Fréttablaðið - 31.01.2019, Síða 34
Ég á mér draum um
að búið verði að
brjóta niður glerveggi og
múra þegar stelpurnar
mínar þrjár verða komn-
ar út á vinnumarkaðinn.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Að veita viðurkenningar er dýrmætt. Að gefa hrós er dýrmætt. Ef það er eitthvað
sem ég hef lært á starfsferli mínum
sem stjórnandi er það hversu
mikilvægt það er að gefa endurgjöf
á því sem vel er gert. Ég ætla því
að fá að vitna í einn af viðurkenn-
ingarhöfum kvöldsins, sem ég get
ekki enn ljóstrað upp hver er, en
hún komst vel að orði þegar hún
sagði: „Að fá hrós og viðurkenn-
ingu er eins og lítill koss á sálina“,“
segir Hrafnhildur Hafsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri FKA.
Í kvöld verður árleg verðlauna-
hátíð FKA haldin í Gamla bíó.
„Hátíðin er stærsti viðburður
félagsins ár hvert þar sem vakin er
athygli á konum sem hafa skarað
fram úr í atvinnulífinu og verið
öðrum hvatning og fyrirmynd,“
útskýrir Hrafnhildur.
Alls bárust yfir hundrað tilnefn-
ingar fyrir viðurkenningarhátíðina
sem haldin verður í tuttugasta sinn,
á 20. afmælisári FKA. Dómnefnd
skipuð fjölbreyttum hópi karla og
kvenna hefur útnefnt þrjár konur
sem hljóta FKA-viðurkenninguna,
FKA-þakkarviðurkenninguna og
FKA-hvatningarviðurkenninguna
2019.
„Að veita viðurkenningar er liður
í því að vekja athygli á því sem vel
er gert og draga fram þær mörgu
og flottu kvenfyrirmyndir sem við
höfum,“ segir Hrafnhildur.
Litið yfir farinn veg
„FKA er félagasamtök fyrir allar
konur í atvinnulífinu sem eru
stjórnendur og leiðtogar, hvort sem
þær eiga eða reka fyrirtæki, eru
stjórnendur í fyrirtækjum, stjórnar-
konur, frumkvöðlar eða í nýsköp-
un,“ útskýrir Hrafnhildur. „Ef konur
vilja efla tengslanet sitt, styrkja
sjálfar sig eða hafa áhrif til eflingar
íslensku atvinnulífi, þá er FKA klár-
lega vettvangurinn til þess.“
Það var kraftmikill hópur kvenna
í eigin atvinnurekstri sem tók sig til
og stofnaði Félag kvenna í atvinnu-
rekstri fyrir tuttugu árum.
„Þá var mikil þörf á stuðningi
við konur í eigin rekstri enda voru
þessar konur töluvert færri en í
dag og vantaði stuðningsnet,“ segir
Hrafnhildur. „Fyrstu árin var félagið
eingöngu fyrir konur sem áttu eigið
fyrirtæki en aukinn áhugi annarra
kvenna í atvinnulífinu varð til þess
að félagið opnaðist fyrir allar konur
í atvinnulífinu, bæði stjórnendur og
leiðtoga, og varð að Félagi kvenna í
atvinnulífinu. Á tveimur áratugum
hafa þúsundir kvenna lagt mikla
vinnu í að efla félagið og ekki hægt
annað en að fyllast þakklæti yfir
öllum þeim konum sem rutt hafa
veginn.“
Félagið hefur vaxið og dafnað og
aldrei hafa verið fleiri konur í FKA.
„Við höldum árlega yfir hundrað
fjölbreytta viðburði og erum með
öflugt starf á höfuðborgarsvæðinu
sem og landsbyggðinni. Velgengni
félagasamtakanna er ávallt og fyrst
og fremst undir félagsmönnum
komin; í okkar tilfellum konum,“
segir Hrafnhildur og brosir.
Framþróun en ekki stöðnun
Konur eru áhrifamiklar í íslensku
samfélagi og Ísland sú þjóð sem náð
hefur hvað mestum árangri í jafn-
réttismálum á heimsmælikvarða.
„Enn er þó töluvert í land og við
megum ekki verða værukær, hugsa
að nú sé bara nóg komið eða að
þetta gerist bara af sjálfu sér,“ segir
Hrafnhildur. „Með samhentum
aðgerðum þurfum við að stefna
markvisst að því að búa til samfélag
þar sem fjölbreytni og jafnvægi
ríkir. FKA er ein breytan í því stóra
samhengi þar sem konur í atvinnu-
lífi eru í brennidepli og við erum
hreyfiafl sem stuðlar að þróun
sem snýr að málefnum kvenna í
atvinnulífinu í rekstri og stjórnun,“
segir Hrafnhildur.
Hún segir oft frá draumsýn sinni.
„Ég á mér draum um að búið
verði að brjóta niður glerveggi
og múra þegar stelpurnar mínar
þrjár verða vaxnar úr grasi og
komnar út á vinnumarkaðinn. Hins
vegar er heil mannsævi þar til við
náum jafnvægi sé horft til þeirrar
þróunar og í raun stöðnunar sem
orðið hefur í dag, og þá horfi ég
aðallega til kvenna í stjórnum og
stjórnendastöðum. Það er ekki
ásættanlegt og ég brenn fyrir því að
hraða þessari þróun, ásamt öllum
1.200 konunum sem eru í FKA. Við
sameinumst í þeim krafti að vilja
hafa áhrif til framþróunar og okkar
framtíðarsýn að nýta fjölbreyti-
leikann og skapa atvinnulíf þar sem
við fullnýtum þessa ólíku krafta og
allir njóta sömu tækifæra.“
FKA er í Húsi atvinnulífsins, Borgar-
túni 35. Sjá nánar á fka.is.
