Fréttablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 33
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Landsvirkjun er fyrirtæki í eigu þjóðarinnar og hlutverk þess er að hámarka afrakstur af
þeim orkulindum sem okkur er
trúað fyrir. Við leggjum áherslu á að
skapa verðmæti fyrir samfélagið og
fara vel með auðlindir landsins. Að
mínu mati er bæði hægt að fara vel
með auðlindir með því að vernda
þær og nýta þær með sjálfbærum
hætti. Annað þarf ekki að útiloka
hitt. Þarna á milli er viðkvæmt
jafnvægi og oft er þessu stillt upp
sem andstæðum pólum. Ég hef hins
vegar haldið því fram að fólk geti
verið virkjunarsinnaðir náttúru-
verndarsinnar og náttúruverndar-
sinnaðir virkjunarsinnar. Annað
útilokar ekki hitt,“ segir Ragna.
Hræðist ekki erfið verkefni
„Við höfum
komist að
raun um að til
að ná árangri
í jafnréttis-
málum verðum
við að horfa
á fyrirtækja-
menninguna,
en oft er erfitt
að breyta henni.
Við höfum sett
fram mælanleg
markmið sem
unnið er að og
höfum átt gott
samtal innan
fyrirtækisins
þar sem jafn-
réttismálin eru
í brennidepli.
Þetta er mál sem
er nauðsynlegt
fyrir okkur að
ná sem bestum
árangri í til
að við getum
dafnað og
náð árangri,“
segir Ragna.
MYND/EYÞÓR
Innt eftir því hvort ekki sé erfitt að
stjórna í fyrirtæki sem fái á sig gagn-
rýni úr ýmsum áttum, meðal annars
vegna umhverfismála, svarar hún:
„Mér finnst ekki gaman að fást við
auðveld verkefni. Ég vil erfið verk-
efni og vera þar sem hasarinn er,“
segir hún og brosir. „Sjónarmiðin
eru mörg og ólík og margt sem þarf
að vega og meta. Það skiptir þjóðina
miklu hvernig er haldið á þessum
málum og ekki síst þess vegna hvet
ég fleiri konur til að koma í orku-
geirann og láta sig þessi mál varða.
Það vantar sárlega fleiri konur í
þessa umræðu.“
Aðstæður að skapast til
arðgreiðslna
Þegar Ragna hóf störf hjá Lands-
virkjun árið 2010 hafði hún aðeins
óljósa hugmynd um starfsemi
hennar. Það kom henni á óvart
hversu spennandi henni þóttu við-
fangsefnin og hversu víðfeðm starf-
semi fer fram í fyrirtækinu.
„Landsvirkjun rekur átján afl-
stöðvar um allt land. Starfsmenn eru
í kringum 270 og starfa í höfuð-
borginni, á Suðurlandi, Austurlandi,
Norðausturlandi og Norðvestur-
landi. Við höfum verið að auka jafnt
og þétt við þá orku sem við vinnum.
Saga fyrirtækisins hefur einmitt
snúist um það, að byggja virkjanir
og auka framleiðsluna. Við höfum
samið sérstaklega við álverin, kísil-
málmverksmiðjur og gagnaver og
seljum einnig til annarra orkufyrir-
tækja í gegnum svokallaðan heild-
sölumarkað. Við seljum ekki beint
til heimila og erum því ekki nálægt
hinum almenna notanda í þeim
skilningi.“
Ragna segir starfsmenn Lands-
virkjunar raunar ekki marga
miðað við veltu fyrirtækisins en
tekjur Landsvirkjunar árið 2017
voru um 480 milljónir Bandaríkja-
dala, eða um 50 milljarðar króna.
Nettóskuldirnar á síðasta ári voru
rúmlega tvö þúsund Bandaríkjadalir
sem eru yfir 200 milljarðar króna.
„Við höfum lagt mikla áherslu á
að greiða niður skuldir, sem hefur
gengið vel, samhliða uppbyggingu
síðustu ára. Í framhaldinu munu
skapast skilyrði til að greiða meiri
arð og væntanlegar arðgreiðslur
hafa verið dálítið í umræðunni
undanfarið. Ég tel að núna sé ein-
mitt rétti tíminn til að ræða hvað
eigandi Landsvirkjunar, ríkið, eigi
að gera við arð framtíðar, en ekki
þegar hann er búinn að myndast,“
segir Ragna og áréttar að hjá Lands-
virkjun þurfi ávallt að hugsa áratugi
fram í tímann. „Að byggja virkjun er
margra ára ferli sem felur í sér hug-
myndavinnu, mælingar, rannsóknir
og framkvæmd. Ferlið hefur verið
að lengjast. Svona framkvæmdir
eru umdeildar og ekki hlaupið að
því að fá tilskilin leyfi. Til dæmis
þarf að fara í umhverfismat og langt
umsagnarferli, enda er mikilvægt
að almenningur og hagaðilar fái að
segja sína skoðun á verkefnum.“
Landsvirkjun er með ýmsa virkj-
unarkosti sem verið er að rannsaka
og skoða. „En að lokum erum það
ekki við sem ráðum því hvar verður
virkjað eða verndað, heldur þarf
virkjunarkostur að vera í nýtingar-
flokki í rammaáætlun, sem Alþingi
samþykkir.“
Mikilvægt að ná jafnrétti
Ragna á sæti í framkvæmdastjórn
Landsvirkjunar og var þar lengi vel
eina konan. „Sem betur fer erum við
orðnar tvær og það er gott skref,“
segir Ragna. Betur má ef duga skal
og hefur Landsvirkjun unnið mark-
visst að jafnréttismálum undanfarin
tvö ár, með þátttöku alls starfsfólks.
