Fréttablaðið - 31.01.2019, Side 38

Fréttablaðið - 31.01.2019, Side 38
Konur eru hug- myndaríkar en það þarf að hvetja þær til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Huld Magnúsdóttir, fram-kvæmdastjóri Nýsköpunar-sjóðs atvinnulífsins, segir að hlutfall kvenna sem leitaði eftir fjárfestingum sjóðsins hafi verið tæplega þriðjungur í fyrra, eða 28 prósent. „Við fáum inn á okkar borð margar og fjölbreyttar kynningar á verkefnum og sprotafyrirtækjum sem eru að leita sér að fjármagni. Meginþorri þeirra er leiddur eða stofnaður af karlmönnum,“ upp- lýsir Huld sem á síðustu árum hefur þó séð mörg nýsköpunar- fyrirtæki sem stýrt er af konum ná góðum árangri. „Sem dæmi má nefna fyrirtækin Primex, Florealis, Stiku og 3Z; allt fyrirtæki sem Nýsköpunar- sjóður atvinnulífsins fjárfesti í á einhverjum tímapunkti og fylgdi vexti þeirra úr hlaði. Við sjáum líka fyrirtæki á borð við Kara Connect, Tulipop og Róró, sem eru leidd af öflugum konum, og áfram mætti telja fleiri frábær dæmi sem gætu orðið konum hvatning til að láta til sín taka í atvinnulífinu,“ segir Huld. Öryggistilfinning getur verið þröskuldur Aðspurð segir Huld enga einfalda skýringu á fyrrnefndum kynja- hlutföllum. „Þó er það þannig að konur virð- ast að mörgu leyti áhættufælnari en karlar, en þá mætti einnig leiða líkur að því að konur séu feimnari við að koma hugmyndum sínum á framfæri eða óska eftir frekari aðstoð, til að mynda fjárfestingu. Nú eru konur um þriðjungur stjórnenda í íslensku atvinnulífi þannig að þessar tölur eru á pari við þá staðreynd,“ segir Huld. Vissulega sé áhættusamt að stofna fyrirtæki frá grunni. Til þess þurfi róttækar hugmyndir, hugsjón og viljann til að takast á við áskoranirnar sem fylgja því að stofna og reka fyrirtæki. „Konur hafa þetta allt saman. Þær búa yfir hugmyndum og vilja en það eru þröskuldar sem stund- Konur geta verið sínir yfirmenn Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, og Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, fjárfestingastjóri. MYND/ERNIR Mikilvægt er að auka hlut og þátttöku kvenna í nýsköpunar- verkefnum og fyrirtækjarekstri almennt. Það er unnt að gera með aukinni fræðslu og hvatningu til kvenna um að láta til sín taka. um virðist erfitt að yfirstíga. Einn þeirra er að mínu mati sá að konur kjósa frekar að starfa sem laun- þegar, með skilgreindan vinnu- tíma, tíma fyrir fjölskyldu og fastar mánaðarlegar launagreiðslur. Þá er einnig þekkt að konur sem eru að ljúka háskólanámi hugi í fram- haldinu að því að koma sér upp heimili. Það verður til þess að þær kjósa öryggið og setja aðrar hug- myndir sínar á ís. Því þarf að telja konum, á öllum aldri, trú um að þær geti verið sínir eigin yfirmenn og tekist á við þessar áskoranir líkt og karlmenn gera.“ Konur eru hugmyndaríkar Huld segir að þessu megi breyta. Hún tekur sem dæmi verkefnið Brautargengi á vegum Nýsköp- unarmiðstöðvar. „Brautargengi er námskeið sniðið sérstaklega að þörfum kvenna sem vilja hrinda viðskipta- hugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur, en einnig kvenna sem eru þegar í atvinnurekstri og vilja auka þekkingu sína. Með aukinni fræðslu, til dæmis meðan á námi stendur, væri hægt að hvetja konur til að hrinda hugmyndum sínum um stofnun fyrirtækja í framkvæmd,“ útskýrir Huld. „Konur eru hugmyndaríkar en það þarf að hvetja þær til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.“ Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er í Kringlunni 7. Sími 510 1800. Nánari upplýsingar á nyskopun.is. BILBAO, SPÁNN MATUR, MENNING OG SÖFN 18.–22. APRÍL 5 DAGAR Spennandi nýjung VERÐ FRÁ Verð á mann m.v. 2 fullorðna. PÁSKA­ FERÐ ÁVALLT SÓL SKÍN MEÐ ÚRVAL ÚTSÝN Innifalið í verði er flug, gisting, íslensk fararstjórn, flugvallaskattar, ferðataska og handfarangur. Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is SJÁÐU MEIRA Á URVALUTSYN.IS TALAÐU VIÐ FERÐARÁÐGJAFA Í SÍMA 585 4000 99.900 KR. 8 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 1 -B F A C 2 2 3 1 -B E 7 0 2 2 3 1 -B D 3 4 2 2 3 1 -B B F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.