FKA eflir kraft kvenna
Félag kvenna í atvinnulífinu stendur á tvítugu. Í tilefni stórafmælisins verður mikið um dýrðir
á afmælisárinu og í kvöld verður árleg viðurkenningarhátíð FKA haldin í Gamla bíó. Viðurkenn-
ingarnar vekja athygli á einstökum kvenfyrirmyndum sem eru öðrum hvatning.
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir er framkvæmdastjóri FKA. MYND/STEFÁN
FKA var stofnað 9. apríl 1999 í kjölfar þess að starfshópur Finns Ingólfssonar, þáverandi
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
skilaði af sér tillögu um að æskilegt
væri að stofna félag til stuðnings
við konur í atvinnurekstri; sér í lagi
til að efla tengslanet þeirra á milli,“
segir Rakel til upprifjunar, og þótt
liðin séu tæp tuttugu ár hefur þörf
á tengslaneti kvenna síst minnkað.
„Aðildarkonum FKA hefur
fjölgað jafnt og þétt og teljast nú
um 1.200. Miklu skipti sú breyt-
ing þegar félagið opnaði aðild
fyrir fleiri kvenstjórnendur en
fyrirtækjaeigendur 2005,“ útskýrir
Rakel. „Það gerði mér til dæmis
kleift að ganga í félagið þegar ég
var framkvæmdastjóri Creditinfo
og taldist til kvenstjórnenda en
ekki eigenda. Ég hafði þá löngum
horft til FKA, enda margar fyrir-
myndir mínar þá þegar í félaginu.“
Þúsundir
viðskiptasambanda
Rakel segir ómetanlegt að hafa
kynnst starfi FKA og öðrum FKA-
konum.
„FKA er ekki aðeins öflugur
vettvangur til stuðnings við kven-
stjórnendur í atvinnulífinu heldur
efa ég ekki að viðskiptasambönd
FKA-kvenna sín á milli megi telja í
þúsundum,“ segir Rakel.
Notaleg staðreynd sé einnig að
traust vinátta myndist á milli FKA-
kvenna.
„Þær eru ófáar FKA-konurnar
sem myndu votta að helstu og
bestu vinkonur sínar væru félags-
konur í FKA. Ég held að þetta
tvennt sé lýsandi fyrir það hvernig
margföldunaráhrif tengslanetsins
virka enda eru þetta orðnir tveir
áratugir.“
Áhrifavaldur í samfélaginu
FKA er mikilvægur áhrifavaldur í
íslensku samfélagi. Rakel segir það
að stórum hluta til vegna hreyfi-
aflsverkefna sem félagið hefur
staðið að undanfarinn áratug.
„Við erum statt og stöðugt að
vinna að því að fjölga konum
í stjórnum félaga og þá vinnur
jafnvægisvog FKA að því að fjölga
konum í framkvæmdastjórnum
fyrirtækja. FKA stendur líka fyrir
fjölmiðlaverkefni sem gengur út á
að auka ásýnd kvenna í fjölmiðlum
og eins leggjum við mikla áherslu á
að #metoo-byltingunni verði fylgt
vel eftir. Allt eru þetta áhersluverk-
efni stjórnar FKA sem við vinnum
í samstarfi með atvinnulífinu, fjöl-
miðlum og stjórnvöldum.“
Öflugt grasrótarstarf
Innra starf FKA er geysilega öflugt.
Þar starfa um 100 konur í nefndum
og deildum á vegum félagsins.
„Ég held því feimnislaust fram
Kvenorkan er magnað afl
„Á 20. afmælisári FKA er við hæfi að rifja upp hvers vegna efling tengslanets kvenna í at-
vinnulífinu er svo mikilvæg í kjarnastarfsemi FKA,“ segir Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA.
„Rétt’ upp hönd“ er hvatning Jafnvægisvogar FKA til fyrirtækja um að jafna hlutföll kynja í framkvæmdastjórnum næstu árin. Á myndinni má sjá stjórn og
framkvæmdastjóra FKA rétta upp hönd, talið frá vinstri: Guðrún Ragnarsdóttir, Lilja Bjarnadóttir, Ragnheiður Aradóttir, Rakel Sveinsdóttir formaður, Hulda
Ragnheiður Árnadóttir, Áslaug Gunnlaugsdóttir, Hrafnhildur Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri og Anna Þóra Ísfold.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
að hér finnist öflugasta grasrótar-
starf landsins,“ segir Rakel. „Því
er stundum fleygt að kvenorkan
sé svo magnað afl að á endanum
sigri hún heiminn og á FKA-við-
burðum er ekki laust við að manni
líði þannig. Ég hvet því konur í
leiðtogahlutverkum til að skrá sig
í félagið; til að styðja við hreyfi-
aflsverkefni FKA eða nýta sér allt
sem við höfum að bjóða. Því fleiri
konur; því stærra tengslanet og því
sterkara verður FKA.“
4 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
1
-B
0
D
C
2
2
3
1
-A
F
A
0
2
2
3
1
-A
E
6
4
2
2
3
1
-A
D
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K