Fréttablaðið - 31.01.2019, Síða 40

Fréttablaðið - 31.01.2019, Síða 40
Eva Magnúsdóttir er ráðgjafi og eigandi Podium ehf. MYND/ERNIR Miklar samfélags- breytingar eru að læðast að okkur. Það skemmtilega við þessa stafrænu vegferð er að starfsfólk víða að úr bankanum kemur að henni. Stofnað er þverfaglegt verkefna- teymi um hverja nýja lausn sem hefur 16 vikur til að ljúka verkinu. Rakel Óttarsdóttir Unga fólkið dreymir um að vinna og njóta á sama tíma, sitja á Balí og horfa á sólsetrið með tölvu og síma að vopni,“ segir Eva Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi ráð- gjafarfyrirtækisins Podium ehf. Hún heldur áfram og spyr hvort fyrirtæki nútímans séu tilbúin til þess að skapa þessu unga vel menntaða fólki staði í fyrirtækj- unum. Í framtíðarfyrirtækinu þar sem yfirbygging er lítil, starfsmenn sitja út um allan heim og vinna í fjarlægð frá vinnustað, sóun er lítil og losun gróðurhúsalofttegunda heyrir nánast sögunni til. Þar er heimurinn þeirra. Eva segir að unga fólkið vilji tilheyra fyrirtæki sem hafi gildi samfélagsábyrgðar að leiðarljósi. Viðskiptastefna á sterum „Er þetta útópía eða bara draumur unga fólksins, laust við kaldan raunveruleika eða hefur samfélags- breyting læðst að okkur? Að mínu mati þarf að taka viðskiptastefnu fyrirtækja almennt upp á næsta þrep og bæta við hana samfélags- stefnu þar sem reynslan sýnir að unga fólkið vill vita áður en það ræður sig í vinnu hvernig tekið sé á samfélagsábyrgð og jafnrétti. Þeir bestu geta nefnilega valið hvar þeir vilja vinna. Fram kom í nýlegri könnun sem EM rannsóknir gerðu að 85% landsmanna vilja frekar skipta við ábyrg fyrirtæki. Þess utan vex fjárfestingum í grænum sjóðum fiskur um hrygg um allan heim sem er mjög spennandi kostur. Einnig er fyrirtækjum á markaði skylt samkvæmt lögum að upplýsa um hvernig þau standa sig í sam- félaginu og hafa því mörg mótað sér samfélagsstefnu. Það er því margt sem mælir með samfélags- breytingum,“ segir Eva. Blómstrandi nýsköpun „Samfélagsleg ábyrgð og tilfinn- ing fyrir umhverfi sínu skapar tækifæri fyrir viðskiptalífið til að styðja við nýsköpun og þróun nýrra hugmynda í anda sjálfbærni. Viðskiptalífið getur hagnast vel á þeim hugmyndum sem fela munu í sér hagkvæmari rekstur og minni sóun. Ábyrg fyrirtæki munu í framtíðinni hafa öflug áhrif á markaði og samfélög þar sem þau hafa sannað að ábyrg framkoma og hagnaður geta verið samferða,“ segir Eva. Sameinumst um viðmið Sameinuðu þjóðirnar hafa fært okkur tól til að styðjast við með sameiginlegum viðmiðum til sjálf- bærni með UN Global Compact og Heimsmarkmiðum sameinuðu Vinna langt frá vinnustaðnum Kynslóðin sem fer að detta inn á vinnumarkaðinn er umhverfislega meðvituð, veit hvað bráðnun jökla þýðir, lítur neikvæðum augum á sóun og kýs sveigjanlegan vinnutíma og vinnustöðvar. þjóðanna. Með því að miða starf- semi okkar við þessi viðmið og birta þau í stefnunni getum við séð hvort við séum að leggja okkar af mörkum. Að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda er brýnasta verkefnið og þarf vart að minna á bráðnun jökla. Það þarf þó ekki að draga úr lífsgæðum heldur þurfum við að finna nýjar og betri lausnir. Framtíðin mun innihalda annars konar mat, orkusparnað í heim- ilishaldi, orkunýtnari ökutæki og minni losun á ferðalögum eða kolefnisjöfnun. Breyttir lífshættir og neysluvenjur geta bætt lífsgæði okkar allra til framtíðar. Alþjóðlegar áskoranir Hvernig við byggjum upp við- skiptaumhverfi morgundagsins er spennandi verkefni og það er mikilvægt að taka tillit til við- miða um samfélagslega ábyrgð í viðskiptastefnu. Fram undan eru alþjóðlegar áskoranir, hvort sem þær lúta að þverrandi vatnsbúskap, fæðismálum, loftslagi, aukinni fátækt og breyttum áherslum þá eru það allt þættir sem viðskipta- lífið getur tekið þátt í að leysa. Það er ekki seinna vænna en byrja strax ef við ætlum að taka stolt á móti aldamótakynslóðinni og búa henni farsæla framtíð.