„Við höfum komist að raun um að
til að ná árangri í jafnréttismálum
verðum við að horfa á fyrirtækja-
menninguna, en oft er erfitt að
breyta henni. Við höfum sett fram
mælanleg markmið sem unnið er
að og höfum átt gott samtal innan
fyrirtækisins þar sem jafnréttis-
málin eru í brennidepli. Þetta er mál
sem er nauðsynlegt fyrir okkur að
ná sem bestum árangri í til að við
getum dafnað og náð árangri.“
En er hún bjartsýn á að jafnrétti
náist? „Þetta er allt fram á við og ég
vona að við getum einhvern tíma
sagt: „Nú er komið jafnrétti.“ Fyrir
mér er jafnrétti ekki algert fyrr en
það er 50/50 og þann dag sem algert
jafnrétti næst í viðskiptalífinu, orku-
geiranum og atvinnulífinu, skal ég
gleðjast. Ég vona bara að ég verði
ekki dauð þegar það gerist,“ segir
hún og hlær.
Loftslagsmál í stærra
samhengi
Í byrjun árs 2017 var ákveðið að
Landsvirkjun myndi í starfsemi
sinni leggja áherslu á þrjú af heims-
markmiðum Sameinuðu þjóðanna
um sjálfbæra þróun. Eitt þeirra er
heimsmarkmið 13, sem snýst um að
grípa þurfi til bráðra aðgerða gegn
loftslagsbreytingum og áhrifum
þeirra.
Ragna segir Íslendinga standa
frammi fyrir lúxusvandamáli. „Við
getum ákveðið hvort við viljum
byggja frekar við endurnýjanlega
orkugjafa eða ekki. Flestar aðrar
þjóðir vinna t.d. að því hörðum
höndum að auka sína framleiðslu
með endurnýjanlegum orkugjöfum,
en við getum valið með hagsmuni
landsins í huga. Því vali fylgir
ábyrgð.“
Hún segir mikilvægt að horfa á
loftslagsmálin í alþjóðlegu sam-
hengi. „Mér finnst gott að við gerum
okkur grein fyrir þeirri staðreynd að
loftslagsmál og baráttan við gróður-
húsaáhrif eru eitt mest aðkallandi
viðfangsefni okkar allra um þessar
mundir. Vissulega vegast á sjónar-
mið hnattrænnar loftslagsverndar
og staðbundinnar náttúruverndar,
en við berum mikla ábyrgð í þessum
efnum og ættum tvímælalaust
að vilja leggja okkar af mörkum.
Það getum við til dæmis gert með
því að nýta virkjunarkosti sem er
skynsamlegt að nýta, eins og til
að mynda vindmyllur. Það er ekki
skynsamlegt að hætta uppbyggingu
og segja að nú sé nóg komið, heldur
eigum við að spyrja okkur hvort við
getum nýtt eitthvað til viðbótar sem
samræmist bæði okkar eigin hags-
munum og er líka framlag okkar til
loftslagsmála. Þannig getum við til
dæmis laðað að okkur fjölbreyttan
iðnað sem ella væri annars staðar í
heiminum.“
Rögnu var boðið að taka þátt
í 24. þingi aðildarríkja Ramma-
samnings Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsbreytingar, COP 24, sem fór
fram 2.-14. desember 2018 í Kato-
wice í Póllandi. Á þinginu komu
saman ríflega 130 ráðherrar og
aðrir fulltrúar aðildarríkjanna, sem
og fulltrúar fyrirtækja og frjálsra
félagasamtaka. „Ég var beðin um
að segja reynslusögu og greindi frá
uppbyggingu vatnsafls og jarð-
varma og hvernig stóriðjan tengist
henni. Ég sagði frá þeim stórmerki-
legu orkuskiptum sem hafa orðið á
Íslandi, fyrst með rafvæðingunni og
síðan hitaveituvæðingunni,“ segir
Ragna en ræða hennar vakti tölu-
verða athygli á þinginu. „Það að geta
sagt að okkar orkuvinnsla byggist
á endurnýjanlegum orkugjöfum að
fullu er stórkostlegt og eitthvað sem
flest ríki heims eiga erfitt með að
skilja.“
Viðfangsefni
Rögnu Árnadótt-
ur, aðstoðarfor-
stjóra Landsvirkj-
unar, eru mörg og
krefjandi. Meðal
annars að sætta
sjónarmið orku-
vinnslu og nátt-
úruverndar. Lofts-
lagsmálin eru
henni hugleikin
svo og jafnréttis-
málin.
Ég hef hins vegar
haldið því fram að
fólk geti verið virkjunar
sinnaðir náttúruverndar
sinnar og náttúru
verndarsinnaðir
virkj unarsinnar.
KYNNINGARBLAÐ 3 F I M MT U DAG U R 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 KONUR Í ATVINNULÍFINU
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
1
-A
B
E
C
2
2
3
1
-A
A
B
0
2
2
3
1
-A
9
7
4
2
2
3
1
-A
8
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K