja að heiman. Við bætist vitneskjan um að ríkar þjóðir í Ameríku og Evrópu bera mun meiri ábyrgð en fátækari lönd á hitnandi loftslagi. Margir Evrópumenn hafa áhyggjur af innstreyminu, einkum þeim nýbúum sem sýna því lítinn áhuga að semja sig að siðum heima- manna og halda jafnvel sumir áfram að fremja heiðursmorð eins og heima hjá sér. Það er að sönnu sjald- gæft, en við slíkt er ekki búandi. Gestgjafareglan Hér kemur gestgjafaregla Kristjáns Hreinssonar skálds og heimspek- ings til skjalanna og bregður birtu á vandann. Gesturinn getur því aðeins ætlazt til að vera velkominn að hann semji sig skv. reglunni að siðum gest- gjafans. Þessa reglu virtu Íslendingar, Svíar og aðrir í Vesturheimi. Þessa reglu virða næstum allir nýbúar, hver á sínum stað, og hana þurfa sýr- lenzkir flóttamenn og aðrir einnig að virða. Gestgjafinn hefur framfylgd reglunnar á heimavelli í hendi sér. Sé reglunni ekki framfylgt geta illskeyttir öfgamenn náð að magna óvild í garð flóttamanna svo sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur reynt og einnig t.d. Victor Orbán, forsætis- ráðherra Ungverjalands. Þeir höfða hvorugur til heilbrigðra menningar- og varðveizlusjónarmiða heldur til innhverfrar þjóðrembu og rasisma. Gott og girnilegt Nú er ljúffenga Goða upphengiáleggið komið í umhverfis- vænni umbúðir úr pappa. Því er ekkert mál að flokka og endurvinna. Betra fyrir umhverfið Goði - alltaf góður NÝTT Með góðri sAmvisku S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 3 1 . J A N Ú A R 2 0 1 9 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 1 -8 E 4 C 2 2 3 1 -8 D 1 0 2 2 3 1 -8 B D 4 2 2 3 1 -8 A 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.