“ Podium ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í stefnumótun með samfélagsábyrgð að leiðarljósi, gerð samfélagsskýrslna og aðstoð við innleiðingu á Global Compact og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Podium veitir einnig ráð- gjöf í samskiptamálum. Arion banki er í forystu þegar kemur að nýjungum í fjármálaþjónustu og inn- leiðingu stafrænna lausna og leiða konur innan bankans þá vinnu, þær Rakel Óttarsdóttir, fram- kvæmdastjóri upplýsingatækni- sviðs, og Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskipta- bankasviðs. Áhersla er á jafn- réttismál innan bankans sem fékk á árinu fyrstur banka heimild til að nota Jafnlaunamerki velferðar- ráðuneytisins en bankinn hefur verið jafnlaunavottaður síðan 2015 þegar hann fékk Jafnlaunavottun VR. Jafnt kynjahlutfall er í stjórn og framkvæmdastjórn bankans. Arion banki hefur kynnt til leiks yfir 20 nýjar stafrænar lausnir á rúmum tveimur árum sem við- skiptavinir geta nálgast í Arion appinu, netbankanum og á vef bankans. Nýjasta lausnin kallast opið app, sem allir geta sótt, óháð því hvort þeir eru í viðskiptum við bankann. Verðlaunaðar lausnir „Eitt besta dæmið um vel heppn- aða og vinsæla stafræna lausn er fljótlegt greiðslumat og umsóknar- ferli um íbúðalán á vefnum. Önnur dæmi eru lán í appinu sem taka mið af lánshæfismati hvers og eins, bílalán á vefnum og greiðslukorta- heimildir sem hægt er að breyta í appinu. Við höfum hlotið alþjóð- leg verðlaun fyrir lausnirnar okkar og þá aðferðafræði sem við beitum við þróun þeirra. Samhliða þessum nýju lausnum höfum við breytt útibúum bankans til að samtvinna betur stafræna og persónulega þjónustu,“ segir Iða Brá. Fjölbreytileiki er lykillinn að árangri Arion banki hefur kynnt til leiks yfir 20 nýjar stafrænar lausnir á rúmum tveimur árum. Konur leiða vinnu bankans þegar kemur að nýjungum í fjármálaþjónustu og innleiðingu stafrænna lausna. Rakel Óttars­ dóttir, fram­ kvæmdastjóri upplýsinga­ tæknisviðs (t.v.), og Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmda­ stjóri viðskipta­ bankasviðs. MYND/ERNIR Samstarf þvert á bankann Starfsfólk af öllum sviðum bankans kemur að þróun stafrænu lausnanna, flest af upplýsingatæknisviði og viðskiptabankasviði. „Það skemmti- lega við þessa stafrænu vegferð er að starfsfólk víða að úr bankanum kemur að henni. Stofnað er þver- faglegt verkefnateymi um hverja nýja lausn sem hefur 16 vikur til að ljúka verkinu. Það er mjög eftirsótt að taka þátt og gott samstarf starfs- fólks af ýmsum sviðum bankans er grunnurinn að árangrinum. Við gætum þess að skapa góðan anda innan teymanna, m.a. með því að horfa til fjölbreytileika en þannig fáum við betri lausnir sem höfða til fleiri,“ segir Rakel. „Jafnrétti, í víðustu merkingu þess orðs, er mikilvægur liður í því að byggja upp góðan vinnustað þar sem fjölbreytt sjónarmið heyrast,“ segir Rakel. „Viðskiptavinir okkar eru jafnt karlar sem konur og því skiptir máli að bæði kynin komi að þróun okkar þjónustu. Í dag er mikill meirihluti forritara karlar en við höfum lagt okkur fram um að fjölga konum á upplýsingatæknisviði svo þjón- ustan sé einnig hönnuð út frá þeirra sjónarmiði. Við þurfum líka í ríkari mæli að hvetja stelpur til að sækja sér tæknimenntun því það er alveg ljóst að eftirspurn eftir tæknifólki á bara eftir að aukast og við þurfum líka þeirra krafta.“ Meiri árangur „Jafnlaunavottunin og það sem bankinn hefur gert í jafnréttismálum hefur haft jákvæð áhrif á menn- inguna innan bankans,“ segir Iða Brá. „Það er margsannað að fyrirtæki sem leggja áherslu á fjölbreytileika ná betri árangri, vegna betra jafn- vægis í ákvarðanatöku og áhættu- stýringu, heldur en fyrirtæki þar sem hópurinn er eins leitur. Fjölbreyti- leiki og aðkoma beggja kynja að ákvarðanatöku skiptir okkur miklu máli og skilar árangri. Stafrænu verk- efnin okkar eru lýsandi dæmi um það enda eru verkefnateymin skipuð fólki með mjög fjölbreytta þekkingu, reynslu og bakgrunn.“ Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is 10 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 1 -B A B C 2 2 3 1 -B 9 8 0 2 2 3 1 -B 8 4 4 2 2 3 1 -B 7 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.